Morgunblaðið - 26.10.2019, Page 47
ÍÞRÓTTIR 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 2019
Ljósmynd/@handbollslandslaget
Ég var ánægður með við-
brögð hjá Ólafi Helga Kristjáns-
syni þjálfara knattspyrnuliðs
FH á miðvikudagskvöldið þegar
hann var í hlutverki sérfræð-
ings í þætti Stöðvar 2 Sport
um Meistaradeild Evrópu sem
þá var í gangi.
Mark var skorað í einum
leikjanna og þáttastjórnandinn
spurði Ólaf strax hvernig hefði
staðið á því að heimaliðið í
umræddum leik fékk þetta
mark á sig. Hvar voru mistökin
gerð?
Ólafur kvaðst geta svarað
spurningunni á tvo vegu og
hann vildi nú frekar horfa á
þetta á þann veg að þarna
hefði verið um fallegt og vel
gert mark að ræða og fór í
framhaldi af því yfir aðdrag-
anda þess út frá sóknarleik
liðsins sem skoraði. Fyrir kurt-
eisissakir benti hann síðan á
einhverja mögulega yfirsjón í
varnarleik heimamanna.
Er þetta ekki málið? Það
virðist vera lenska þegar sér-
fræðingar eru fengnir til að
„kryfja“ leiki, sérstaklega í fót-
boltanum, að það er endalaust
verið að velta sér upp úr mis-
tökum.
Hvers vegna í ósköpunum
fengu þeir/þær á sig þetta
mark? Jújú, auðvitað gera ein-
hverjir mistök en án þeirra yrði
sennilega mest lítið um mörk í
þessari íþrótt!
Fótbolti er fyrst og fremst
skemmtun, þótt sumir telji
hann vera dauðans alvöru, og
það er skemmtanagildið sem á
að vera í fyrirrúmi. Líka í
„krufningum“ sérfræðinganna í
sjónvarpinu, enda ólíkt
skemmtilegra að heyra og sjá
þá útskýra fallegar sóknar-
fléttur en hversu faglega lið og
leikmenn fara að því að koma í
veg fyrir að mörk séu skoruð.
Án þess að lítið sé gert úr
þeim þætti leiksins.
BAKVÖRÐUR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Átök Sveinn
Jóhannsson tekur
Fredric Pettersson
föstum tökum í
Kristianstad í gær.
stórmóti og hann var ekki valinn í
landsliðshópinn fyrir leikina tvo við
Svía, en þegar Arnar Freyr Arnars-
son dró sig út úr hópnum var kallað í
Eyjamanninn sem virðist staðráðinn
í að fara með íslenska hópnum til
Malmö í janúar. Þessir menn og
fleiri hljóta að valda Guðmundi
hausverk þegar forföllin verða minni
fyrir EM.
Viggó flottur í fyrsta landsleik
Viggó Kristjánsson er annar mað-
ur sem kom inn í hópinn á lokametr-
unum, eftir að Arnór Þór Gunn-
arsson dró sig út, og þessi örvhenta
skytta sem nú er farin að pluma sig í
efstu deild Þýskalands komst mjög
vel frá sínu í gær. Viggó fékk að
spila síðasta korterið í þessum fyrsta
landsleik sínum og á þeim tíma tókst
Íslandi að snúa leiknum sér í vil, en
hann átti stóran þátt í þremur síð-
ustu mörkum Íslands. Aron Pálm-
arsson skoraði síðasta mark Íslands,
sem reyndist sigurmark eftir að
Viktor Gísli Hallgrímsson varði í tví-
gang vel en hann átti fínan leik fyrir
aftan frábæra vörn.
Sigvaldi Guðjónsson var marka-
hæstur Íslendinga með fimm mörk
en honum óx ásmegin í leiknum eftir
að hafa farið illa með góð færi í byrj-
un leiks, þegar Íslandi tókst ekki að
skora á fyrstu tíu mínútunum. Stað-
an var 13:11 fyrir Svía í hálfleik.
Haukur átti frábæra innkomu í sókn
Íslands í seinni hálfleik og Ólafur
Guðmundsson kom einnig sterkur
inn þá á sínum heimavelli, en fleiri
mætti nefna og heilt yfir var leikur
Íslands afar góður í vörn og sókn.
