Morgunblaðið - 26.10.2019, Síða 48

Morgunblaðið - 26.10.2019, Síða 48
48 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 2019 bæði í menntaskóla og háskóla í Bandaríkjunum. Þar af leiðandi er gott að vera innan um fólk sem maður þekkir í Haukum og spila með uppeldisfélaginu. Sérstaklega í Ólafssal, en með tilkomu hans hefur orðið heljarinnar breyting á aðstöð- unni hjá okkur. Ekki það að hinn salurinn á Ásvöllum hafi verið slæmur. Hann var alltaf frábær. En að vera í Ólafssal er önnur tilfinn- ing. Mér finnst það vera besti körfuboltavöllur landsins því þar er mjög gott að spila,“ sagði Lovísa, sem þróaði leik sinn í Bandaríkj- unum og segir að mestu viðbrigðin hafi verið að mæta líkamlega sterk- um leikmönnum. „Þar sem ég var úti í fimm ár væri skrítið ef maður hefði ekki tek- ið einhverjum framförum. En mér fannst ég taka fullt af skrefum fram á við, bæði hvað varðar sálræna þáttinn og líkamlega þáttinn. Hér heima hef ég alltaf verið í hávaxnari kantinum en á körfuboltavelli í Bandaríkjunum var ég bara nokk- urn veginn í meðalhæð. Ég þurfti að styrkja mig helling til að eiga mögu- leika í þessar stelpur því þær voru líkamlega sterkari en ég. Við spil- uðum á móti risastórum liðum eins og Duke sem dæmi. Liðum þar sem bestu bandarísku leikmennirnir í þessum aldursflokki eru.“ Hin bandaríska Seairra Barrett er einng að koma beint úr há- skólaboltanum og er rétt að hefja feril sinn í Evrópu. Lovísa telur að hún muni sækja í sig veðrið. „Hún er örugglega snöggasti leikmaður sem ég hef séð og er rosaleg íþróttakona. Kannski var erfitt fyrir hana að finna sig í Evrópu til að byrja með,“ sagði Lovísa enn frem- ur. Hafa spilað lengi saman í Haukum Morgunblaðið/Árni Sæberg Vörn Lovísa lokar á Salbjörgu Rögnu Sævarsdóttur í leik gegn Keflavík.  Lovísa góð viðbót hjá Haukum  Þurfti að styrkja sig í NCAA HAUKAR Kristján Jónsson kris@mbl.is Lovísa Björt Henningsdóttir leikur nú með Haukum á ný í Dominos- deildinni í körfuknattleik. Þótt Haukar hafi unnið þrjá af fyrstu fjórum leikjunum er Lovísa þeirrar skoðunar að liðið geti leikið betur en það hefur gert hingað til. „Þessi byrjun er nokkuð góð en við höfðum samt sem áður vonast eftir sigri í þessum fyrstu fjórum leikjum. Við unnum heldur ekki leikina eins örugglega og við vildum. Að sumu leyti er þetta því frekar hæg byrjun myndi ég segja, miðað við það sem býr í liðinu,“ sagði Lovísa þegar Morgunblaðið tók hana tali í gær. Hún segir að þótt breytingar hafi orðið á leik- mannahópnum hjálpi mjög til að langflestar séu aldar upp í Haukum. „Mér finnst ganga vel að hrista hópinn saman. Eins og fram hefur komið erum við flestallar uppaldar Haukastelpur. Við erum með tvo út- lendinga og tvær sem eru utan af landi en annars höfum við flestar æft saman síðan í minnibolta. Við þekkjumst innan sem utan vallar. Þar af leiðandi tók ekki langan tíma að hrista hópinn saman en það hef- ur tekið lengri tíma að ná því besta fram inni á vellinum.