Morgunblaðið - 26.10.2019, Síða 18

Morgunblaðið - 26.10.2019, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 2019 AVS rannsóknasjóður hefur að markmiði að styrkja verkefni, sem stuðla að auknu verðmæti íslensks sjávarfangs og styrkja samkeppnishæfni íslensks sjávarútvegs og fiskeldis. Sjóðurinn auglýsir nú eftir umsóknum í verkefni 2020 með þetta að markmiði. Skilafrestur umsókna er til kl. 20, 2. desember 2019. Umsóknum ber að skila rafrænt á netfangið avs@byggdastofnun. is og bréflega á póstfangið Byggðastofnun v/AVS rannsóknasjóður í sjávarútvegi, Ártorgi 1, 550 Sauðárkrókur. Vakin er athygli á því að umsóknum þarf bæði að skila rafrænt og bréflega. Styrkir sem sjóðurinn veitir falla undir tvo flokka: a. Styrkir til rannsókna- og þróunarverkefna Styrkir til afmarkaðra rannsókna- og/eða þróunar- verkefna, sem falla að markmiðum sjóðsins. Veittur er styrkur til eins árs í senn og skal í umsókn gera grein fyrir verkþáttum og fjármögnun. Hver styrkur getur numið allt að tólf milljónum króna. Hægt er að sækja um styrki til umfangsmeiri verk- efna (framhaldsverkefna), sem unnin eru á lengri tíma, eða allt að þremur árum, en sækja þarf um styrk á hverju ári. Hafi verkefnið áður verið styrkt, þarf að gera grein fyrir framvindu þess áður en styrkumsókn er afgreidd. b. Smá- eða forverkefni Hægt er að sækja um styrki til smærri verkefna eða til að undirbúa stærri verkefni á sviði rannsókna og/eða þróunar. Styrkupphæð getur numið allt að þremur milljónum króna og skal verkefnið unnið innan tólf mánaða. Um alla styrki gildir að framlag sjóðsins má ekki fara fram yfir 50% af heildarkostnaði og sjóðurinn tekur ekki þátt í að styrkja fjárfestingar Nánari upplýsingar og umsóknarblað er að finna á heimasíðu sjóðsins www.avs.is AVS rannsóknasjóður í sjávarútvegi ∙ Ártorgi 1 ∙ 550 Sauðárkrókur ∙ sími 455 5400 ∙ www.avs.is AVS rannsóknasjóður í sjávarútvegi starfar á vegum Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis AVS rannsóknasjóður í sjávarútvegi auglýsir eftir umsóknum Ólga innan lögreglunnar ar til Reykjavíkur fólst í því að inn- leiða verklagið frá Suðurnesjum. Til þess að geta gert það tók hún mig með sér. Hún fékk mig lánaða til embættisins í eitt ár. Ég starfaði fyrst sem aðstoðarlögreglustjóri. Að ári liðnu var lánið framlengt í ann- arri stöðu, aðallögfræðingi embætt- isins. Lánið rann út 1. október síð- astliðinn og þá þurfti ég að velja hvað ég vildi gera,“ sagði Alda Hrönn, sem valdi að fara aftur til lögreglunnar á Suðurnesjum. Tilefni viðtalsins var svonefnt LÖKE-mál, en þar var Öldu Hrönn gefið að sök að hafa misbeitt lög- regluvaldi. Settur héraðssaksóknari rannsakaði aðkomu Öldu Hrannar að máli lögreglumanns á höfuð- borgarsvæðinu og tveggja annarra manna meðan hún var yfirlögfræð- ingur lögreglunnar á Suðurnesjum. Samkvæmt heimildum blaðsins var Sigríður Björk vel inni í málinu. Sakaður um uppflettingu Lögreglumanninum var gefið að sök að hafa flett upp nöfnum 45 kvenna í málaskrárkerfi lögreglu. Málið gegn honum og tveimur öðrum var fellt niður. Samkvæmt heim- ildum blaðsins hafði Alda Hrönn fengið upplýsingar frá vinkonu sinni. Alda Hrönn