Morgunblaðið - 26.10.2019, Qupperneq 38
38 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 2019
✝ Hjálmar Sum-arsveinn Sig-
marsson fæddist 24.
apríl 1919 í Svína-
vallakoti í Unadal í
Skagafirði. Hann
lést á Heilbrigð-
isstofnun Norður-
lands á Sauðárkróki
13. október 2019.
Foreldrar hans
voru Sigmar Þor-
leifsson, f. 15.10.
1890, d. 27.2. 1968, og Kristjana
Sigríður Guðmundsdóttir, f.
14.9. 1889, d. 10.3. 1945.
Hjálmar var fjórði í röð átta
bræðra. Bræður hans eru: Guð-
mundur, f. 3.5. 1913, d. 13.7.
1993, Ingólfur, f. 23.7. 1914, d.
16.2. 1993, Finnbogi, f. 31.10.
1916, d. 9.8. 2004, Sigurbjörn M.,
f. 2.4. 1922, d. 23.4. 2015, Vil-
helm, f. 5.3. 1925, Jakob, f. 25.2.
1928, d. 7.4. 1996, og Valgarð
Hólm, f. 24.11. 1931, d. 7.2. 2018.
Eiginkona Hjálmars var Guð-
rún Hjálmarsdóttir frá Kambi í
Deildardal í Skagafirði, f. 23.12.
1928, d. 8.1. 2018. Foreldrar
hennar voru Hjálmar Pálsson, f.
3.3. 1904, d. 15.4. 1983, og Stein-
unn Hjálmarsdóttir, f. 11.6. 1905,
d. 15.7. 1942.
barnabörn. 8) Guðfinna Hulda, f.
30.1. 1961, maður hennar er
Steen Johansson. Hún á þrjá
syni. 9) Haraldur Árni, f. 10.10.
1963, eiginkona hans er María
Pétursdóttir. Þau eiga þrjár dæt-
ur og tvö barnabörn. 10) Hjálmar
Höskuldur, f. 20.9. 1965, kona
hans er Linda Friðriksdóttir.
Hann á þrjú börn og tvö barna-
börn.
Á æskuheimili Hjálmars var
mikið sungið og spilað á harm-
onikku og fleiri hljóðfæri milli
sjósóknar og bústarfa. Hjálmar
hneigðist snemma til búskapar.
Þegar hann var 22 ára tók hann
þriðjung af jörðinni Enni á Höfð-
aströnd á leigu. Fjórum áður síð-
ar keypti hann Hólkot og Svína-
vallakot í Unadal og lagði
jarðirnar saman undir Hólkot,
sem varð framtíðarheimili stór-
fjölskyldunnar. Vorið 1950 flutti
til hans Guðrún Hjálmarsdóttir
frá Kambi í Deildardal og varð
hans lífsförunautur og varð þeim
tíu barna auðið. Í Hólkoti bjuggu
Hjálmar og Rúna frá árinu 1950
til 2015, þar til þau fluttu á Heil-
brigðisstofnun Norðurlands á
Sauðárkróki, þar sem þau
dvöldu síðustu æviár. Guðrún
lést 8. janúar árið 2018, eftir
tæplega 70 ára samveru þeirra
hjóna.
Útför Hjálmars fer fram frá
Sauðárkrókskirkju í dag, fyrsta
vetrardag, 26. október 2019,
klukkan 13. Jarðsett verður í
Hofi á Höfðaströnd.
Börn Hjálmars
og Guðrúnar eru: 1)
Steinunn, f. 29.4.
1951, eiginmaður
hennar er Hafsteinn
Ragnarsson. Þau
eiga þrjú börn og
níu barnabörn. 2)
Kristjana Sigríður,
f. 1.10. 1952, eig-
inmaður hennar er
Valdimar Birgisson.