Dominos-deild karla
Grindavík – Njarðvík ........................... 78:66
Þór Ak. – ÍR .......................................... 75:85
Stjarnan – Keflavík ............................ 91:103
Staðan:
KR 4 4 0 368:316 8
Keflavík 4 4 0 374:341 8
Haukar 4 3 1 385:354 6
Valur 4 3 1 366:351 6
Stjarnan 4 2 2 367:350 4
Tindastóll 4 2 2 345:337 4
ÍR 4 2 2 330:353 4
Grindavik 4 1 3 337:349 2
Fjölnir 4 1 3 336:361 2
Þór Þ. 4 1 3 313:338 2
Njarðvík 4 1 3 310:321 2
Þór Ak. 4 0 4 309:369 0
1. deild karla
Hamar – Snæfell............................... 103:100
Staðan:
Hamar 4 4 0 402:334 8
Vestri 3 3 0 311:218 6
Breiðablik 4 3 1 377:324 6
Höttur 3 2 1 263:258 4
Álftanes 4 2 2 326:336 4
Selfoss 3 1 2 209:244 2
Snæfell 4 1 3 296:361 2
Sindri 3 0 3 246:276 0
Skallagrímur 4 0 4 291:370 0
Svíþjóð
Borås – Norrköping ............................ 82:76
Elvar Már Friðriksson skoraði 12 stig
fyrir Borås og átti 3 stoðsendingar.
Staðan: Borås 10, Luleå 10, Wetter-
bygden Stars 10, Köping Stars 8, Söder-
tälje 6, Jämtland 4, Djurgården 4, Norr-
köping 4, Umeå 4, Nässjö 2.
NBA-deildin
Detroit – Atlanta .............................. 100:117
Houston – Milwaukee ...................... 111:117
Golden State – LA Clippers ............ 122:141
og það er í raun svipað og Barcelona
og Real Madrid. Tvö lið til viðbótar
voru með aðeins minna og svo er ekki
langt í næstu þrjú lið. Í sumar náðu
rússnesku liðin í marga frábæra leik-
menn, bæði úr NBA og frá sterkum
liðum í Euroleague. Ég held að Rúss-
arnir viti líka að þeir þurfi að borga
meira til að fá leikmenn til sín heldur
en til dæmis spænsk eða frönsk lið.
Ekki að það sé neitt slæmt að búa
hérna. Það hefur komið mér
skemmtilega á óvart hversu vel ég
kann við mig í Kazan.“
Mikil íþróttaborg
Í Kazan og á því svæði búa um 1,2
milljónir manna. „Konunni minni líð-
ur einnig mjög vel hérna og þetta
hefur verið mjög þægilegt, en fólki
þótti undarlegt að við værum að
flytja til Rússlands. Kazan er flott
borg og hér er mikið úrval af veit-
ingastöðum og kaffihúsum sem mér
líkar vel. Í borginni er margt í boði
sem hentar ágætlega fyrir erlendu
leikmennina og fjölskyldur þeirra.
Hér eru til dæmis alþjóðlegir skólar
sem kenna á ensku ef þeir eru með
börn á skólaaldri. Hér mun hins veg-
ar verða kalt og mikill snjór. Sá árs-
tími er ekki byrjaður en mér skilst að
hér verði snjór og myrkur.
Kazan er mikil íþróttaborg.
Íshokkíliðið er mjög gott og blakliðið
er eitt það besta í Evrópu að mér
skilst. Viðar Örn (Kjartansson) spil-
ar með fótboltaliðinu hérna. Hjá okk-
ur er ekki pakkað af fólki á leikj-
unum enn sem komið er, því miður.
En fólk fylgist vel með flestum
íþróttagreinunum. Við höfum ekki
byrjað vel og það hefur áhrif. Fólk
mætir á stóru leikina og aðsóknin
mun aukast þegar líður á tímabilið,“
sagði Haukur, en höllin þar sem liðið
leikur heimaleiki sína tekur um 7.500
manns.
Fer rólega af stað
Haukur segist hafa farið rólega af
stað í leikjum UNICS og á eftir að
finna fjölina. „Ég spila mest þrist
hérna og leysi stöku sinnum af sem
fjarki í örfáar mínútur. Ég er ennþá
að finna mig á vellinum og átta mig á
hlutverki mínu í liðinu. Þegar ég kom
út var ég frá æfingum vegna ökkla-
meiðsla. Þetta byrjaði því hægt og
um daginn fékk ég fingur í augað og
himnan skrámaðist. Þá missti ég
viku úr og ég er því ekki búinn að
finna taktinn almennilega. Ég var
fenginn til liðsins sem skotmaður og
góður varnarmaður. Ég fæ því að
spila minn leik hjá liðinu en þarf bara
að koma mér í stand og finna minn
sess í liðinu. Ökklinn truflar mig lítið
en ég mun þurfa að fara aftur í
myndatöku síðar,“ sagði Haukur
Helgi í samtali við Morgunblaðið í
gær.