hafði svo rætt við fyrr- verandi unnustu mannsins og svo hafið rannsókn án þess að færa málið til bókar samkvæmt rannsókn- arreglum. Taldi settur héraðs- saksóknari Öldu Hrönn hafa brotið gegn starfsreglum en erfitt væri að sanna hvort það mætti rekja til ásetnings eða gáleysis. Við rannsóknina afhenti lögreglu- maðurinn ýmis trúnaðargögn. Þar mátti meðal annars finna afrit af samskiptum lögreglumannsins við trúnaðarvin sinn. Tilefnið var að lög- reglumaðurinn varð fyrir árás geð- veiks pilts en síðar á sömu vakt var ekið á lögreglubifreið hans. Deildi hann þessu með nánum vini sínum. Ríkissaksóknari ákvað að halda áfram með þann ákærulið eftir að ákæruliður varðandi LÖKE-kerfið var felldur niður. Hæstiréttur sneri síðar við dómi Héraðsdóms og sak- felldi lögreglumanninn fyrir brot á þagnarskyldu. Var lögreglumann- inum ekki gerð refsing. Samkvæmt heimildum blaðsins var kurr meðal lögreglumanna með þessi málalok. Bogi Nilsson, settur ríkis- saksóknari, staðfesti ákvörðun setts héraðssaksóknara um að fella mál Öldu Hrannar niður. Fram kom á mbl.is að í niðurstöðu sinni hefði Bogi sagt að hvorki lögreglustjórinn á Suðurnesjum né embætti ríkis- saksóknara, sem Alda hafði leitað samráðs við í málinu, hefðu beint málinu í farveg til samræmis við ákvæði lögreglulaga. „Þá er sér- staklega tekið fram að rannsókn á hendur Öldu hafi ekki hafist fyrr en eftir að tvö ár voru liðin frá því að rannsókn Öldu í málinu, sem kær- endur telja vera refsiverða, lauk. Samkvæmt lögum fyrnast sakir á meintum brotum á tveimur árum og væru þau einnig fyrnd ef háttsemi Öldu hefði varðað við lög,“ sagði í frétt mbl.is. Sjálf lýsti hún í Frétta- blaðinu því umkomuleysi sem því fylgdi að vera sakborningur í tvö ár. Samkvæmt heimildum blaðsins hefur dregið úr samskiptum Öldu Hrannar og Sigríðar Bjarkar eftir að LÖKE-málinu lauk. Mun Sigríð- ur hafa haldið fjarlægð á málið. Lögreglumenn fá bætur Í október 2018 dæmdi Hæstirétt- ur að ríkinu bæri að greiða tveimur lögreglumönnum bætur vegna breytinga á störfum þeirra. Báðir störfuðu á höfuðborgarsvæðinu undir stjórn Sigríðar Bjarkar. Annar þeirra var áðurnefnd Aldís Hilmarsdóttir aðstoðaryfirlög- regluþjónn, sem starfaði áður hjá fíkniefnadeild lögreglunnar. Í dómsorði Hæstaréttar var fjallað um þá ákvörðun Sigríðar Bjarkar að gera breytingu á störfum Aldísar: „Sönnunarbyrði um að gætt hafi verið málefnalegra sjónarmiða við töku ákvörðunar þeirrar, sem málið snýst um, hvílir á stefnda. Engin skjalleg samtímagögn, svo sem fundargerðir eða minnisblöð, liggja fyrir í málinu um gang mála við vinnu áðurnefnds innleiðingarhóps [vegna skipulagsbreytinga]. Hefur stefndi ekki sýnt fram á að áfrýjandi [Aldís], sem átti sæti í hópnum fyrir hönd þeirrar deildar er hún gegndi yfirmannsstöðu í, hafi ekki sinnt vinnu sinni þar sem skyldi … Við töku framangreindrar ákvörðunar mátti lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu vera ljóst að hún var til þess fallin að vera meið- andi fyrir áfrýjanda, sem í áranna rás hafði unnið sig til metorða innan lögreglunnar, eins og lýst er að framan, og verið falin aukin ábyrgð fáeinum mánuðum áður en ákvörð- unin var tekin. Vó ákvörðunin því að æru áfrýjanda og persónu,“ sagði í dómsorðum. Vegið að starfsheiðri og æru Um mál hins lögreglumannsins sagði orðrétt í dómi Hæstaréttar: „Stefndi hefur starfað sem lög- reglumaður frá árinu 2000 og má ráða af gögnum málsins að hann hafi verið metnaðarfullur og farsæll í störfum sínum. Með ákvörðun lög- reglustjóra var vegið mjög að starfs- heiðri hans og æru.