Þau eiga þrjú börn,
tíu barnabörn og fjögur barna-
barnabörn. 3) Guðmundur Uni
Dalmann, f. 14.2. 1954, kona
hans er Erla Unnur Sigurð-
ardóttir. Hann á þrjú börn, tvö
barnabörn og tvö barna-
barnabörn. 4) Halldór Ingólfur,
f. 30.1. 1955, eiginkona hans er
Hulda Gísladóttir. Þau eiga fjög-
ur börn og fimm barnabörn. 5)
Ingibjörg Ásta, f. 10.3. 1956, eig-
inmaður hennar er Sigurður
Þorleifsson. Þau eiga fjögur
börn og fjögur barnabörn. 6)
Guðrún Hjálmdís, f. 25.1. 1958,
eiginmaður hennar er Grétar
Jakobsson. Þau eiga fjögur börn
og sjö barnabörn. 8) Jakobína
Helga, f. 20.8. 1959, eiginmaður
hennar er Þórarinn Þórðarson.
Þau eiga fjögur börn og átta
Elsku pabbi okkar.
Þegar við lokum augunum og
hugsum um þig sjáum við þig
standa í dyragættinni í Hólkoti
glaðan og brosandi, þannig
munum við minnast þín um
ókomna tíð. Glaðværð þín, já-
kvæðni og viðhorf til lífsins
fylgdi okkur í gegnum uppvaxt-
arárin og kenndi okkur að líta
alltaf á björtu hliðarnar í lífinu.
Ávallt varstu tilbúinn að styðja
okkur og hvetja. Óendanlegt
þakklæti þitt fyrir lífið og fólkið
þitt lýsir þér best, stoltur af
barnahópnum og afkomendum
þínum sem var þitt ríkidæmi.
Þú varst hæverskur og háttvís í
allri framgöngu og vinamargur.
Æskuheimili okkar, Hólkot
og dalurinn, sem þú valdir var
þín og okkar paradís þar sem
við undum okkur vel. Allt þitt líf
snerist um stóra heimilið og bú-
skapinn.
Velferð heimilisins og dýr-
anna þinna var þér ætíð mik-
ilvæg og þú sást til þess allt
blómstraði sem best.
Óhætt er að fullyrða að heim-
ili þitt og mömmu hafi verið
kærleiksríkt og faðmur ykkar
alltaf opinn okkur og öllu fólk-
inu ykkar.
Sérstaklega sýnduð þið þakk-
lætið og faðm ykkar yfir því að
fylgja okkur svona lengi og er-
um við ykkur einnig þakklát
fyrir þá fylgd og faðm.
Elsku pabbi okkar, nú ertu
kominn til mömmu og nú eruð
þið sameinuð á ný. Með hjart-
ans þökk, og minningarnar
munu hlýja okkur um ókomna
tíð.
Við kveðjum þig með ljóði
Erlu Jónsdóttur frá Kambi:
Á hólnum stendur heiðursvörð,
horfir yfir sína jörð.
Þekkir bæði móa og börð,
mýrardrög og fjallaskörð.
Hér býr dalahöfðinginn,
heiðursmaður gestrisinn.
Drottinn blessi daginn þinn,
dyggðum prýddur Hjálmar minn.
Hvíldu í friði, elsku pabbi
okkar.
Þín börn
Steinunn, Kristjana, Guð-
mundur, Halldór, Ingi-
björg, Guðrún Hjálmdís,
Helga, Hulda, Haraldur og
Hjálmar Höskuldur.
Hjálmar
Sigmarsson
✝ Þuríður El-ínborg Haralds-
dóttir fæddist á
Gufuskálum á utan-
verðu Snæfellsnesi
25. mars 1945. Hún
andaðist á gjör-
gæsludeild Land-
spítalans við Hring-
braut 22. september
2019 eftir stutt veik-
indi.
Blóðforeldrar
hennar voru Ingólfur Janus Ís-
ólfsson, verslunarmaður í
Reykjavík, f. 3. mars 1906 á
Stokkseyri, d. 2. nóvember 1969,
og Margrét Lydía Þórðardóttir
Theil, f. 15. janúar 1919 á Gufu-
skálum, Snæfellsnesi, d. 8. sept-
ember 1946. Systkin sammæðra:
Lárus Ágústsson, f. 5. nóvember
1943.
