Ársrit um starfsendurhæfingu - 2010, Page 9
9www.virk.is
STARFSENDURHÆFINGARSJÓÐUR
Samningar við stéttarfélög
um allt land
Fyrri hluta ársins 2009 var gengið frá
samningum um starf/störf ráðgjafa við
flest stéttarfélög eða samtök stéttarfélaga
um allt land. Um er að ræða nokkuð
ítarlega samninga þar sem ábyrgð og
skyldur samningsaðila eru skilgreindar
og kveðið er á um greiðslur og eðli
þjónustunnar. Stéttarfélögin eða sjúkra-
og styrktarsjóðir stéttarfélaganna bera
ábyrgð á ráðningu ráðgjafa og taka að
sér að veita þá þjónustu sem skilgreind
er í samningnum. VIRK sér hins vegar
um að móta vinnureglur og verkfæri
ráðgjafanna og ráðgjafarnir þurfa
að uppfylla kröfur VIRK hvað varðar
þekkingu, hæfni og veitta þjónustu.
VIRK ber ennfremur ábyrgð á fræðslu og
símenntun ráðgjafanna. Allir samningar
eru tímabundnir til að byrja með og er
fyrsta tímabilið að hámarki eitt ár. Þá
er gert ráð fyrir að samningarnir verði
endurskoðaðir í ljósi reynslunnar og að
nýr samningur verði ótímabundinn með
gagnkvæmum uppsagnarfresti.
Stærstu félögin, VR og Efling, hafa sína
eigin ráðgjafa og það sama á við um
heildarsamtök stéttarfélaga eins og
BSRB, BHM og KÍ. Minni félög hafa
sameinast um ráðgjafastöðurnar og á
landsbyggðinni er yfirleitt einn ráðgjafi
starfandi fyrir öll þau stéttarfélög sem eiga
félagsmenn á svæðinu. Þannig geta allir
launamenn sem búsettir eru á Suðurlandi
leitað til ráðgjafans á Suðurlandi óháð
því hvaða stéttarfélagi þeir tilheyra.
Ráðgjafar heildarsamtakanna á höfuð-
borgarsvæðinu, BSRB, BHM, KÍ og SSF
eru síðan í góðu samstarfi við viðkomandi
ráðgjafa á landsbyggðinni og vísa til þeirra
einstaklingum sem búsettir eru þar.
Í upphafi var miðað við að eitt stöðugildi
ráðgjafa væri fyrir hverja tíu þúsund
félagsmenn stéttarfélaga. Einnig hefur
verið tekið mið af öðrum þáttum við
mat á umfangi, svo sem fjölda félaga,
mismunandi hópa félagsmanna og
fjarlægðir á landsbyggðinni. Fljótlega
eftir að ráðgjafarnir hófu störf kom í
ljós að á sumum stöðum var umfangið
meira en ráðgjafarnir gátu annað og
þar hefur ráðgjöfum verið fjölgað.
Eftir á að koma í ljós hvernig starfið
þróast en líklegt er að bæta þurfi við
ráðgjöfum sums staðar þegar byrjað
verður að veita örorkulífeyrisþegum
lífeyrissjóðanna þjónustu.
