Morgunblaðið - 26.10.2019, Síða 32
32 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 2019
W W W. S I G N . I S
Fornubúðir 12, 220 Hafnarfjörður │ S: 555 0800 │sign@sign.is
Dreifing búsetu á
stórhöfuðborg-
arsvæðinu hefur auk-
ið vegalengdir milli
heimila og vinnu-
staða. Þessi þróun og
nokkurra ára stöðnun
í uppbyggingu um-
ferðarmannvirkja
hafa svo stöðugt aukið
umferðarþungann og
lengt biðraðir öku-
tækja um alla borg.
Gegnumumferð
um íbúðarhverfi eykst
Við þessar aðstæður eiga óþolin-
móðir ökumenn það til að flýja um-
ferðarteppur á stofn- og tengibraut-
um inn í þröngar götur íbúðarhverfa
þar sem börn eru á ferð til og frá
skólum sínum. Umferðartalning
sýndi t.d. umtalsverða aukningu um-
ferðar gegnum Haga- og Melahverfið
í kjölfar breytinga á Hofsvallagötu.
Fylgjast verður vel með þessari
óheillaþróun og sporna við henni.
Öryggi barna
Borgaryfirvöld hafa svo bætt gráu
ofan á svart með því að standa öðrum
sveitarfélögum langt að baki í sam-
ræmdum umferðarmerkingum í sam-
ræmi við umferðarlög. Þetta á ekki
síst við um merkingar gangbrauta.
Þetta er forkastanlegt ábyrgðarleysi
gagnvart öryggi og velferð barna. Í
stað þess að huga að öryggi þeirra og
gera ungum börnum auðveldara að
læra á umhverfi sitt og hættur þess
með einföldum, skýrum og lögbundn-
um merkingum gangbrauta hafa
borgaryfirvöld sofið á verðinum með
margbreytilegum, óskýrum og jafn-
vel ruglandi merkingum.
Það er löngu tímabært að gera sér-
stakt átak í skýrri, samræmdri og
lögboðinni merkingu gangbrauta og
gönguleiða fyrir börn í nágrenni skól-
anna þeirra. Merkingarnar þurfa að
vera auðskildar, greinilegar og vel
sýnilegar. Fjarlægja þarf gróður og
aðra fyrirstöðu sem byrgir sýn, hvort
sem er fyrir börnum og vegfarendum
eða ökumönnum. Bæta þarf lýsingu
og lengja tíma sem
kveikt er á götuljósum.
Útivist, hreyfing
og öryggi
Það er beinlínis
ábyrgðarhluti að hvetja
börnin og foreldra þeirra
til að ganga eða hjóla í
skólann ef við gerum
ekkert til að bæta öryggi
í hvívetna. Allt of mörg
dæmi hafa verið um
óhöpp og slys á börnum á
síðustu mánuðum en fram undan er
nú skammdegið með myrkri og verri
færð.
Ef það er raunverulegur ásetn-
ingur borgaryfirvalda að breyta
ferðavenjum og stuðla að útivist og
hreyfingu þarf jafnframt að huga að
öryggi þeirra sem það gera. Stefnu-
leysi í umferðarmerkingum vinnur
gegn þessum ásetningi. Borgaryfir-
völd hafa sýnt ótrúlegt ábyrgðarleysi
í þessum efnum á meðan öll önnur
sveitarfélög á landinu fara eftir lög-
um og fyrirmælum varðandi gatna-
framkvæmdir og umferðar-
merkingar.
Stór orð um miklar
framkvæmdir
Nú er mikið talað um að bretta upp
ermar og fara í stórframkvæmdir
samkvæmt samgöngusáttmála, en
þar er hvergi að finna eina einustu
ábendingu um að taka á þessu vanda-
máli: Öryggi barna og annarra veg-
farenda inni í hverfunum, á íbúðagöt-
unum og við skólana.
Kostnaður við þessar einföldu lag-
færingar, að samræma og einfalda
merkingar á gönguleiðum barna í
skólahverfum, hleypur ekki á tugum
milljarða. En hvað er mikilvægara en
að tryggja öryggi barna í umferð-
inni?
Ómerkilegar
merkingar
Eftir Örn
Þórðarson
Örn Þórðarson
»Fylgjast verður vel
með þessari óheilla-
þróun og sporna við henni.
Höfundur er borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins.
