Ársrit um starfsendurhæfingu - 2010, Blaðsíða 41
41www.virk.is
ATVINNULÍF
Starfsendurhæfing
í atvinnulífinu
Meginhlutverk Starfsendurhæfingarsjóðs
er að aðstoða einstaklinga með skerta
starfsgetu til að auka hana og styrkja með
það að markmiði að viðkomandi geti verið
virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Til að
slíkt sé mögulegt þurfa margir ólíkir aðilar
oft að vinna saman, svo sem ráðgjafar,
sérfræðingar, heilbrigðisstarfsmenn og
síðast en ekki síst atvinnurekendur og
stjórnendur á vinnustöðum.
Geta einstaklings til þátttöku á vinnu-
markaði verður ekki aukin, vegin eða
metin á réttmætan hátt nema í samstarfi
við atvinnulífið og þá aðila sem þar stjórna
og starfa. Þessu má meðal annars lýsa
með eftirfarandi mynd:
Myndin sýnir að vinnugeta einstaklings
ræðst annars vegar af færni hans og hins
vegar af þeim kröfum sem gerðar eru
á vinnumarkaði í mismunandi störfum
og verkefnum. Starfsgeta hvers og eins
verður því ekki metin án samstarfs
við atvinnulífið og eins er það ljóst að
einstaklingur með líkamlega eða andlega
fötlun eða skerðingu getur búið yfir fullri
vinnugetu ef unnt er að finna honum
verkefni við hæfi á vinnumarkaði.
Hér á landi hefur á undanförnum árum
verið lögð mikil áhersla á námstengda
starfsendurhæfingu. Þar er fólki með
skerta starfshæfni boðið upp á að
stunda nám með stuðningi en oft með
takmarkaðri tengingu við atvinnulífið.
Þessi tegund starfsendurhæfingar getur
verið árangursrík þegar um er að ræða
einstaklinga sem hafa verið lengi frá
vinnu eða hafa ekki lokið námi og hafa
þeir á þennan hátt fengið nauðsynlegan
stuðning og hvatningu til áframhaldandi
uppbyggingar starfshæfni sinnar.
Rannsóknir og reynsla erlendis hafa þó
sýnt fram á að varanlegur árangur í
starfsendurhæfingu næst í mörgum
tilfellum ekki án náins samstarfs
við atvinnulífið og án þess að
atvinnurekendur og stjórnendur séu
tilbúnir til að leggja sig fram um að taka
þátt í þessu verkefni. Bæði með því að
aðstoða núverandi starfsmenn við að
halda starfi sínu þrátt fyrir heilsubrest
og gefa nýjum starfsmönnum tækifæri til
þátttöku í samræmi við getu, þrátt fyrir
að viðkomandi búi við skerta starfsgetu
vegna heilsubrests af einhverju tagi.
Árangursríkt samstarf við atvinnurek-
endur og stjórnendur er því ákaflega
mikilvægur þáttur í starfi VIRK og
getur í framtíðinni ráðið mjög miklu
um hversu varanlegur árangur næst í
starfsendurhæfingu hér á landi.
Starfsendurhæfingarsjóður vill byggja
upp gott samstarf við atvinnurekendur
um allt land, samstarf sem hefur það
markmið að koma í veg fyrir að starfsmenn
missi starf sitt vegna heilsubrests og
einnig að skapa rými og finna störf við
hæfi fyrir einstaklinga sem búa við skerta
starfshæfni eða þurfa á því að halda að
finna ný tækifæri á vinnumarkaði eftir
áföll og erfiða tíma.
Frá því að ráðgjafar Starfsendur-
hæfingarsjóðs hófu störf síðastliðið haust
hafa margir þeirra átt gott samstarf við
atvinnurekendur og stjórnendur um
allt land, samstarf sem miðar að því að
varðveita vinnusamband einstaklinga
sem til þeirra leita. Margir stjórnendur sjá
ný tækifæri í starfsemi sjóðsins og vilja
nýta sér þetta samstarf til að byggja upp
starfsmenn sem búa við skerta starfsgetu
í kjölfar veikinda, áfalla eða slysa.
Stjórnendum er yfirleitt annt um sína
starfsmenn og finnst gott að geta nýtt sér
nýjar leiðir til uppbyggingar og aðstoðar.
Hér á landi eru líka til fyrirtæki sem hafa
á markvissan hátt skipulagt úrræði sem
henta sérstaklega starfsmönnum sem
af ýmsum ástæðum geta ekki sinnt
sínu fyrra starfi vegna heilsubrests.
Starfsendurhæfingarsjóður vill á komandi
árum vekja athygli á því sem vel er gert
í þessum efnum og mun því bæði í
ársriti og á heimasíðu sinni hafa sérstaka
umfjöllun um þá atvinnurekendur sem
eru til fyrirmyndar í þessum efnum.
Hér á eftir birtast viðtöl við stjórnendur
og starfsmenn hjá tveimur fyrirtækjum.
Annars vegar er viðtal við Skúla Waldorff,
starfsmannastjóra Orkuveitu Reykjavíkur,
um þau tækifæri sem geta falist í samstarfi
við sérfræðinga og ráðgjafa VIRK en
stjórnendur Orkuveitunnar hafa verið
mjög áhugasamir um þetta samstarf.
Hins vegar er hér birt viðtal við
Jakobínu Jónsdóttur, framkvæmdastjóra
Starfsmannasviðs Alcan, ásamt viðtölum
við verkstjóra og starfsmenn Smiðjunnar
hjá Alcan. Alcan býður starfsmönnum
sínum upp á fjölbreytt úrræði og
þjónustu ef vinnugeta þeirra skerðist.
Sérstök starfsstöð innan fyrirtækisins,
Smiðjan hefur verið byggð upp til að
mæta þörfum þeirra starfsmanna sem
geta ekki, um lengri eða skemmri tíma,
unnið við fyrri störf vegna heilsubrests,
vinnufyrirkomulags, umhverfis, eða af
öðrum ástæðum. Hér er um að ræða
raunverulegt úrræði sem kemur bæði
starfsmönnum og atvinnurekanda til góða
og er mjög til fyrirmyndar á íslenskum
vinnumarkaði.