Kjörforeldrar hennar voru
þau Haraldur Briem Ólafsson
bankafulltrúi í Búnaðarbanka Ís-
lands, Reykjavík, f. 12. júlí 1909 á
Fáskrúðsfirði, d. 17. júlí 1989, og
Viktoría Margrét Ísólfsdóttir,
bankastarfsmaður í Seðlabanka
Íslands, f. 11. apríl 1902 á Stokks-
eyri, d. 4. september 1998.
Við eins og hálfs árs aldur lést
móðir Þuríðar og flutti hún í kjöl-
farið með móðurömmu sinni til
uðina þar sem hún var þunguð af
frumburði sínum.
Þuríður hélt heimili ásamt
Snorra eiginmanni sínum fyrst
við Miklubraut, síðan í kjall-
araíbúð í húsi foreldra sinna og
að lokum við Kleppsveg þar sem
fjölskyldan bjó er Ingólfur,
seinna barn Þuríðar, fæddist.
Árið 1974 fluttist fjölskyldan
austur á Selfoss þar sem Þuríður
og Snorri byggðu hús er þau
bjuggu í fram til ársins 2004 en
innan þess tíma er bygging húss-
ins tók skaut Ólafur Tryggvi
Ólafsson, garðyrkjubóndi að
Stuðlum Ölfussi og bróðir Snorra
og eiginkona hans, Svanhildur,
yfir fjölskylduna skjólshúsi í lít-
illi íbúð tengdri pökkunar-
aðstöðu gróðurhúsanna.
Þuríður sinnti ýmsum störfum
á Selfossi, starfaði t.d. á skrif-
stofu Mjólkurbús Flóamanna, hjá
Pósti og síma og við aðhlynningu
á Ljósheimum. Þó svo að hús-
mæðrastarfið hafi skipað stærst-
an sess í lífi hennar sinnti hún
einnig ýmsum félagsmálum, t.d.
innan myndlistarfélags Árnes-
sýslu og Sjálfstæðiskvennafélags
Árnessýslu, þar sem hún var for-
maður þess félags um skeið.
Árið 2004 fluttu Þuríður og
Snorri í nýtt hús, að Fosstúni 6,
Selfossi, þar sem þau bjuggu
saman uns Snorri lést, en Þur-
íður dvaldist á Dvalarheimilinu
Ási í Hveragerði síðasta ár ævi
sinnar.
Útför Þuríðar hefur farið
fram í kyrrþey að ósk hennar.
Reykjavíkur. Ári
síðar var hún ætt-
leidd af kjörfor-
eldrum sínum, þ.e.
föðursystur sinni,
Margréti, og eigin-
manni hennar, Har-
aldi, er gengu henni
í móður- og föð-
urstað innan heim-
ilis þeirra að
Nökkvavogi 62 í
Reykjavík.
Innan heimilisins bjó einnig
ung frænka hennar, Þuríður Ís-
ólfsdóttir, sem hún leit ávallt á
sem systur sína.
Árið 1967 giftist Þuríður
Snorra Jens Ólafssyni rafvirkja-
meistara, f. 1944, d. 2015. Synir
þeirra eru: Haraldur Tryggvi
Snorrason, f. 1969, börn hans eru
Þuríður Eygló, f. 2002, Snorri
Þór, f. 2008, og Jóhannes Þór, f.
2011. Ingólfur Snorrason, f.
1974, en börn hans eru Viktoría,
f. 2005, og Ísabella María, f. 2007.
Áður hafði Snorri eignast
dótturina Margréti Urði og son-
inn Ottó Val Winther.
Þuríður starfaði í Landsbank-
anum Laugavegi 77 frá 1961-
1966, vann sem flugfreyja hjá
Loftleiðum 1966-1969 en vann á
skrifstofunni síðustu sex mán-
Margar góðar minningar
koma upp í hugann nú þegar Lilla
frænka mín og uppeldissystir
kveður. Föðursystir okkar, Mar-
grét Ísólfsdóttur, og Haraldur
Ólafsson maður hennar tóku
Lillu í fóstur og kom hún inn á
heimili þeirra í Nökkvavog 62.
Þar bjuggum við einnig, móðir
mín Alie Rita, föðuramma okkar
Þuríður Bjarnadóttir og föður-
bróðir, Eyjólfur Guðni.
