Ársrit um starfsendurhæfingu - 2010, Page 44
44 www.virk.is
A
TV
IN
N
U
LÍ
F
ATVINNULÍF
starfsmenn fá styrki til líkamsræktar,
trúnaðarlæknir hittir alla reglulega og allir
fá ferska ávexti daglega.
Raunveruleg úrræði, öllum
til góða
Fyrirtækið hefur ýmis úrræði fyrir
starfsmenn með skerta starfsgetu.
Barnshafandi konur eru fluttar í störf við
hæfi, ef þær geta ekki lengur sinnt fyrra
starfi, léttavinna er í boði eftir veikindi
eða slys og eldri starfsmenn eiga kost á
að draga úr vinnuskyldu, án þess að það
komi niður á eftirlaunum. „Þau úrræði,
sem við þurfum oftast að grípa til, eru þau
sem snúa að eldri starfsmönnum okkar
og þeim sem missa vinnugetu vegna
heilsubrests,“ segir hún. „Því miður vita
vinnuveitendur oft ekki hvernig þeir eiga
að bregðast við slíkum málum og grípa
jafnvel til þess ráðs að búa til störf, sem
allir vita að eru í raun óþörf. Hér hefur
hins vegar lengi verið lögð áhersla á
raunveruleg úrræði, sem koma bæði
vinnuveitanda og starfsmanni til góða.
Í tilfelli þeirra, sem vilja draga úr vinnu
á efri árum, þá býðst þeim að minnka
vinnuskyldu sína um allt að 2 mánuði á
ári. Það gera þeir ýmist með því að vinna
hlutastarf, eða með því að taka 2 mánaða
auka frí í kringum sumarfrístímann.
Launin eru hins vegar jöfnuð út, svo fólk
er aldrei launalaust. Jafnframt greiðir
fyrirtækið áfram í lífeyrissjóð eins og um
fullt starf væri að ræða. Eldri starfsmenn
geta líka sótt um flýtt starfslok en þá geta
þeir hætt fyrr en ella hjá fyrirtækinu og
verið á sérstökum launum í allt að 3 ár.“
Það úrræði, sem einna mesta athygli
hefur vakið utan vébanda fyrirtækisins,
er starfsstöð innan álversins sem kallast
Smiðjan. „Í Smiðjunni starfa þeir sem ekki
hentar lengur að starfa á fyrri vinnustað
vegna umhverfis, vinnufyrirkomulags
eða af öðrum orsökum, um lengri eða
skemmri tíma. Sumir starfa í Smiðjunni
í skamman tíma, eftir veikindi eða slys,
en aðrir eftir mat hjá trúnaðarlækni.
Svo eru þeir, sem óska eftir að fá að
starfa þar vegna þess að þeir treysta sér
ekki lengur í vaktavinnu, vinnusvæðið
hentar þeim illa af ýmsum ástæðum eða
fjölskylduaðstæður kalla á breytingar.“
Smiðjan nýtur virðingar
Um 12 starfsmenn starfa í Smiðjunni
að jafnaði og þeir hafa nóg við að vera.
„Þeir sinna störfum, sem þarf hvort sem
er að leysa af hendi,“ segir Jakobína.
„Við höfum skilgreint ákveðin störf, sem
núna falla eingöngu undir Smiðjuna,
en væru annars unnin í kerskála eða
steypuskála. Þar má til dæmis nefna
sýnatöku, sem er hluti af gæðaeftirliti
steypuskálans, viðhald og þrif á
slökkviliðsbílum, áfyllingu og eftirlit með
handslökkvitækjum á öllu vinnusvæðinu,
útkeyrslu á ávöxtum og kaffi, sorphirðu
innan svæðis, flutning á hráefnum,
framleiðslu á háþrýstislöngum, hleðslu á
rafgeymum og ýmsa viðhaldsvinnu.“
Starfið í Smiðjunni er engin atvinnu-
bótavinna eða fórnarkostnaður, heldur
nauðsyn. „Smiðjan nýtur virðingar
sem einn af nauðsynlegu hlekkjunum í
keðjunni. Um starfsemi hennar er gerð
sértök rekstraráætlun og aðrar deildir
kaupa þjónustu hennar. Við vitum því
fyrir víst að starfsemin borgar sig. Hins
vegar er ekki gerð krafa um sama hraða
í starfi Smiðjunnar eins og annars staðar
innan girðingar, menn ganga ekki vaktir
og tekið er fullt tillit til þess ef starfsmenn
þurfa að vera fjarverandi um lengri eða
skemmri tíma vegna veikinda.“
Jakobína segir að víðast hvar sé það svo,
að álag aukist á aðra starfsmenn, ef einn
er oft fjarverandi vegna veikinda. „Slíkt
getur valdið óróa á vinnustað, enda ekki
sanngjarnt að störfin hlaðist á aðra. Við
bregðumst við þessu, ýmist með því að
flytja viðkomandi starfsmann í Smiðjuna,
eða með því að færa stöðugildi hans undir
Smiðjuna. Starfsmaðurinn getur þá verið
áfram á sinni starfsstöð, en hann tilheyrir
Smiðjunni. Þetta þýðir, að starfsstöð
hans getur ráðið einn starfsmann til
viðbótar og þannig er búið að koma í veg
fyrir óánægju vegna veikindafjarvistanna.
Fyrir starfsmanninn skiptir þetta miklu,
því hann fær að vera áfram á sínum
vinnustað .“
Á eigin forsendum
Jakobína segist fullviss um að margir
starfsmenn hefðu þurft að hætta
störfum, ef ekki væri boðið upp á þetta
úrræði. „Þessir starfsmenn eru ekki á
sjúkradagpeningum eða örorkulífeyri,
heldur ná að halda áfram að vinna á eigin
forsendum. Þeir hafa áfram hlutverki að
gegna. Þeir, sem eru fjarverandi vegna
veikinda, ætla oft að bæta fjarvistirnar
upp með því að leggja margfalt harðar
að sér þegar þeir snúa aftur til starfa. Í
Smiðjunni ríkir hins vegar fullur skilningur
á að menn verða að fara rólega af stað, á
meðan þeir eru að ná upp fyrri starfsgetu.
Í raun byggir þetta starf á sömu forsend-
um og Starfsendurhæfingarsjóður. Skert
starfsgeta þýðir ekki að fólk geti ekki lagt
sitt af mörkum áfram.“
Smiðjan í álverinu í Straumsvík er úrræði fyrir starfsmenn með skerta vinnugetu.
Smiðjan er rekin sem sérstök rekstrareining innan álversins og þarf að reka sig á núlli.
Vinna starfsmanna er seld út til annarra deilda og starfsmenn þurfa því að skrá sig í
verk, líkt og til dæmis iðnaðarmenn á verkstæðum. Deildin þarf því að mæta sömu
kröfum og aðrar deildir, en hraðinn er annar og verkefnin fara eftir
getu starfsmanna hverju sinni