“ Lovísa dvaldi í mörg ár í Banda- ríkjunum og hafa körfuboltaunn- endur hér heima lítið séð til hennar frá því hún var á menntaskólaaldri. Lovísa er 24 ára og er orðin mjög öflug undir körfunni enda 185 cm á hæð. „Ég dýrka að vera komin heim. Ég hef ekki spilað hérna heima í fimm ár eftir að hafa verið MIÐHERJI: Lovísa Henningsdóttir Þjálfari: Ólöf Helga Pálsdóttir. Aðstoðarþjálfari: Bjarni Magn- ússon. Árangur 2018-19: 6. sæti. Íslandsmeistarar: 2006, 2007, 2009, 2018. Bikarmeistarar: 1984, 1992, 2005, 2007, 2010, 2014.  Haukar hafa unnið Skallagrím, Grindavík og Breiðablik en tapað fyrir Keflavík í fjórum fyrstu um- ferðunum. Næsti leikur er gegn Snæfelli á útivelli á miðvikudag. BAKVERÐIR: Anna Lóa Óskarsdóttir Auður Íris Ólafsdóttir Bríet Lilja Sigurðardóttir Dýrfinna Arnardóttir Janine Gujit Kolbrún Eir Þorláksdóttir Magdalena Gísladóttir Sigrún Björg Ólafsdóttir FRAMHERJAR: Eva Margrét Kristjánsdóttir Jenný Geirdal Kjartansdóttir Karen Lilja Owolabi Rósa Björk Pétursdóttir Seairra Barrett Stefanía Ósk Ólafsdóttir Lið Hauka 2019-20 KOMNAR: Auður Íris Ólafsdóttir frá Stjörn- unni Dýrfinna Arnardóttir, úr fríi Jenný Geirdal Kjartansdóttir frá Grindavík Lovísa Henningsdóttir frá Marist- háskóla (Bandaríkjunum) Seairra Barrett frá Pennsylvania- háskóla (Bandaríkjunum) FARNAR: Hrefna Ottósdóttir í Tindastól Lele Hardy, óvíst Breytingar á liði Hauka  Haukakonur hafa þétt raðirnar og eru líklegar í úrslitakeppni ef útlendingalottóið gengur upp.  Lovísa Hennings er komin heim frá Bandaríkj- unum og færir liðinu þroska og reynslu með Auði Írisi en síðan blómstra þessar ungu eins og Þóra Kristín, Eva Margrét, Rósa, Anna Lóa og Sigrún Björg. Það má alveg leiða að því líkum að ef Dýr- finna bætist við þá komist þær jafnvel enn hærra.  Þær þurfa að sýna þolinmæði og yfirvegun í bæði sókn og vörn og halda einbeitningu enda ungar enn þó að þær hafi reynslu. Ólöf Helga hefur gott lag á þeim og stýrir liðinu vel.  Þær munu eiga í erfiðleikum með stöðugleika eins og önnur ung lið og ætti það að vera eitt af markmiðum þeirra að ná honum. Margrét Sturlaugsdóttir um Hauka HANDKNATTLEIKUR Úrvalsdeild kvenna, Olísdeildin: KA-heimilið: KA/Þór – ÍBV................... L16 TM-höllin: Stjarnan – Valur .................. L16 Ásvellir: Haukar – Afturelding ............. L16 Kórinn: HK – Fram................................ L16 1. deild kvenna, Grill 66-deildin: Dalhús: Fjölnir – FH.............................. L18 Vestmannaeyjar: ÍBV U – Valur U....... S14 Kórinn: HK U – Selfoss.......................... S16 KÖRFUKNATTLEIKUR 1. deild kvenna: Blue-höllin: Keflavík b – Njarðvík ........ L16 Sauðárkrókur: Tindastóll – Hamar ...... L16 Dalhús: Fjölnir – Grindavík b ............... L16 Sauðárkrókur: Tindastóll – Hamar....... S13 ÍSHOKKÍ Íslandsmót karla, Hertz-deildin: Laugardalur: SR – SA....................... L17.45 Íslandsmót kvenna, Hertz-deildin: Egilshöll: Reykjavík – SA...................... L19 Egilshöll: Reykjavík – SA ................... S9.30 Enski boltinn á Síminn Sport Manchester City – Aston Villa ......... L11.30 Burnley – Chelsea ............................. L16.30 Newcastle – Wolves ................................ S14 Liverpool – Tottenham...................... S16.30 Norwich – Manchester United ......... S16.30 UM HELGINA!  