Fjöldi ráðgjafa
Nú eru starfandi 22 ráðgjafar hjá
stéttarfélögum um allt land í 17,25
stöðugildum. Óhætt er að segja að
stéttarfélög um allt land hafi lagt
mikla vinnu og metnað í að vinna að
uppbyggingu þjónustunnar og finna
mjög hæfa ráðgjafa sem flestir hafa
víðtæka þekkingu og reynslu til að
takast á við þetta mikilvæga og flókna
starf. Flestir ráðgjafanna tóku til starfa
á haustmánuðum 2009 en örfáir hófu
störf fyrr og tóku þátt í tilraunaverkefni á
fyrri hluta árs 2009. Þá voru vinnuferlar
og tæki í mótun og þróun. Í upphafi
árs 2010 bættust síðan fleiri ráðgjafar
í hópinn en þá var ráðgjöfum hjá
VR, Eflingu, iðnaðarmannafélögum á
höfuðborgarsvæðinu og hjá stéttar-
félögum á Akureyri fjölgað. Myndir og
nánari upplýsingar um ráðgjafana er að
finna hér aftar í ritinu. Nánari upplýsingar
um ráðgjafa og félög/samtök sem hafa
gert samninga við VIRK eru á heimasíðu
sjóðsins: www.virk.is
Vinnuaðferðir ráðgjafa
Ráðgjafar nota verkfæri í starfi sínu sem
hafa verið þróuð hjá VIRK og að hluta í
samstarfi við opinbera aðila í tengslum
við þróun á nýju starfshæfnismati. Um
er að ræða gátlista, samtalsramma og
verkefnablöð sem hafa þann tilgang að
greina stöðu einstaklings, finna styrkleika
hans og lágmarka þá farartálma sem eru
á vegi fullrar þátttöku á vinnumarkaði.
Þessi verkfæri eru í stöðugri þróun hjá
sérfræðingum VIRK með virkri þátttöku
ráðgjafanna. Auk þessa eru til staðar
ákveðnar vinnureglur miðað við fjölþættar
aðstæður einstaklinga, skráningu gagna,
kaup á þjónustu/úrræðum og margt fleira.
Hver ráðgjafi hefur ákveðinn sérfræðing
hjá VIRK sem tengilið og funda þeir
reglulega um framgang mála.
Við upphaf starfs fá ráðgjafar í hendur
leiðbeiningar, handbækur og ýmis gögn
auk þess sem þeir fá bæði fræðslu og
handleiðslu við notkun vinnuferla og
tækja. Ráðgjafarnir hafa þannig nokkuð
skýran ramma sem þeim ber að fara eftir
en innan hans hafa þeir einnig tiltekið
svigrúm.
Fræðsla og símenntun
ráðgjafa
Mikil áhersla er lögð á fræðslu og
símenntun fyrir ráðgjafa á vegum
VIRK. Auk reglulegrar handleiðslu frá
sérfræðingum VIRK, koma allir ráðgjafar
saman hjá VIRK einu sinni í mánuði og
taka þátt í skipulagðri fræðslu. Að jafnaði
tekur dagskrá hvers mánaðar einn dag
en í upphafi fá ráðgjafar lengri þjálfun eða
allt að viku námskeið. Á fræðsludögum
er fjallað um hugmyndafræði, vinnuferla,
ráðgjafahlutverkið, verkfæri, réttindi og
skyldur á vinnumarkaði, siðfræði og
starfsaðferðir, auk þess sem fræðslan
tengist áhersluþáttum og þróun í starfi
ráðgjafanna á hverjum tíma. Dæmi
um efni sem fjallað hefur verið um er;
samvinna við atvinnulífið, samstarf við
heilbrigðiskerfið, notkun aðkeyptra
úrræða, skjalakerfi og vinnuferlar,
áhugahvetjandi viðtöl, reynsla ein-
staklings af langtíma veikindafjarvist,
skráning upplýsinga, upplýsingaöryggi
og fleira. Leiðbeinendur í fræðslunni
hafa verið sérfræðingar VIRK, ráðgjafar
sem hafa sérþekkingu á ákveðnu sviði og
utanaðkomandi sérfræðingar. Þá hefur
einnig reynst mjög mikilvægt að gefa
ráðgjöfum góðan tíma í umræður um
starfið og tækifæri til tengslamyndunar
sín á milli.
Ráðgjöfum hefur einnig verið boðið í
kynningarheimsóknir til hinna ýmsu
aðila sem bjóða upp á fjölbreytt úrræði
sem geta verið liður í þjónustu þeirra og
ráðgjöf. Þar sem bakgrunnur og reynsla
ráðgjafanna er ólík hefur þeim að auki
verið gert mögulegt að sækja námskeið
hjá endurmenntunardeildum háskólanna
þegar þær bjóða námskeið sem nýtast í
starfi ráðgjafanna.