Mikið var ég glöð að fá þessa
litlu frænku mína inn á heimilið,
hún var á þriðja ári, falleg með
ljósa lokka. Við urðum strax
miklir mátar. Lilla eignaðist
fljótt margar góðar vinkonur þar
sem mörg börn bjuggu í götunni.
Við undum okkur vel við leiki og
ferðir í nágrenninu og þar voru
enn bændur og búskapur, hestar,
kýr og kindur í nágrenninu, og
ófáar ferðir sem við fórum niður
að Elliðaám, þar sem við gleymd-
um okkur í leikjum.
Þegar við vorum um tvítugt
fórum við saman til London og
vorum þar um tíma, vildum
hressa upp á enskukunnáttu okk-
ar, það var mjög skemmtilegur
tími, hittumst við í fríum okkar
og gerðum margt skemmtilegt í
stórborginni.
Einnig vorum við flugfreyjur
hjá Loftleiðum nokkur ár.
Lilla giftist Snorra Ólafssyni
sumarið 1967, þau eignuðust tvo
syni, Harald og Ingólf. Þau
bjuggu í Reykjavík um tíma en
fluttu á Selfoss þegar synirnir
voru ungir og voru þar alla tíð.
Lilla var glaðlynd, skemmtileg
og mjög viðræðugóð, hafði áhuga
á mörgu, t.d. málaði hún mikið á
tímabili fallegar olíumyndir, átti
brennsluofn og bjó til marga fal-
lega hluti úr leir.
Nú að leiðarlokum vil ég þakka
henni allar góðar stundir sem við
áttum saman, sendum sonum
hennar og fjölskyldum innilegar
samúðarkveðjur.
Þuríður Ísólfsdóttir
og fjölskylda.
Þuríður
Haraldsdóttir
Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram-
kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Sigrún Óskarsdóttir,
guðfræðingur
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna Sálm. 9.11
biblian.is
Þeir sem þekkja
nafn þitt treysta
þér því að þú,
Drottinn, bregst
ekki þeim sem til
þín leita.
Innilegar þakkir til allra sem auðsýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
okkar ástkæru eiginkonu, móður,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
SONJU ÁSBJÖRNSDÓTTUR
Gunnlaugsgötu 18,
Borgarnesi.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Brákarhlíðar fyrir góða
umönnun og hlýju.
Örn R. Símonarson
Unnur Hafdís Arnardóttir Bjarni Knútsson
Ragnheiður Harpa Arnard. Guðjón Kristjánsson
Jónína Erna Arnardóttir Vífill Karlsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Sendum innilegar þakkir öllum þeim sem
sýndu okkur samúð, vináttu og hlýju vegna
andláts okkar ástkæru eiginkonu, móður,
tengdamóður, ömmu og langömmu
INGIBJARGAR STEFANÍU
EIÐSDÓTTUR,
Þorsteinsgötu 17,
Borgarnesi.
Guðmundur Ingimundarson
Margrét Guðmundsdóttir Jóhannes Ellertsson
Pálmi Guðmundsson Elín Magnúsdóttir
ömmubörn og langömmubörn
Innilegar þakkir fyrir veitta samúð og hlýhug
vegna andláts og útfarar okkar elskulega
eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og
langafa,
GARÐARS SIGURÐSSONAR
vélvirkjameistara.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Landspítalans,
heimahlynningar og líknardeildar LSH fyrir alúðlegt viðmót.
Erla Elísabet Jónatansdóttir
Jónatan, Jenný, Erla Björg, Hrafnhildur
Kristín og Drífa Garðarsbörn
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn
Við sendum innilegar þakkir öllum þeim
sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna
andláts og útfarar okkar elskulegu
HALLDÓRU KRISTÍNAR
MAGNÚSDÓTTUR
skólastjóra.
Unnar Þór Böðvarsson
Berglind Hákonardóttir Einar Viðar Viðarsson
Kristrún Hákonardóttir Jökull Másson
Böðvar Þór Unnarsson
Guðrún Unnarsdóttir
Jónas Unnarsson Sólveig Jónsdóttir
og barnabörn