Stysta ferðalagið er 850 km
Haukur Helgi á ferð og flugi með UNICS Kazan Kann vel við sig í borginni
Á eftir að finna taktinn með liðinu Mikið fjármagn hjá rússnesku liðunum
Morgunblaðið/Hari
Sjóaður Haukur Helgi hefur búið í Bandaríkjunum, á Spáni, í Svíþjóð, Frakklandi og nú í Rússlandi.
KÖRFUBOLTI
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Haukur Helgi Pálsson, landsliðs-
maður í körfuknattleik, er á ferð og
flugi þessa dagana með liði sínu UN-
ICS frá Kazan í Rússlandi, ýmist í
deildakeppninni í ríkjum gömlu Sov-
étríkjanna eða í Evrópubikarnum.
„Fjarlægðirnar hérna eru fárán-
legar. Stysta vegalengdin fyrir okkur
til að fara í útileik er í Moskvu og
þangað eru samt 850 kílómetrar. Við
fljúgum því í alla leiki,“ sagði
Haukur, sem á væntanlega eftir að
hala inn vildarpunktana í vetur hjá
flugfélögunum. Hann segir engan
lúxus fylgja flugferðunum hjá liðinu.
„Nei, nei. Þetta er bara áætlunarflug
og maður er heppinn ef maður fær
sæti við neyðarútgang,“ sagði Hauk-
ur, en hér má skjóta því inn í fyrir
lesendur sem ekki þekkja til að
körfuboltamenn í þessum gæðaflokki
eru margir hverjir meira en tveir
metrar á hæð.
Haukur er sem dæmi staddur í
Minsk í Hvíta-Rússlandi og mun
spila þar í dag en í deildinni eru einn-
ig lið frá Kasakstan, Eistlandi, og
Póllandi fyrir utan þau rússnesku.
„Ekki er heldur alltaf beint flug í
boði og þetta er strembið. Við erum
búnir að vera meira eða minna á
ferðinni en ofan á þetta bætist að við
vorum bæði í Tyrklandi og Grikk-
landi á undirbúningstímabilinu.
Þetta tekur á líkamann. En nú tök-
um við þrjá leiki á útivelli í röð og því
mun koma tími þegar fleiri heima-
leikir eru á dagskrá.“
CSKA Moskva er stórveldi
Í deildinni eru þrettán lið og hún
er mjög sterk. Samkvæmt nýlegri
styrkleikaröðun á deildunum er ein-
ungis spænska deildin metin sterkari
af landskeppnunum í Evrópu. Rúss-
ar setja miklar fjárhæðir í félagsliðin
í íshokkí og einnig í knattspyrnunni
síðustu árin. Eru miklir peningar í
körfuboltanum í Rússlandi?
„Já, mér sýnist það. Um daginn
var birtur listi varðandi fjármagnið
sem félögin hafa úr að spila. Á heild-
ina litið eru líklega meiri peningar í
Rússlandi en í öðrum deildum í Evr-
ópu. CSKA Moskva getur eytt 32
milljónum evra samkvæmt listanum
Leicester hefur byrjað leiktíðina í
ensku úrvalsdeildinni í fótbolta af-
ar vel en liðið fór gjörsamlega á
kostum í gærkvöld þegar 10. um-
ferð hófst, með því að vinna South-
ampton á útivelli 9:0. Hér er ekki
um innsláttarvillu að ræða heldur
jafnaði Leicester metið yfir stærsta
sigurinn frá stofnun úrvalsdeild-
arinnar árið 1992.
Metið var áður alfarið í eigu Man-
chester United sem vann Ipswich
9:0 árið 1995, en það var á heima-
velli United. Í 131 árs sögu efstu
deildar Englands hefur ekki unnist
stærri útisigur en í gær.
Ben Chilwell kom Leicester yfir
á 10. mínútu og um leið fékk Ryan
Bertrand rautt spjald. Í kjölfarið
opnuðust flóðgáttir og skoruðu Ja-
mie Vardy og Ayoze Pérez til að
mynda þrennu hvor. sindris@mbl.is
AFP
Magnaðir Jamie Vardy og Ayoze Pérez skoruðu þrennu hvor í gærkvöld.
Leicester vann stærsta
útisigur í 131 árs sögu