Ársrit um starfsendurhæfingu - 2010, Síða 23
23www.virk.is
ÞJÓNUSTA
Starfshæfnismatið skiptist í þrjá þætti:
G• runnmat
Sérhæft mat (endurhæfingarmat)•
Endurmat•
Í Grunnmati ber að leggja áherslu á
hvatningu og virkjun sem miðar að því að
gera einstakling eins virkan í sínu umhverfi
eins og hugsast getur. Í Grunnmati
skiptir huglægt mat einstaklings á færni
sinni miklu máli sem og trú hans á eigin
getu því þessi atriði gefa til kynna hvað
viðkomandi mun treysta sér til að takast
á við í framtíðinni.
Sérhæft mat á sér stað þegar sérfræð-
ingar eru kallaðir til til að meta nánar
stöðu einstaklings og greina þörf hans
á frekari endurhæfingu. Hér er notast
við þekkingu ólíkra sérfræðinga við mat
á stöðu einstaklings sem og viðurkennd
matstæki. Niðurstaða sérhæfðs mats
er tillaga að endurhæfingaráætlun og
úrræðum í samræmi við það.
Endurmat á sér stað að lokinni
starfsendurhæfingu.
Meginreglur í starfshæfnis-
mati:
L1. ýsa þarf aðstæðum einstaklings út
frá líkamlegri færni, andlegri færni
og félagslegum aðstæðum.
Greina þarf alla möguleika til 2.
þróunar – t.d. út frá áhugamálum
eða hæfni sem ekki hefur verið
nýtt en er til staðar. Skoða þarf
sérstaklega tengslin á milli færni og
hindrana – eru þar möguleikar til
þróunar?
Lýsa þarf og greina þá möguleika 3.
sem eru til staðar á vinnumarkaði
fyrir viðkomandi einstakling.
Greina þarf á milli lýsingar og 4.
mats. Fyrst á sér stað lýsing þar
sem upplýsingum er safnað á
skipulagðan hátt. Síðan er lagt mat
á stöðuna út frá formlegri lýsingu.
Einstaklingurinn þarf að taka þátt á 5.
virkan og skipulagðan hátt.
Líta þarf á heildarmyndina þegar 6.
aðstæður einstaklinga eru skoðaðar.
Fylgja þarf málum eftir á 7.
skipulagðan hátt.
Veita þarf stöðugan stuðning.8.
Grunnmat
Grunnmat á sér stað þegar einstaklingur
getur ekki lengur sinnt sínu starfi sökum
skertrar starfshæfni sem rekja má til
heilsubrests. Einstaklingur sem kemur til
skráningar hjá Starfsendurhæfingarsjóði
og uppfyllir þá skilgreiningu sem sett er
hér fram fer í grunnmat hjá ráðgjafa í
starfsendurhæfingu.
Grunnmat er lykilþáttur starfshæfnis-
mats. Með því að vinna Grunnmat er
dregin fram heildræn mynd af stöðu
einstaklingsins þar sem lögð er áhersla
á hvatningu og virkjun sem miðar að því
að gera einstaklinginn eins virkan í sínu
umhverfi og hugsast getur. Með því að
koma snemma að málum er tryggt að
brugðist sé við þörfum einstaklingsins
strax á fyrstu stigum og gerð virkniáætlun
í takt við þarfir hvers og eins. Unnið er
markvisst með þá þætti sem bætt geta
starfshæfni einstaklingsins og þar með
möguleika hans á að komast aftur til
vinnu. Þannig er brugðist við með snemm-
tækri íhlutun og með því er hugsanlega
komið í veg fyrir að einstaklingurinn þurfi
sérhæfðari þjónustu og/eða hverfi af
vinnumarkaði.
Aðferðin byggir á ferli þar sem ráðgjafi,
í samstarfi við einstaklinginn, dregur
fram og skýrir hvaða færni viðkomandi
hefur sem nýtist á vinnumarkaði. Þessi
greining er forsenda þess að hægt sé að
meta að hvað miklu leiti einstaklingurinn
hefur möguleika á að taka virkan þátt
á vinnumarkaði – eða hvort hægt sé
að hefja ferli til að bæta og þróa færni
einstaklingsins með það að markmiði að
hann geti að hluta eða öllu leyti séð fyrir
sér með vinnu. Um leið og Grunnmat er
unnið skapast vettvangur fyrir ráðgjafa að
mæta einstaklingnum þar sem hann er
staddur og hvetja hann til virkrar þátttöku
í mats- og starfsendurhæfingarferlinu.
Rödd einstaklingsins fær að hljóma,
viðkomandi er hvattur til að taka ábyrgð
á lífi sínu og aðstæðum.
Ráðgjafinn stýrir upplýsingaöflunarferl-
inu/samtalinu. Hann beinir ætíð sjónum
að hæfileikum einstaklingsins sem og
færni í stað þess að nema staðar við það
sem á skortir. Hann hjálpar viðkomandi
um leið að sjá sjálfan sig og stöðu sína
með sömu augum. Einnig er reynt að
hvetja fólk og kveikja þar með löngun
þess til að vinna í sínum málum og auka
möguleika á að aðstoð skili árangri.
Samhengi milli vilja og getu einstaklinga
og aðstoðar í kerfinu má annars lýsa með
eftirfarandi mynd:
Þessi aðferðarfræði byggir á ferli
þar sem ráðgjafi, í samstarfi við
einstaklinginn, dregur fram og skýrir
hvaða styrkleika viðkomandi hefur sem
nýtast á vinnumarkaði. Þessi skýring er
forsenda þess að hægt sé að meta hvort
einstaklingurinn hafi möguleika á að taka
þátt á vinnumarkaði eða hvort mögulegt
sé að hefja feril til að bæta og þróa færni
einstaklingsins með það að markmiði að
hann geti að hluta eða öllu leyti séð fyrir
sér með vinnu. Þá gefst tækifæri fyrir
ráðgjafa og einstakling að mynda tengsl
og byggja upp traust til framtíðar en
samband þeirra er ein forsenda þess að
starfsendurhæfing beri árangur.
Á þessu fyrsta stigi starfshæfnismatsins