Ársrit um starfsendurhæfingu - 2010, Blaðsíða 18
18 www.virk.is
Þ
JÓ
N
U
S
TA
býður ráðgjöf. „Sumir eru ef til vill ekki reiðubúnir
að koma strax í viðtal, en eru þó jákvæðir. Fólk
gerir sér grein fyrir að þetta er þjónusta, en
ekki kvöð. Reyndar höfum við endurskoðað
reglur sjúkrasjóðsins. Núna verða þeir, sem
fá sjúkradagpeninga, að koma í eitt viðtal hið
minnsta. Þetta er réttur félagsmanna, sem við
viljum að þeir nýti sér. En það eru engin viðurlög
við því að gera það ekki. Við höfum hins vegar
miðað við, að sá sem er lengur en 8 vikur á
sjúkradagpeningum, komi til mín.“ Hún segir
mikilvægt að halda ráðgjöfinni að fólki. „Fólk á
vissulega rétt á sjúkradagpeningum, en það á líka
þann sjálfsagða rétt að fá starfsendurhæfingu.
Algengustu úrræðin eru sjúkraþjálfun og viðtöl
við sálfræðinga. Svo nýtir fólk sér gjarnan ýmis
námskeið, sem auka starfsgetuna.“
Soffía nefnir dæmi af konu, sem unnið hafði í
mörg ár við aðhlynningu. „Hún var komin með
einkenni gigtar í baki, vegna slitálags, hafði
fullnýtt veikindarétt sinn hjá vinnuveitanda og fékk
sjúkradagpeninga hjá sjúkrasjóði stéttarfélags
síns. Hún var því í mjög dæmigerðri stöðu
þeirra, sem leita til ráðgjafa. Í slíkum tilvikum er
gjarnan byrjað á að vísa fólki til sjúkraþjálfara og
hugsanlega leitað til iðjuþjálfa. Hjá Gigtarfélagi
Íslands vinna t.d. sjúkraþjálfari og iðjuþjálfi
saman að lausnum og það kemur mörgum vel.“
Helsta hlutverk ráðgjafans er að fá skýra mynd af
því hvaða hindranir draga úr starfsgetu fólks. „Er
fólk haldið sjúkdómi eða hefur lent í slysi? Einnig
er mikilvægt að finna hvaða styrkleika hver og
einn hefur og nýta þá. Í hverju tilviki þarf að finna
það fagfólk, sem hefur besta sérþekkingu.“
Soffía segir starfið ganga vel og mun betur nú en
fyrst. „Það er ósköp eðlilegt. Í fyrstu þurfti að feta
ýmsar brautir í fyrsta sinn og þótt ég teldi mig hafa
ágæta reynslu og þekkingu þá kom margt á óvart.
Núna er starfið að komast í ágætt horf og ég veit
að það mun enn batna. Það er mjög mikilvægt
Þegar Soffía Erla Einarsdóttir sá auglýst starf
ráðgjafa, sem ætlað var að vinna að markmiðum
Starfsendurhæfingarsjóðs, sá hún að þar var
lýsingin á hennar áhugasviði komin. Hún er
með BA-próf í sálfræði og hafði starfað hjá
Reykjanesbæ við að liðsinna þeim sem sóttu
um fjárhagsaðstoð. Það var fjölbreytt starf, en
skemmtilegust fannst henni sú vinna sem
sneri að starfsendurhæfingu. Þegar hún sá
auglýsinguna um ráðgjafastarfið vann hún að
meistararitgerð sinni í mannauðsstjórnun. Soffía
var ráðin ráðgjafi Eflingar stéttarfélags í byrjun árs
2009 og um haustið bættist Verkalýðsfélagið Hlíf
í Hafnarfirði við.
„Þegar ég kom til starfa hafði Efling lagt
góðan grunn að verkefnum mínum. Af hálfu
sjúkrasjóðsins var tilbúinn listi yfir alla þá, sem
fengu sjúkradagpeninga, og ég gat sest við
símann og haft samband við allt þetta fólk. Um
helmingur þess þáði þjónustuna, jafnt konur
sem karlar. Hópurinn er mjög breiður, en innan
vébanda Eflingar og Hlífar er stór hópur ófaglærðs
verkafólks og margir eru af erlendum uppruna.
Sá hópur hefur vissulega minnkað undanfarna
mánuði, en er þó enn stór.“
Þjónusta, ekki kvöð
Forsenda þess, að fólk leiti ráðgjafar Soffíu, er
að vinnugetu þess sé ógnað. „Sú ógn getur verið
af ýmsum toga, en í þessum hópi er líkamlegt
slit vegna erfiðisvinnu algengt. Um helmingur
hópsins, sem til mín leitar, er enn í vinnu og vill
ráðgjöf um hvernig hann geti stundað vinnu sína
áfram. Ég er mjög ánægð með það, það er gott að
koma sem allra fyrst að málum.“
Soffía segist oftast nær hafa fengið jákvæð
viðbrögð, þegar hún hefur samband við fólk og
Árangur fyrir einstaklinga
og þjóðfélagið
Soffía Erla Einarsdóttir ráðgjafi hjá Eflingu og Hlíf / viðtal
„Starfsendurhæfing
er mjög mikilvæg og
skilar árangri, bæði
fyrir einstaklinga
og þjóðfélagið. Sjálf
ætla ég að vera hér
þar til fólki finnst
ekki þörf á mér
lengur. Helst vildi
ég vera óþörf en á
meðan svo er ekki
vil ég aðstoða fólk
við að ryðja
hindrunum
úr vegi.“