Fjármálaráðherra
hefur lagt fram frum-
varp í annað sinn um
að stofna þurfi þjóð-
arsjóð til þess að vera
einskonar áfallavörn
fyrir þjóðarbúið ef á
þurfi að halda í fram-
tíðinni. Nota á arð úr
fyrirtækjum lands-
manna á næstu árum
til að leggja í sjóðinn.
Ætlunin er að þegar mest og best
verði þá standi sjóðurinn í 3-400
milljörðum króna.
Er skynsemi fólgin í því að
stofna þjóðarsjóð þegar þjóðin
skuldar fleiri hundruð milljarða?
Vegakerfið komið
að þolmörkum
Á sama tíma berast af því fréttir
að þeir fjármunir sem lagðir voru
til á núverandi fjárhagsári hafi ekki
dugað LHS og því þurfi
að skera niður. Heil-
brigðiskerfið er fjár-
svelt og hefur verið um
alltof langt skeið. Það
vantar ekki bara inn-
spýtingu í mannvirki,
tæki og tól heldur þarf
einnig að endurskoða
kjarasamninga við
heilbrigðisstéttina.
Læknar, hjúkrunar-
fræðingar og sjúkralið-
ar eru að niðurlotum
komnir og geta ekki
lengur staðið vaktina
undir öllu því álagi sem starfinu
fylgir. Vegakerfið er löngu komið að
þolmörkum hins skynsamlega nið-
urskurðar og orðið hættulegt á
stórum köflum. Svo ég tali nú ekki
um kjör eldri borgara og öryrkja
sem þarf að stórbæta.
Húsið lekur og
gluggarnir ónýtir
Hverjum dettur í hug að spara
peninga ef vera kynni að einhvern-
tímann í framtíðinni gæti eitthvað
hræðilegt gerst en á meðan á söfn-
uninni stendur lekur húsið því þakið
og gluggarnir eru ónýtir?
Ætlum við að leggja til hliðar
fjármuni á meðan við stóraukum
skattheimtu heimilanna með ým-
iskonar gjöldum og sköttum svo
sem vegtollum? Ætlum við að liggja
með 3-400 milljarða inn á banka-
reikning á meðan fólkið okkar týnir
lífi vegna fjársveltis í geðheilbrigð-
ismálum?
Forgangsröðum betur
Við þurfum að forgangsraða bet-
ur en raun ber vitni um, það getur
ekki orðið forgangsatriði að leggja
fjármuni til hliðar þegar við skerum
niður hjá sjúkum og veikum. Við
þurfum oftar að setjast niður og
hugsa hvað myndi góður, skyn-
samur og grandvar maður (bonus
pater familias) gera.
Þjóðarsjóður í
skugga skattheimtu
Eftir Hallfríði
Hólmgrímsdóttur
Hallfríður
Hólmgrímsdóttir
»Ætlum við að leggja
til hliðar fjármuni á
meðan við stóraukum
skattheimtu heimilanna
með ýmiskonar gjöldum
og sköttum svo sem veg-
tollum?
Höfundur er bæjarfulltrúi
Miðflokksins í Grindavík.
Ert þú einstak-
lingur sem langar til
að láta gott af sér leiða
en á erfitt með að gera
það einn? Þá er Kiw-
anishreyfingin rétti
staðurinn fyrir þig.
Kiwanis er hreyfing
sjálfboðaliða sem vinn-
ur að góðum málefnum
í þágu barna, en þetta
geta margir gert sam-
an á öflugan hátt. Kiwanishreyfingin
var stofnuð í Detroit í Bandaríkj-
unum 21. janúar 1915. Fyrst var
hreyfingin starfandi í Bandaríkj-
unum og Kanada og óx hratt en átta
árum eftir stofnun var heitinu breytt
í „Kiwanis International“. Hreyf-
ingin starfaði samt í Bandaríkjunum
og Kanada í hálfa öld áður en ákveð-
ið var að breiða hana út til annarra
heimsálfa og þjóða eða árið 1961.
Hreyfingin kom til Norðurlanda 10.
janúar 1964 þegar fyrsti klúbburinn
var stofnaður í Osló í Noregi. Aðeins
fjórum dögum síðar var fyrsti klúbb-
urinn stofnaður á Íslandi en það var
Kiwanisklúbburinn Hekla í Reykja-
vík og var hann níundi klúbburinn
sem stofnaður var í Evrópu.
