Ársrit um starfsendurhæfingu - 2010, Page 30
30 www.virk.is
Þ
JÓ
N
U
S
TA
notaðar markvisst til að miðla samhygð,
þannig má koma til skila dýpri skilningi
en með því sem sagt er berum orðum.
Að þróa misræmi (develop discrepancy).
Markmið með þróun misræmis er
að leysa tvíbendni í átt til jákvæðrar
hegðunarbreytingar. Með því að benda
á misræmi milli tiltekinnar hegðunar
einstaklings og þeirra gilda og markmiða
sem eru honum mikilvæg má efla innri
hvöt til breytinga sem sprottnar eru hjá
einstaklingnum sjálfum en ekki vegna
þvingana eða ytri áhrifa.
Að berast með viðnámi (roll with
resistance).
Viðnám eða mótþrói er það þegar
einstaklingur ver óbreytt ástand. Ef
fagaðili ræðst gegn viðnámi einstaklings
og hvetur staðfastlega til breytinga, þrátt
fyrir mótþróa, er hætta á að sú hegðun
sem einstaklingur þarf að verja festist
frekar í sessi. Ef fagaðili lætur berast
með viðnámi þegar það kemur fram
og hlustar, gefst tækifæri til að skoða
það sem liggur að baki og um leið
opnast möguleikar til að koma nýjum
upplýsingum og sjónarmiðum að. Í þessu
felst einnig virðing fyrir einstaklingnum
og getu hans til að vera virkur aðili í lausn
vandamálsins.
Að efla trú á eigin getu
(support self-efficacy).
Öflugasti hvati hegðunarbreytinga er trú
á eigin getu. Þrátt fyrir að einstaklingur
hafi vilja til að breyta mun hann ekki gera
það ef hann hefur ekki trú á að hann geti
breytt. Hlutverk fagaðila er því að aðstoða
einstaklinginn til að öðlast eða auka trú á
eigin getu þannig að hann finni von og
styrk til að yfirvinna þær hindranir sem á
vegi hans verða.
Breytingatal
Mikilvægasta hlutverk fagaðila er að
skynja breytingatal og fylgja því eftir þegar
það kemur fyrir. Öll tjáning einstaklings-
ins um þrá til að breyta, getu, nauðsyn
og skuldbindingu sem tengist tiltekinni
breytingu, flokkast undir breytingatal.
Einstaklingar eru líklegri til að breyta
þegar þeir tala um það sjálfir en þegar
einhver annar (eins og fagaðili, vinur eða
ættingi) leggur það til. Við þekkjum þetta
sjálf, þegar við ræðum um vandamál
okkar við einhvern annan hefur lausnin
meira gildi fyrir okkur þegar hún kemur
frá okkur sjálfum. Í Áhugahvetjandi
samtali er breytingatal andstæða
viðnáms. Hlusta þarf vel eftir tíðni og
styrk breytingatals þar sem ekki má
knýja fram skuldbindingu of fljótt áður en
einstaklingur er tilbúinn. Það getur valdið
mótþróa og aukið viðnám (Amrhein ofl.
2003, Miller og Rollnick 2002).
Samtalstækni
Stuðst er við ákveðna samtalstækni
til að byggja upp og auka árangur af
Áhugahvetjandi samtali. Samtalstækni
er farvegur fyrir einstakling til að tjá sig
meira og kafa dýpra ofan í vangaveltur
eða vandamál sín.
Speglanir eru notaðar markvisst til að
miðla samhygð og tryggja réttan skilning
fagaðila á því sem fram hefur komið. Með
þeim getur einnig komið fram ný merking
eða efni í samtalinu eða þær gefið dýpri
og margbrotnari mynd af ummælum
einstaklings.
Opnar spurningar gefa færi á að kanna
nýjar slóðir og hvetja einstakling til að
skoða hluti og hugmyndir í öðru ljósi.
Samantektir eru notaðar til að draga fram
lykilþætti samtalsins og tengja saman
umræðuþætti.
Yfirlýstur stuðningur er verkfæri fagaðila
til að efla trú einstaklingsins á eigin getu
og draga fram styrkleika hans.
Könnun á fræðsluþörf og samþykki
fyrir upplýsingagjöf. Fagaðili biður
ávallt um leyfi áður en hann ráðleggur
eða veitir upplýsingar, eða spyr um
þekkingu viðkomandi á efninu þannig er
stuðlað að samvinnu og samtalið verður
hnitmiðaðra.
Hægt er að skipta Áhugahvetjandi
samtali í tvo hluta þó þeir geti skarast.
Í fyrri hluta þess er unnið með tvíbendni
til að einstaklingur nái áttum og innri
áhugahvöt til breytinga er dregin fram
og efld. Seinni hlutinn miðar að því að
styrkja skuldbindingu við breytingu og
þróa framkvæmdaráætlun í samvinnu við
einstaklinginn (Miller og Rollnick 2002).
Áhugahvetjandi samtal í
starfsendurhæfingu
Fáar rannsóknir hafa verið gerðar á
notkun Áhugahvetjandi samtals í ráðgjöf
í starfsendurhæfingu en niðurstöður
þeirra lofa góðu (Larson og félagar 2007,