Mikael Anderson, leikmaður U21 árs landsliðs Íslands í fótbolta, skoraði í öðrum leiknum í röð fyrir topplið dönsku úrvalsdeildarinnar Midtjylland í gær. Liðið hafði þá betur gegn Esbjerg á útivelli, 2:1. Mikael kom inn á á 61. mínútu í stöðunni 1:0-fyrir Esbjerg og skoraði sex mínútum síðar. Alexander Scholz, fyrrverandi leikmaður Stjörn- unnar, skoraði sigurmarkið. Midtjylland er með 35 stig í toppsætinu, sjö stigum meira en FC Kaupmannahöfn sem á leik til góða.  Ein reyndasta knattspyrnukona landsins, Dóra María Lárusdóttir, hef- ur gert nýjan samning við Íslands- meistara Vals. Dóra er leikjahæsta Valskona á Íslandsmótinu frá upphafi og á að baki 267 leiki í efstu deild. Auk þess hefur hún leikið 114 A-landsleiki. Dóra kom við sögu í öllum leikjum Vals á nýafstöðnu Íslandsmóti og var í liði ársins hjá Morgunblaðinu.  Víkingar í Reykjavík tilkynntu í gær að fjórir leikmenn hefðu skrifað undir framlengingu á samningum sínum við knattspyrnudeild félagsins í vikunni, til næstu tveggja ára. Það eru Davíð Örn Atlason, Dofri Snorrason, Erlingur Agnarsson og Nikolaj Hansen en þeir hafa allir spilað með liðinu undanfarin ár. Dofri lengst, eða frá 2013.  Knattspyrnudeild Fram hefur samið við framherjann Alexander Má Þor- láksson til næstu tveggja ára. Þessi 24 ára leikmaður skoraði 28 mörk í 21 leik fyrir KF í 3. deild í sumar.  Þrír Íslendingar verða á meðal kepp- enda á heimsmeistaramóti fatlaðra í frjálsíþróttum sem fer fram í Dubai 7.-15. nóv- ember. Bergrún Ósk Aðalsteinsdóttir úr ÍR, sem er heims- meistari ung- menna í lang- stökki, keppir í langstökki, 100 metra og 200 metra hlaupi, Stefanía Daney Guðmunds- dóttir, KFA/EIK, keppir í langstökki og 400 m hlaupi og Hulda Sigur- jónsdóttir úr Ármanni keppir í kúluvarpi. Eitt ogannað Knattspyrnumaðurinn Árni Vil- hjálmsson er á leiðinni í efstu deild Úkraínu á nýjan leik, en hann yfir- gaf pólska félagið Termalica Nie- ciecza á dögunum. Árni stóð sig vel hjá Chornomo- rets Odesa í Úkraínu fyrr á árinu, að láni frá pólska félaginu, og skor- aði sjö mörk í tólf leikjum. „Ég er að tala við lið í Úkraínu núna sem ég mun að öllum lík- indum skrifa undir hjá. Ég flýg út í næstu viku og fer í læknisskoðun,“ sagði Árni við Fótbolta.net í gær en gat ekki gefið upp nafn félagsins. Árni Vilhjálms aftur til Úkraínu Ljósmynd/chernomorets.odessa.ua Kunnugur staðháttum Árni Vilhjálmsson þekkir til í Úkraínu. Knattspyrnulið Fylkis hefur fengið góðan liðsstyrk ungra leikmanna. Eva Rut Ásþórsdóttir úr Aftureld- ingu og tvíburarnir úr Keflavík, Ír- is Una og Katla María Þórðar- dætur, hafa samið við félagið en allar þrjár eru þær í U19-landsliði Íslands. Katla hefur leikið 33 leiki með yngri landsliðum Íslands, Íris 22 og Eva 18, en allar eru fæddar árið 2001. Fylkir fékk einnig til sín Tinnu Harðardóttur sem er fædd árið 2003 og uppalin í Breiðabliki. Hún á að baki 9 leiki fyrir yngri landslið. Fylkir fær öflugar landsliðsstelpur Ljósmynd/Fylkir Reynslumikil Katla María hefur leikið 77 leiki í meistaraflokki.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.