“ Umræddum lögreglumanni var veitt lausn um stundarsakir í janúar 2016 vegna ætlaðra brota í starfi. Maðurinn kærði ákvörðun lögreglu- stjórans til innanríkisráðuneytisins, sem felldi ákvörðunina úr gildi með úrskurði í júlí sama ár. Sagði þar að „ekki hafi verið gætt meðalhófs við töku ákvörðunarinnar og brotið hafi verið gegn rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga við meðferð máls- ins“. Áður hafði rannsókn héraðs- saksóknara lokið með því að málið var látið niður falla. Ekkert hefði komið í ljós sem benti til að maður- inn hefði gerst brotlegur í starfi. Í niðurstöðu héraðssaksóknara var vikið að því að svo virtist sem samskiptaörðugleikar væru innan fíkniefnadeildar. Bar við minnisleysi Í dómsorðum var líka fjallað um málsmeðferð Sigríðar Bjarkar. „Ákvörðun um lausn frá embætti um stundarsakir er íþyngjandi ákvörðun og bar lögreglustjóra í því ljósi að rannsaka til hlítar og af hlut- lægni þær ávirðingar sem bornar höfðu verið á stefnda. Slík rannsókn fór ekki fram … Hún kvaðst heldur ekki muna niðurstöður innanhúss- athugunar [sem] send var ríkis- saksóknara og mun meðal annars hafa orðið grundvöllur þess að ríkis- saksóknari ákvað að hlutast til um að rannsókn færi fram á ætluðum brotum stefnda. Hún kvaðst þó hafa ,,flett“ skýrslunni, en aldrei verið „inni í neinu af þessu“,“ sagði meðal annars í dómsorðum. Naut trausts ráðherrans Eftir að dómarnir féllu í október í fyrra kvaðst Sigríður Andersen, þá dómsmálaráðherra, bera fullt traust til lögreglustjórans. Dómarnir væru „brýning um að menn þurfa að gæta meðalhófs. Þannig að þessir dómar hafa ekki áhrif á hennar stöðu,“ sagði ráðherrann. Það gerðist svo í fyrravor að Sig- ríður Björk sendi samstarfsmönnum sínum bréf þar sem hún boðaði breytingar á stöðum yfirmanna hjá embættinu. Hún kvaðst ekki skynja óróleika vegna þessa. Í júní síðastliðnum svaraði þáver- andi dómsmálaráðherra, Þórdís Kol- brún Reykfjörð Gylfadóttir, fyrir- spurn frá Söru Elísu Þórðardóttur, Pírötum, um greiðslur lögreglu- stjórans á höfuðborgarsvæðinu til sérfræðinga. M.a. var spurt um greiðslur vegna ætlaðra eineltis- mála. „Sérfræðikostnaður vegna ætlaðra eineltismála liggur ekki fyrir þar sem ekki er hægt að greina heildarkostnað ætlaðra eineltis- mála,“ sagði í svarinu. Að sama skapi væri „ógerlegt“ að svara í stuttu máli fyrirspurn um kostnað við tilfærslur á starfsmönnum hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu á embættistíma Sigríðar Bjarkar. Á þeim tíma hafa sex ráðherrar farið með dómsmál. Að minnsta kosti þrír dómar féllu gegn ríkinu í tíð Sigríðar Bjarkar sem lögreglustjóri á Suðurnesjum. Tveir lögreglumenn á Suður- nesjum unnu mál gegn ríkinu sem þeir höfðuðu vegna framgöngu Sig- ríðar Bjarkar