Ársrit um starfsendurhæfingu - 2010, Blaðsíða 58
58 www.virk.is
A
TV
IN
N
U
LÍ
F
ATVINNULÍF
1.
Skýr stefna og vinnureglur
Það er mikilvægt að hafa skýra stefnu og
vinnureglur varðandi fjarvistir úr vinnu.
Starfsmaðurinn þarf að vita við hvern
hann á að hafa samband, hvernig má og
á að hafa samband (t.d. símtal, eða tölvu-
póstur, SMS) og fyrirvara á tilkynningu
um fjarvist. Það þarf einnig að vera ljóst
hvenær krafist er læknisvottorðs og hvernig
tekið er á tíðum veikindafjarvistum.
Sanngirni og samræmi eru mikilvæg.
2.
Stuðningur
Það er mikilvægt að sýna starfsmanni
stuðning ef hann þarf að vera lengur
en einn til tvo daga frá vinnu vegna
veikinda. Hringdu og kannaðu hvort
vinnustaðurinn getur gert eitthvað. Láttu
starfsmanninn vita að hans er saknað.
Flestir eru viðkvæmari en ella þegar
þeir eru veikir eða slasaðir og því er
mikilvægt að sýna jákvæðan stuðning. Ef
einstaklingurinn finnur jákvæða strauma
frá vinnustaðnum langar hann fyrr að
fara aftur í vinnuna.
3.
Góð stjórnun
Það þarf að hvetja verkstjóra og aðra
stjórnendur til að viðhafa góða stjórnun
þegar kemur að veikindafjarvistum.
Þeir sem sýna starfsmönnum skilning,
stuðning og traust ná betri árangri en
þeir sem hugsa bara um framleiðnina.
Vænlegasta leiðin til árangurs er ekki
sú sem einblínir á tapaðan vinnutíma
starfsmannsins.
4.
Svigrúm
Svigrúm til fjarveru án þess að um veikindi
sé að ræða þarf að vera til staðar. Æskilegt
er að bjóða starfsmönnum sveigjanlegt
vinnufyrirkomulag ef það er mögulegt.
Fólki er mikilvægt að geta viðhaldið
jafnvægi í einkalífi sínu án þess að þurfa
að tilkynna sig veikt. Rannsóknir hafa
sýnt að veikindafjarvistir aukast þegar
frí er í skólum og foreldraskyldur og
vinnuskyldur takast á um tíma fólks. Ef
hægt er, má leysa þetta með því að gefa
fólki færi á að vinna heima þegar vetrarfrí
eða starfsdagar eru í skólum. Þannig
geta foreldrar haft auga með börnunum
á sama tíma og þeir sinna starfi sínu.
Tíu ráð til að draga úr
fjarvistum vegna veikinda
Fyrirtæki sem vilja draga úr fjarvistum vegna veikinda geta nýtt sér reynslu og
þekkingu annarra í þessum efnum. Eftirfarandi tíu ráð hafa reynst vel: