Ársrit um starfsendurhæfingu - 2010, Blaðsíða 46
46 www.virk.is
A
TV
IN
N
U
LÍ
F
ATVINNULÍF
reiðhjól og þarf að dæla lofti í afturdekkið.
Þarna er nefnilega líka reiðhjólaverkstæði,
enda ferðast menn gjarnan á hjólum
innan svæðisins. Einn starfsmaður gerir
ekkert annað en að safna saman sorpi
á svæðinu, en álverið flokkar allt sorp og
það er síðan sótt af Gámaþjónustunni.
Jan Nielsen merkir bréfpokana, en
upplýsir um leið að hann hafi unnið á
vöktum í álverinu í 34 ár. Þá gafst hann
upp á því fyrirkomulagi, leiður á að vera
alltaf á skjön við fjölskyldu sína. „Ég
er búinn að vera hérna í Smiðjunni í 8
mánuði og þetta er allt annað líf fyrir
mig og fjölskylduna. Ég væri áreiðanlega
hættur að vinna ef ég hefði ekki komist
í Smiðjuna, vaktavinnan var orðin allt of
erfið fyrir mig,“ segir hann á forníslensku,
eins og hann kallar dönsk/íslenskuna
sína.
Handan við kaffistofu starfsmanna er
slökkvistöð álversins. Þar eru tveir slökkvi-
bílar álversins, ávallt viðbúnir ef á þarf
að halda. Smiðjumenn halda þeim
óaðfinnanlegum.
Eftirsóttur vinnustaður
Núna eru 13 starfsmenn í Smiðjunni,
en að meðaltali eru þar 12 manns. Þrír
hætta í sumar, en einn er þegar búinn að
fá vilyrði um að komast inn og fleiri vilja
gjarnan komast að. „Við tökum alltaf strax
á móti þeim sem þarfnast þess mest,“
segir Hjörtur. „Sumir stoppa bara stutt
og fara aftur í fyrri störf í verksmiðjunni
þegar þeir eru búnir að jafna sig eftir
veikindi eða slys. Aðrir vilja gjarnan flytja
sig hingað til frambúðar. Þeir eru orðnir
þreyttir og finna kannski að þeir eru
svifaseinni en þeir voru, en hér geta þeir
margt gott unnið.“
Sjálfur var Hjörtur á vinnuvélaverkstæði
álversins í 35 ár, en hann hóf störf þar
um leið og álverið tók til starfa, árið 1969.
Hann tók við verkstjórn í Smiðjunni fyrir
5 árum. Þar er unnið frá 8-16 á virkum
dögum. „Sumir vinna þrjá daga í viku,
aðrir fjóra, en flestir fimm. Það er allt í
lagi, við höfum þetta bara eins og hentar
hverjum og einum. Menn eru sumir
miklir sjúklingar eða eiga erfitt með að
vinna meira vegna veikinda heima fyrir.“
Hann segir gott andrúmsloft í Smiðjunni.
„Hérna æsir sig ekki nokkur maður vegna
ástandsins í þjóðfélaginu. Þetta eru
fullorðnir menn, sem kippa sér ekki upp
við slíkt. Þeir vilja bara fá að sinna sínu
og hafa tíma til að sinna fjölskyldunni. Við
vinnum þetta með gamla laginu, í hægð
og ró. Þótt menn úreldist á vöktum,
þá þýðir það ekki að þeir geti ekki lagt
sitt af mörkum. Hjá öðrum fyrirtækjum
væri kannski farið með þá út fyrir hlið,
en það tíðkast ekki hérna. Það er gott
að starfa hjá svona fyrirtæki.“ Magnús
Guðmundsson hefði þurft að hætta að
vinna. Hann gefur sér tíma til að líta
upp frá slöngugerðinni og upplýsir hvers
vegna hann er í Smiðjunni. „Ég varð fyrir
slysi árið 2001, var á hjóli innan svæðis
og vinnutæki ók aftan á mig,“ segir hann.
„Ég var að vinna á vélaverkstæðinu þegar
þetta var og þótt ég væri ekki lengi frá
vinnu kom í ljós að neðstu hryggjarliðir
höfðu skaddast, svo ég gat ekki sinnt
fyrri vinnu, enda er ekkei létt verk að
vera vélvirki í álveri. Mér leist strax vel
á að færa mig yfir í Smiðjuna og ég er
búinn að vera hérna í rúm 8 ár. Ef þetta
úrræði hefði ekki staðið til boða þá hefði
ég líklega þurft að hætta að vinna.“
Magnús, sem hefur starfað hjá álverinu
frá 1972, segir starfið fjölbreytt. Fyrir
utan slöngugerðina annast hann
slökkviliðsbílana, fyllir á slökkvitæki, fer
yfir reykköfunarbúnað og kæliherbergi
og svo mætti lengi telja. „Það koma
einstaka sinnum dauðir punktar, eins og
gerist líklega í flestum störfum. En það
stendur aldrei lengi, við finnum okkur
alltaf eitthvað að gera. Allt eru þetta störf,
sem þyrfti að vinna hvort sem er, svo við
finnum tilgang í öllu sem við gerum.“
Magnús verður 67 ára í sumar og þá
ætlar hann að láta af störfum. Honum
finnst ekki ósennilegt að þá haldi hann
sambandi við gamla félaga með því
að fara á mánaðarlega fundi þeirra á
kaffihúsi. „Ég fer héðan mjög sáttur.
Smiðjan er frábært framtak, sem skiptir
miklu máli. Ég er búinn að vera lengi hjá
þessum góða vinnuveitanda, en auðvitað
eru orðin kynslóðaskipti hérna. Núna
þekki ég alla vega ekki hvern mann á
svæðinu, eins og ég gerði áður fyrr! “
Magnús Guðmundsson að störfum í Smiðjunni