Ársrit um starfsendurhæfingu - 2010, Blaðsíða 62
www.virk.is
UPPLÝSINGAR
Áhugavert erlent efni á vef VIRK
1. Managing Long-term Sickness
Absence and Incapacity for Work
Leiðbeiningar um meðferð einstaklinga
sem eiga í langtíma veikindum og búa
við skerta starfsgetu. Leiðbeiningarnar
eru hugsaðar fyrir atvinnurekendur,
heilbrigðisstarfsfólk, einkum í heilsugæslu,
aðra sérfræðinga og stjórnendur sem
bera beina eða óbeina ábyrgð á stjórnun
veikindafjarvista. Leiðbeiningarnar eru
líka áhugaverðar fyrir trúnaðarmenn á
vinnustöðum og stéttarfélög.
(National Institute of Clinical Excellence in
Health (NICE) Mars 2009)
2. Recovery, Rehabilitation and
Retention, Maintaining a Productive
Workforce.
Hlutverk þessara leiðbeininga er að
aðstoða starfsmannastjóra og aðra sem
hafa með mannaforráð að gera við að:
Styðja starfsmenn sem eiga við að •
stíða sálræn eða félagsleg vandamál
sem hindra þá í vinnunni
Endurhæfa starfsmenn sem hafa •
verið í veikindafjarvist um tíma vegna
streitu eða geðrænna vandamála
Viðhalda ráðningarsambandi við •
einstaklinga sem búa við fötlun eða
skerðingu sem krefst aðlögunar á
vinnuumhverfi og starfi viðkomandi,
þannig að starfsmaðurinn geti lagt
sitt af mörkum og unnið eftir getu
(Chartered Institute of Personnel and
Development (CIPD) 2004)
3. Transforming Disability into Ablity,
Policies to Promote Work and Income
Security for Disabled People.
Skýrsla sem greinir frá hvernig þjóðir
OECD hafa náð markmiðum um
að gera fötluðu fólki og fólki með
skerta starfsgetu kleift að taka þátt
í samfélaginu og ná mannsæmandi
fjárhagslegu sjálfstæði. Í skýrslunni
er komist að þeirri niðurstöðu að
hugmyndafræði sem byggir á virkni,
snemmbæru inngripi, færri hindrunum
gegn því að vinna, gagnkvæmri ábyrgð
og þátttöku atvinnurekenda sé vænleg til
framtíðar.
(OECD 2003)
4. Red Flags/Green Lights: A Guide to
Identifying and Solving Return-to-Work
Problems
Leiðbeiningar um hvernig á að auka líkur
á árangursríkri endurkomu fólks til vinnu.
Í rannsóknunum sem leiðbeiningarnar
byggja á var kannað hvers vegna sumir
starfsmenn sem lenda í slysi og fá bætur
til langs tíma koma aftur til vinnu eins og
vænta má en aðrir ekki.
(Workplace Safety & Insurance Board
Research Advisory Council. 2009)
5. Sygefravær – en fælles udfordring.
Regeringens handlingsplan for at
nedbringe sygefraværet.
Dönsk skýrla um forvarnir og viðbrögð
við veikindafjarvistum. Í inngangi ritar
Claus Hjort Frederiksen Beskæftigels-
esminister. „ Ég tel að mörg okkar haldi
að ef við erum veik, sé það besta sem
við getum gert, að vera ekki í vinnunni
og vera heima í friði og ró til að ná heilsu
á ný. En það er alls ekki alltaf svo. Það
getur í mörgum tilfellum verið heppilegra
fyrir þann veika að vera virkur til dæmis
með því að vinna nokkra tíma á viku eða
vinna að öðrum verkefnum í vinnunni en
vanalega“
(Regeringen 2008)
6. What Works at Work?
Skýrsla byggð á rannsóknum um hvaða
inngrip á vinnustöðum skila árangri til að
koma í veg fyrir algenga heilsuvanda hjá
starfsmönnum.
Helstu niðurstöður:
Inngrip þar sem starfsmaður og •
atvinnurekandi unnu saman að
lausnum voru árangursríkari en ef
samvinna var ekki til staðar
Vinnustaðir geta byggt upp •
árangursríkar forvarnir gegn
algengum heilsuvanda
Viðhorf starfsmanna skipta máli •
ekki síður en heilsa þeirra. Hugræn
atferlismeðferð getur skilað árangri
Inngrip þurfa að vera heildræn og •
taka til bæði einstaklingsbundinna
þátta og þátta á vinnustað
Samskipti og samvinna eru mikilvæg•
Núverandi aðferðir í fjarvistastjórnun •
byggja ekki alltaf á gagnreyndri
þekkingu
Rannsaka þarf betur áhrif •
vinnutengdra úrræða til að skilja
flókið samspil vinnu og heilsu
(Corporate Document Services)
7. Working for a Healthier Tomorrow.
Skýrsla um leiðir til að endurbæta
kerfi velferðar og heilsu í Bretlandi með
hliðsjón af fólki á vinnualdri. Mikið hefur
verið vísað í þessa skýrslu og hefur
mörgum úrbótaverkefnum verið hrundið
af stað í kjölfar hennar.
(TSO 2008)
8. Vocational Rehabitiliation, What
Works for Whom and When
Skýrsla sem tekur saman niðurstöður
450 rannsókna og skýrslna um árangur
og kostnað í starfsendurhæfingu og er
gagnreyndur grunnur fyrir stefnumótun
í starfsendurhæfingu. Gefnar eru
leiðbeiningar um hvaða úrræði eru
líkleg til árangurs, fyrir hvern og
hvenær. Niðurstaðan er meðal annars
að vinnutengd starfsendurhæfing sé
mikilvæg, en hún miðar að því að hjálpa
fólki að vera áfram í vinnu eða fara aftur í
vinnu, í samstarfi við atvinnurekendur og
heilbrigðiskerfi.
(TSO 2008)
Dæmi um áhugavert erlent um starfsendurhæfingu á vef VIRK
www.virk.is
62
U
P
P
LÝ
S
IN
G
A
R