sem lögreglustjóra. Annað málið tengdist því sjónar- miði Sigríðar Bjarkar að starfs- lokasamningur, sem forveri hennar í embætti lögreglustjóra á Suður- nesjum gerði, væri ógildur. Hæsti- réttur staðfesti greiðsluskyldu embættisins. Lögreglumaðurinn hafði glímt við erfiðan sjúkdóm. Var veitt lausn úr embætti Hitt málið varðaði þá ákvörðun lögreglunnar á Suðurnesjum að leysa lögreglumann frá störfum sem glímdi við heilsubrest. Var uppsögnin dæmd ólögmæt fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Þá varðar eitt málið m.a. máls- meðferð. Í nóvember 2015 felldi Hæstiréttur dóm í fjársvikamáli sem varðaði þroskaskertan mann. Fundið var að rannsókn lögregl- unnar á Suðurnesjum, sem Sigríður Björk stýrði þá. Tvö og hálft ár hefðu liðið frá því að rannsókn lauk þar til ákæra var gefin út og tæp sex ár frá kæru. Taldi Hæstiréttur að sá „fáheyrði dráttur á rannsókn málsins og saksókn [væri] vítaverð- ur“ og í „hróplegu ósamræmi“ við stjórnarskrána og mannréttinda- sáttmála Evrópu. „Þegar gætt er að þeim óhæfi- lega drætti sem orðið hafði á með- ferð málsins hjá lögreglustjóranum á Suðurnesjum, áður en ákæran var gefin út, var enn brýnni ástæða en ella til að meðferð þess drægist ekki frekar en þörf krafði. Til- greindur dráttur á málsmeðferð- inni fyrir Hæstarétti er því jafn- framt ámælisverður. Af þessum sökum verður ekki hjá því komist að skilorðsbinda að fullu refsingu ákærða á þann veg sem í dómsorði greinir,“ sagði í dóms- orðum. Síðar átti Hæstiréttur eftir að finna að málsmeðferð í embætt- istíð Sigríðar Bjarkar á höfuðborg- arsvæðinu. Hæstiréttur átelur vinnubrögðin  Óhóflegur dráttur í fjársvikamáli  Lögreglan á Suðurnesjum tapaði málum Morgunblaðið/Þórður Hæstiréttur Málsmeðferð Sigríðar Bjarkar kom til kasta dómsins. Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lög- reglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, segir embættið hafa náð miklum árangri við að vinna á málafjölda. „Við erum með ágætis mála- stöðu. Málum hefur fjölgað mikið. Fleiri mál koma inn en áður, en á móti hafa afköst aukist verulega. Það höfðu mörg mál safnast upp á ákærusviði en við fórum í að laga það. Þetta voru aðallega um- ferðarmál. Við tókum þau út fyrir sviga og fórum í sérmeðferð á þeim. Þannig að við erum komin á mjög fínan stað á ákærusviðinu og hefur framleiðnin aukist úr 600 málum í 900 mál á mánuði. Sama gildir í almennu deildinni,“ segir Sigríður Björk um árangurinn. Hún segir aðspurð starfsandann góðan hjá lögreglunni á höfuð- borgarsvæðinu. „Starfsandinn hefur aldrei verið betri. Við höfum aldrei skorað betur í könnunum og stjórnun var í fjórum af fimm bestu svörunum okkar í stofnun ársins. Það er hins vegar gríðarleg óánægja með laun og það er mjög mikið álag. Við erum því að gera Gallup-könnun til að mæla álagið. Við erum að gera þriðju jafnréttis- könnunina til að meta hvernig báð- um kynjum líður. Konum hefur fjölgað mikið hjá okkur. Við þurf- um að gæta þess að þetta sé vinnustaður sem hentar öllum.“ Starfsandinn hefur aldrei verið betri hjá lögreglunni LÖGREGLUSTJÓRI BENDIR Á ÁRANGUR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.