Ársrit um starfsendurhæfingu - 2010, Page 60

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2010, Page 60
60 www.virk.is U P P LÝ S IN G A R UPPLÝSINGAR Verum virk Kynningarbæklingur VIRK heitir „Verum virk“. Í honum er stutt kynning á hlutverki og verkefnum Starfsendurhæfingarsjóðs. Einnig er fjallað um hvaða þjónusta er í boði, hvar hana er að finna og hverjir eiga rétt á þjónustu. Þessi bæklingur er líka til á ensku og heitir hann þá „Stay Active“. Úr veikindum í vinnu Bæklingurinn „Úr veikindum í vinnu“ er ætlaður einstaklingum sem eru með skerta starfsgetu og inniheldur hann ýmis góð ráð og fróðleik um mikilvægi vinnunnar í bataferlinu. Einnig er að finna í honum ýmsar upplýsingar um þjónustu VIRK og þjónustu ráðgjafa í starfsendurhæfingu. Allir einstaklingar sem koma til ráðgjafa fá þennan bækling afhentan. Útgáfa VIRK VIRK hefur gefið út kynningar- og fræðsluefni fyrir bæði starfsmenn og stjórnendur í atvinnulífinu. Hér er stutt kynning á því helsta. Hægt er að nálgast efnið á heimasíðu VIRK (www.virk.is) en einnig er hægt að hafa samband við skrifstofu VIRK og fá senda bæklinga og fræðsluefni eftir þörfum.

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.