Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Blaðsíða 7
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 2. tbl. 91. árg. 2015 5
Í 79 ár hafa félagsblöð hjúkrunarkvenna og hjúkrunarfræðinga, hvað sem blaðið
hefur heitið á hverjum tíma, verið prentuð í prentsmiðju. Fyrstu 11 árin var Tímarit
félags íslenskra hjúkrunarkvenna vélritað og fjölritað en frá 1936 hefur blaðið,
sem þá hét Hjúkrunarkvennablaðið, verið brotið um, fyrst í prentsmiðju og svo í
tölvuforriti. Blaðið verður áfram brotið um á svipaðan hátt en stærð og hönnun
breytist til að gera blaðið auðlesnara í spjaldtölvum og snjallsímum. Þessi breyting
er gerð til þess að laga blaðið að þeim tækjum sem félagsmenn nota nú til þess
að leita sér þekkingar og upplýsinga – tölvum, spjaldtölvum og snjallsímum – en
einnig til þess að draga úr kostnaði. Að auki gerir blaðið nú sitt til þess að fella
þurfi færri tré og aka þurfi minna af pappír á ruslahaugana.
Í þessu tölublaði er haldið áfram að fjalla um verkjameðferð og í þetta skipti er
farið yfir mat á langvinnum verkjum. Tvær áhugaverðar fræðigreinar eru í blaðinu.
Rannsóknir um reynslu sjúklinga af þjónustu hjúkrunarfræðinga fjalla oft um
afmörkuð svið, hér um komu á kynsjúkdómamóttöku, en yfirleitt má yfirfæra
niðurstöðurnar á það svið sem lesandinn vinnur á. Að vísu eru kynsjúkdómar
líklega meira feimnismál en margt annað, en spennuna við að fara á sjúkrastofnun
og léttinn, þegar niðurstaða er komin, könnumst við öll við. Hin fræðigreinin fjallar
um mál sem hefur verið mikið rætt meðal hjúkrunarfræðinga – lyfjagjöf án þess
að fyrir liggi fyrirmæli lækna. Hjúkrunarfræðingar stunda þetta til hagræðingar fyrir
sjúklinginn en allir vita að slík lyfjagjöf er á gráu, ef ekki svörtu, svæði lagalega
séð. Það er fagnaðarefni að umfang slíkrar lyfjagjafar hefur nú verið almennilega
rannsakað. Niðurstöður sýna að hjúkrunarfræðingar á Landspítala láta sjúklinga
hafa talsvert af verkjalyfjum og svefnlyfjum án fyrirmæla, sérstaklega á kvöldin.
Þær ætti að vera tilefni til skipulagsbreytinga, til dæmis að ávallt sé hægt að ná
í lækni að kvöldi til eða þá að veita hjúkrunarfræðingum almennt leyfi til þess að
ávísa slíkum lyfum eftir þörfum.
Í tilefni 90 ára afmælis blaðsins eru birtar nokkrar gamlar greinar. Minnt er á
gamlar umræður um að ávarpa hjúkrunarkonur með orðinu „systir“ en þetta
heiti náði aldrei útbreiðslu á Íslandi. Þá er grein eftir Þorbjörgu Árnadóttur en
hún er merkiskona í hjúkrunarstétt og mun ég segja frá hennar lífshlaupi síðar
á árinu. Hún var fyrsta hjúkrunarkonan sem hlaut meistaragráðu og ein af fáum
hjúkrunarfræðingum sem hafa skrifað skáldsögur.
Tímarit hjúkrunarfræðinga
Suðurlandsbraut 22
108 Reykjavík
Sími 540 6405
Bréfsími 540 6401
Netfang christer@hjukrun.is
Vefsíða www.hjukrun.is
Útgefandi: Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
Sími skrifstofu 540 6400
Ritstjóri og ábyrgðarmaður
Christer Magnusson
Tekið er á móti efni til birtingar á netfanginu
christer@hjukrun.is.
Leiðbeiningar um ritun fræðslu og fræðigreina
er að finna á vefsíðu tímaritsins.
Ritnefnd
Ásta Thoroddsen
Bergþóra Eyólfsdóttir
Dóróthea Bergs
Kolbrún Albertsdóttir
Oddný S. Gunnarsdóttir
Vigdís Hrönn Viggósdóttir
Þórdís Katrín Þorsteinsdóttir
Fréttaefni
Aðalbjörg Finnbogadóttir, Christer Magnusson,
Lára Borg Ásmundsdóttir o.fl.
Ljósmyndir
Bart Verweij, Christer Magnusson,
Evelyn Hockstein, Háskólinn á Akureyri,
Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands, Jonathan
Stern, Julie Meese Arbsa, Karl Eskil Pálsson o.fl.
Próförk og yfirlestur
Ragnar Hauksson
Auglýsingar
Guðrún Andrea Guðmundsdóttir, sími 540 6412
Hönnun
Þór Ingólfsson, grafískur hönnuður FÍT
Prentvinnsla
Litróf
Upplag 4100 eintök
Pökkun og dreifing
Póstdreifing
Kveðjum prentvélina
Með þessu blaði lýkur prentunarsögu
Tímarits hjúkrunarfræðinga. Næsta
tölublað, sem kemur um miðjan júní,
verður einungis gefið út rafrænt.
Christer Magnusson.
Ritstjóraspjall
Lægra lyfjaverð fyrir þig
Við erum Mylan
Eitt stærsta samheitalyfjafyrirtæki í heimi
M
YL150301