Morgunblaðið - 26.10.2019, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 2019
Vínlandsleið 16
Grafarholti
urdarapotek.is
Sími 577 1770
Opið virka daga kl. 09.00-18.30
og laugardaga kl. 12.00-16.00
Hugsaðu vel um
húðina þína – alltaf
Bjóðum fjölbreytt úrval húðvara, jafnt fyrir
andlitið, hendurnar, fæturna og kroppinn allan.
Fylgdu okkur á facebook
Skipholti 29b • S. 551 4422
Fyrir
íslenska
veðráttu
Traust
í 80 ár
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
gisting.dk
499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími)
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900
Kaupmannahöfn
S. 414 7000 · Glæsibær / Vesturhús, 2. hæð · 104 Reykjavík · www.augljos.is
Það gleður okkur
að tilkynna að
Elva Dögg Jóhannesdóttir
augnlæknir hefur
hafið störf á
augnlæknastofunni
Augljósi
Tímapantanir í síma
414 7000
Elva Dögg Jóhannesdóttir
Augnlæknir
Tilkynning
Skákdeild Ungmennafélagsins
Fjölnis í Grafarvogi undir forystu
Helga Árnasonar, formanns deild-
arinnar, er nú að hefja átak í Graf-
arvogshverfi og á Stórhöfðasvæð-
inu við að skákvæða fyrirtæki og
stofnanir þar um slóðir. Í boði er
taflsett ásamt stafrænni skák-
klukku af bestu gerð á móti stuðn-
ingi við starf deildarinnar. Átakið
hófst formlega nú í vikunni í útibúi
Íslandsbanka við Höfðabakka þar
sem Brynjólfur Gíslason aðstoðar-
útibússtjóri fékk afhent taflsett til
vinnustaðarins. Á móti kemur
stuðningur frá bankanum til barna-
og unglingastarfs sem byggist á
reglulegum æfingum og skákmót-
um heima og heiman.
„Ekki er langt síðan taflborð
voru til staðar á nánast öllum
vinnustöðum og starfsmönnum
gafst tækifæri á að brjóta upp
hversdaginn og efla starfsandann
með því að tefla í matar- og kaffi-
tímum. Tímarnir hafa breyst, tafl-
borðin horfið fyrir tölvunum og
snjalltækjunum. Eftir stendur samt
að flestir Íslendingar kunna ýmis-
legt fyrir sér í skáklistinni og þörf-
in á að þjálfa og efla hugann aldrei
meiri,“ segir Helgi sem lengi var
skólastjóri í Rimaskóla í Grafar-
vogi.
Skákdeild Fjölnis var stofnuð ár-
ið 2004 að frumkvæði þeirra Helga
Árnasonar skólastjóra og Hrafns
Jökulssonar, forseta Hróksins. Var
þetta gert í samstarfi við Guðlaug
Þór Þórðarson, nú utanríkis-
ráðherra, sem á þeim tíma var for-
maður Fjölnis. Skákdeildinni hefur
vaxið fiskur um hrygg ár frá því
sem var fyrir ári og er nú eitt af öfl-
ugustu skákfélögum landsins; þá
ekki síst barna- og unglingastarfið,
enda hefur hróður þess borist víða.
sbs@mbl.is
Tafl og klukka
með þökk fyrir
stuðninginn
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Stuðningur Helgi Árnason, til vinstri, afhendir Brynjólfi Gíslasyni í
Íslandsbanka við Höfðabakka skáksettið góða.
Skákvæða fyrirtæki og stofnanir
í Grafarvogi og á Stórhöfðasvæðinu
Sala á jólabjór og öðrum jólavörum
hefst fimmtudaginn 14. nóvember í
Vínbúðunum. Alls verða 78 tegundir
jólabjórs á boðstólum í ár og hafa
þær aldrei verið fleiri. Í fyrra voru
um sextíu tegundir jólabjórs til sölu.
Fjölgunin er því umtalsverð sem er
áhugavert í ljósi þess að sala dróst
saman í fyrra.
Sigrún Ósk Sigurðardóttir, að-
stoðarforstjóri ÁTVR, segir í svari
við fyrirspurn Morgunblaðsins að
ekki sé endalaust pláss í Vínbúð-
unum til að taka á móti jólabjór. „En
dreifingin er að sjálfsögðu mismun-
andi. Við reynum eins og mögulegt
er að koma á móts við þá sem hafa
áhuga á að bjóða jólabjór til sölu í
Vínbúðinni. Hefðbundin dreifing
miðast við 60 tegundir en það sem er
umfram þann fjölda verður til sölu í
Skútuvogi. Þannig að allar tegund-
irnar verða fáanlegar þar, þ.e. Vín-
búðinni Skútuvogi.“
Meðal forvitnilegra nafna á jóla-
bjór í ár eru Djús Kristur, Bjúgna-
krækir, Áramótakorkur, Hóhóhólí-
sjitt og Jólaálfur. hdm@mbl.is
78 tegundir af jólabjór í ár
Morgunblaðið/Eggert
Jólabjór Sala hefst um miðjan nóv-
ember í Vínbúðum um allt land.
Úrvalið aldrei verið meira Sala hefst 14. nóvember