Ársrit um starfsendurhæfingu - 2010, Qupperneq 25
25www.virk.is
ÞJÓNUSTA
hvað viðkomandi muni treysta sér til að
takast á við í framtíðinni.
Markmiðið með Grunnmati-möppu
tækifæranna er að fá ítarlega mynd
af högum einstaklings með tilliti til
starfshæfni og virkni á vinnumarkaði.
Brýnt er að upplýsingarnar séu skráðar
í samtalsrammann á sem hlutlægastan
hátt til að tryggja að grunnmatið, sem
unnið verður á grundvelli upplýsinganna,
verði eins nákvæmt og kostur er.
Höfuðmarkmið er að veita aðstoð til
sjálfshjálpar að því leyti sem það er mögu-
legt. Grunnmat-mappa tækifæranna
inniheldur eftirfarandi yfirþætti:
Vi1. ðhorf og tengsl við vinnumarkað.
Að tileinka sér nýja færni og 2.
þekkingu.
Áhugamál.3.
Félagsleg færni – persónuleg hæfni.4.
Félagslegar og fjárhagslegar 5.
aðstæður.
Heilsufar.6.
Innan hvers yfirþáttar eru gátlistar sem
eru hugsaðir til leiðbeiningar og stuðnings
við samtal ráðgjafa og einstaklings
með tilliti til hvaða upplýsingum skuli
sérstaklega leita eftir.
Töflur innan hvers yfirþáttar eru hugs-
aðar til að ná markvisst fram sjónarhorni
einstaklingsins á stöðu sinni. Þeir þættir
sem settir eru fram í Töflunum eru
meðal annars unnir út frá matsþáttum
sem koma úr ICF-kerfinu þar sem verið
er að nýta aðgerðabindingu í sérhverjum
matsþætti og honum lýst með tilteknum
aðgerðum. Sem dæmi má nefna yfirþátt
tvö. Að tileinka sér nýja þekkingu
og færni. Þar er horft til tiltekinna
aðgerða er tengjast framangreindu, s.s.
hvernig einstaklingnum gangi að mæta
reglulega í skóla, tileinka sér námsefni,
vinna með öðrum nemendum o.s.frv.
Töflurnar innihalda staðlaðar spurningar
sem mynda kjarna grunnmatsins. Það
verður að fara í gegnum Töflurnar,
án undantekninga. Á sama tíma er
notkunarmöguleiki þeirra fólginn í því að
þær eru nýttar í Bráðagrunnmati.
Verkefnablöð fylgja fyrstu tveimur
þáttunum í möppu tækifæranna. Þau
eru ætluð einstaklingnum til að vinna
með heima en viðkomandi getur komið
með þau til ráðgjafa og fengið aðstoð við
útfyllingu sé þess þörf. Um er að ræða
samantekt um reynslu af vinnumarkaði
annars vegar og menntun hins vegar. Í
flestum tilfellum eru upplýsingarnar sem
leitað er eftir taldar nauðsynlegar fyrir
Grunnmatið.
Virkniáætlun
Á sama tíma og unnið er Grunnmat eru
markmið sett með einstaklingnum er miða
að því að auka virkni hans og þátttöku.
Þessi markmið eru sett inn í Virkniáætlun
einstaklingsins sem er í samfelldri þróun
meðan samstarf einstaklings og ráðgjafa
stendur. Hér getur bæði verið um að
ræða skammtíma- og langtímamarkmið.
Rauði þráðurinn í þessari áætlun er að
setja fram raunsæ markmið með virkri
þátttöku einstaklingsins er varða leið
hans aftur út á vinnumarkaðinn.
Þó tilgangurinn með Grunnmati sé að
fá heildstæða mynd af stöðu og líðan
einstaklingsins er ætlunin ekki sú að
alltaf sé farið ítarlega í gegnum hvern
þátt, heldur sé það einstaklingsbundið.
Það er ráðgjafans að vega og meta
eftir þeim upplýsingum sem liggja fyrir
um einstaklinginn. Þá er gert ráð fyrir
að skráðir séu helstu styrkleikar og
veikleikar einstaklingsins og markmið
sett við hvern þátt. Síðan er lagt mat á
færni einstaklingsins með tilliti til þessara
aðgerða.
Ýmis verkfæri og ítarefni
Ýmis önnur verkfæri, t.d. verkefnablöð
fyrir heimavinnu eða ítarefni til
upplýsinga, gætu nýst á þessu stigi máls
til að hvetja og virkja einstaklinginn. Þau
eru valkvæð þar sem þau teljast ekki
nauðsynleg við upplýsingaöflun fyrir
grunnmat. Þau teljast hinsvegar heppileg
þegar kemur að Virkniáætlun. Má hér
nefna fræðslubæklinga ýmiss konar sem
og verkfæri sem hjálpa einstaklingum við
að setja sér markmið og finna leiðir til
bættrar starfshæfni.
Niðurstaða Grunnmats
Niðurstöður Grunnmats byggja á:
G1. ögnum sem fylgja einstaklingnum
inn í kerfið.
Upplýsingum sem aflað er eftir 2.
fyrirfram ákveðinni aðferð og hefur
verið lýst hér að framan.
Upplýsingum um árangur 3.
virkniaukandi aðgerða þegar þær
hafa átt sér stað.
Ráðgjafi leggur mat á möguleika til
þróunar sem og hindranir einstaklings
út frá þeim upplýsingum og skráningum
sem liggja fyrir um færni viðkomandi.
Þetta mat þarf að vera í samhengi við
kröfur á vinnumarkaði. Þegar ráðgjafi
vinnur úr sínum gögnum og metur hvar
þörf sé á að grípa inn í þá á hann alltaf að
hafa neðangreinda forgangsþætti í huga
varðandi endurkomu til vinnu:
Sama starf – sami atvinnurekandi.•
Sama starf með aðlögun/þjálfun – •
sami atvinnurekandi.
Annað starf – sami atvinnurekandi •
með eða án aðlögunar/þjálfunar.
Svipað starf hjá öðrum •
atvinnurekanda oft með aðlögun/
þjálfun.
Annað starf hjá öðrum •
atvinnurekanda með eða án
aðlögunar/þjálfunar.
Þjálfun og endurmenntun. •
Sérhæft mat
Sérhæft mat á sér stað þegar kallaðir
eru til sérfræðingar til að meta nánar
stöðu einstaklings og greina þörf hans
fyrir frekari endurhæfingu. Í sérhæfðu
mati eru starfshæfni og möguleikar
á starfsendurhæfingu kannaðir og
metnir á dýpri og sérhæfðari hátt en
í grunnmatinu. Á grundvelli sérhæfðs
mats er tekin ákvörðun um hvort, og
þá hvernig, megi efla starfshæfnina.
Niðurstaða matsins segir til um möguleika
á starfsendurhæfingu og úrræðum í
samræmi við það.
Ástæður fyrir sérhæfðu mati geta verið
ýmiss konar en það er ráðgjafi sem vísar