Hvað er Kiwanis? Kiwanis er al-
þjóðleg þjónustuhreyfing manna og
kvenna sem hafa það að markmiði að
taka þátt í að bæta samfélagið og
láta gott af sér leiða undir kjörorð-
inu: „Hjálpum börnum heimsins“. Í
nútímasamfélagi er nóg af verk-
efnum til að takast á við í þágu barna
og má þar t.d. nefnda fíkniefnavanda
og umhverfismál sem virðast liggja á
okkar unga fólki sem hefur áhyggjur
af framtíðinni. Þar getum við komið
að og tekið til hendinni með aðstoð
landsmanna og ekki síður þín kæri
lesandi. Gakktu til liðs við okkur!
Til að skilgreina Kiwanis í stuttu
máli þá er þetta þjónustuhreyfing en
ekki afþreyingarfélag og eignast fé-
lagar vini í góðu starfi hreyfingar-
innar. Kiwanis starfar fyrir opnum
tjöldum enda er hér ekki um leyni-
legan félagsskap að ræða, en við vilj-
um einmitt vekja athygli á starfinu
til þess að afla okkur stuðnings í
þjónustustarfi okkar. Kiwanishreyf-
ingin leggur áherslu á manngildi og
eflingu félagskenndar meðal félag-
anna. Hver kiwanis-
klúbbur reynir að þjóna
sem best því samfélagi
þar sem hann starfar. Í
Kiwanis eru kvenna-,
karla- og blandaðir
klúbbar og er hreyf-
ingin ávallt tilbúin að
aðstoða við stofnum
nýrra klúbba og taka
við nýjum félögum. Það
þarf aðeins að senda
póst á kiwanis@kiw-
anis.is.
Það verkefni Kiw-
anishreyfingarinnar sem þekktast er
í samfélaginu er K-lykillinn sem
seldur er undir nafni landssöfnunar-
innar „Gleymum ekki geðsjúkum“
en með þessu átaki hefur hreyfingin
styrkt geðverndarmál fyrir á fjórða
hundrað milljóna og vakið athygli á
þessum sjúkdómi sem hefur verið
mikið feimnismál þó svo að hann
komi nánast við hverja einustu fjöl-
skyldu í landinu. Kiwanis var að
styrkja BUGL og PIETA-samtökin
með samtals 20 milljónum núna í
september sem kom úr síðustu söfn-
un á K-lyklinum.
Hjálmaverkefnið þekkja allir
landsmenn, en markmið verkefn-
isins er að stuðla að öryggi barna í
umferðinni með því að gefa öllum
fyrstubekkingum grunnskóla reið-
hjólahjálma. Þetta var gert að lands-
verkefni 2003 og hefur aðalstyrkt-
araðili verkefnisins um árabil verið
Eimskip.
Á heimsvísu hefur hreyfingin unn-
ið þrekvirki í mörgum málefnum
eins og að útrýma joðskorti í heim-
inum, en þetta verkefni var í sam-
starfi við UNICEF. Hreyfingin hef-
ur einnig unnið að stífkrampa-
verkefni MNT (Maternal/Neonatal
Tetanus) með UNICEF en það
snýst um að lækna fæðingar-
stífkrampa til bjargar mæðrum og
ófæddum börnum þeirra í 39 lönd-
um. Í dag eru 13 lönd ennþá að berj-
ast við stífkrampa en í 26 löndum
hefur tekist að eyða honum.
Á landsvísu viljum við bæta við
fleiri verkefnum í þágu barna og til
að efla starf okkar og gera hreyf-
inguna öflugri. Í þágu samfélagsins
þurfum við á þér að halda og til að fá
nánari upplýsingar um þessa öflugu
hreyfingu sem Kiwanis er má fá nán-
ari upplýsingar á www.kiwanis.is og
einnig ef þið þekkið kiwanisfólk þá
hafið endilega samband og fáið að
mæta á fund ykkur til gamans og
kynningar á Kiwanis.
Einnig vil ég þakka fyrir hönd
hreyfingarinnar allan þann stuðning
við safnanir og starf okkar sem
landsmenn hafa veitt okkur í gegn-
um tíðina. „Gakktu til liðs við okk-
ur.“
Tómas Sveinsson
» Á landsvísu viljum
við bæta við fleiri
verkefnum í þágu barna
og til að efla starf okkar
og gera hreyfinguna öfl-
ugri.
Höfundur er umdæmisstjóri Kiwanis-
umdæmisins Ísland-Færeyjar.
Eftir Tómas
Sveinsson
Gakktu til liðs við okkur!
Bílar