Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Blaðsíða 26

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Blaðsíða 26
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 2. tbl. 91. árg. 201524 Gæði hjúkrunarfræðináms og framþróun þess eru stöðugt viðfangsefni hjúkrunarfræðideildar. Í því skyni þarf að endurskoða reglulega námskrár í heild sinni. Slík vinna hefur verið í gangi við hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands (HÍ) undanfarin misseri og verður hér gerð grein fyrir breytingum á námskrá í grunnnámi og inntökuskilyrðum í deildina. Við endurskoðun námsins var tekið mið af þeim breytingum sem orðið hafa í samfélaginu, bæði hér á landi og erlendis. Skoðaðar voru skýrslur um hjúkrunarnám hérlendis og fyrirkomulag þess ásamt úttektum og ályktunum um framtíðarfyrirkomulag heilbrigðisþjónustunnar (Námsnefnd Hjúkrunarfræðideildar HÍ, 2013). Horft var til þess að öldruðum og langveikum fer fjölgandi (Velferðarráðuneytið, 2012) auk þess að kostnaðarvitund hefur aukist og meiri kröfur eru um að veita heilbrigðisþjónustu úti í samfélaginu fremur en á sjúkrastofnunum. Sérstök áhersla var lögð á að efla þann þátt námsins sem fjallar um færni í hjúkrun bráðveikra, langveikra og aldraðra ásamt Brynja Örlygsdóttir, Helga Jónsdóttir, Herdís Sveinsdóttir og Þóra Jenný Gunnarsdóttir, thoraj@hi.is. heimahjúkrun og heilsuvernd. Þessi svið hjúkrunar hafa stækkað og brýn nauðsyn er á að koma betur til móts við auknar þarfir á þessum sviðum. Einnig hafa framfarir í meðferð, flókinn tækjabúnaður, auknar kröfur um gæði og öryggi sjúklinga og kröfur um hagkvæmni haft í för með sér sérhæfðari meðferð sjúklinga og flóknari viðfangsefni hjúkrunarfræðinga. Þjálfun í klínískri ákvarðanatöku og efling siðferðilegrar dómgreindar hefur fengið aukið vægi. Þannig miðar klíníska kennslan að því að nemendur þroskist og nái hæfni sem verðandi hjúkrunarfræðingar til að starfa við flóknar, fjölþættar og breytilegar aðstæður (Benner o.fl., 2010). Þá er ónefnd sú aukna áhersla sem lögð er á upplýsinga tækni og gag nreynda þekkingu og að nemendur öðlist þekkingu og færni til að veita einstaklings hæfða hjúkrun í þver faglegu samstarfi. Við endur skoðun nám skrárinnar hefur þannig verið lögð áhersla á að menntun hjúkrunar fræðinga endur spegli kall alþjóða samfélagsins um meiri áherslu á ofangreinda þætti. Í nýrri námskrá er lögð áhersla á: • gagnrýna hugsun og sjálfstæði • rannsóknir, gagnreynda þekkingu og vinnubrögð • samþættingu grunngreina og hjúkrunargreina • heilsugæslu og heilsuvernd • langveika og heimahjúkrun • undirbúning nemenda í hermi • vinnuálag nemenda. Ásamt því að endurskoða innihald nám­ skrárinnar er lögð áhersla á að jafna vinnuálag nemenda í námskeiðum þar sem vinnuframlag, sem liggur að baki hverri ECTS­einingu, hefur verið skilgreint. Kerfisbundið eftirlit með innihaldi og gæðum náms verður innleitt samhliða, og skipaðir hafa verið tveir kennslustjórar sem munu skipta með sér starfinu næstu 5 árin. Þeir eiga að hafa eftirlit með gæðum allra námskeiða og námsins í heild. Hluti af því að tryggja gæði er að öll námskeið í deildinni séu í umsjón fastráðinna kennara. Yfirlitsmynd yfir grunnnám í hjúkrunarfræði við HÍ samkvæmt nýrri námskrá má sjá á meðfylgjandi mynd. Gert er ráð fyrir að hluti af námi til BS­prófs verði metinn til meistaraprófs og með því styttist það nám umtalsvert. Vænta má niðurstöðu þeirrar vinnu seinna á árinu. NÝJAR ÁHERSLUR Í GRUNNNÁMI VIÐ HJÚKRUNARFRÆÐIDEILD HÁSKÓLA ÍSLANDS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.