Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Síða 19
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 2. tbl. 91. árg. 2015 17
vinnir verkir eru einnig algeng ástæða
örorku hér á landi en af þeim sem
voru á örorku árið 2005 voru um 35%
kvenna og 17% karla á bótum vegna
stoðkerfisvandamála (Sigurður Thorlacius
o.fl., 2007). Langvinnir verkir eru því bæði
einstaklingum og samfélaginu í heild dýrir.
Mat á langvinnum verkjum
Þótt myndgreining og aðrar rannsóknir séu
mikilvægar til að greina sjúkdómsástand
er ekki hægt að mæla verki á hlutlægan
hátt. Það er því frásögn einstaklingsins
sem liggur til grundvallar mati á verkjum
(Short og Lynch, 2010). Að framkvæma
heildstætt mat er tímafrekt og því getur
þurft að safna upplýsingunum í nokkrum
skrefum (Scottish Intercollegiate
Guidelines Network [SIGN], 2013).
Hjúkrunarfræðingar þurfa að gefa
viðkomandi tíma til að segja sögu sína,
hlusta gaumgæfilega og framkvæma
líkamsmat (Short og Lynch, 2010).
Kjarninn í matinu er ítarleg upplýsinga
söfnun þar sem metnir eru líkamlegir,
andlegir og félagslegir þættir. Heppilegt
er að byrja á opinni spurningu með
því að biðja viðkomandi um að segja
frá verkjunum (Short og Lynch, 2010).
Spyrja þarf um staðsetningu og styrk
verkja, núverandi og fyrri meðferð, auk
þess sem áhrif verkjanna á einstaklinginn
eru metin. Mikilvægt er að byggja
upp gott meðferðarsamband til að
skapa traust og fá viðkomandi til að
taka þátt í ákvarðanatöku til að stuðla
að árangursríkri meðferð (Scottish
Intercollegiate Guidelines Network,
2013). Í töflu 1 er að finna yfirlit yfir helstu
þætti í verkjasögu.
Líkamsmat er hluti heildstæðs mats á
langvinnum verkjum en hversu ítarlegt
Tafla 1. Upplýsingasöfnun (Breivik o.fl., 2008; Pasero og McCaffery, 2010; Short og Lynch, 2010).
Matsatriði Spurningar Til athugunar
Yfirbragð og tjáning Hvernig kemur einstaklingurinn fyrir í viðtali?
Hvernig tjáir viðkomandi sig?
Hluti af heildstæðu mati. Virðist
einstaklingurinn niðurdreginn? Gefur hann
skilmerkilegar upplýsingar?
Upphaf verkja Hvenær byrjuðu verkirnir?
Við hvaða aðstæður?
Staðsetning verkja Hvar eru verkirnir?
Leiða verkirnir út frá sér?
Gott að merkja inn á mynd
Ef fleiri en einn verkur er til staðar má númera
þá
Styrkur verkja Hversu miklir eru:
verkir núna?
að jafnaði?
verstu verkir?
minnstu verkir?
Notið viðurkennda kvarða (svo sem tölukvarða
eða orðakvarða)
Eðli verkja Hvernig lýsa verkirnir sér?
Hvaða orð notar viðkomandi yfir verkina?
Mikilvægt atriði til að hjálpa til við að
greina um hvers konar verki er að ræða.
Brunaverkur, verkjapílur/verkjaskot, stingir
og verkir við létta snertingu geta bent til
taugaverkja
Mynstur verkja Eru verkirnir stöðugir?
Koma þeir og fara?
Áhrifaþættir á verki Hvað dregur úr verkjunum?
Hvað eykur verkina?
Spyrjið meðal annars um hreyfingu og
sálfélagslega þætti, svo sem kvíða og álag
Áhrif verkja á einstaklinginn Hver eru áhrif verkja á:
svefn?
minni?
einbeitingu?
andlega líðan (kvíði, depurð)?
félagslega líðan?
kynlíf?
fjölskylduna?
líkamlega getu og virkni?
getu til að sinna vinnu?
fjárhag?
Gott getur verið að hefja samræður um
þessi atriði með því að segja eitthvað í þessa
veruna: „Verkir hafa margvísleg áhrif á líf og
okkar líðan, ég er með nokkrar spurningar
sem lúta að áhrifum verkja á þig“
Núverandi verkjameðferð Hvaða verkjameðferð er viðkomandi á núna?
Hvaða skömmtum er viðkomandi á og hvernig
tekur hann lyfin?
Hvernig hefur sú meðferð reynst?
Aukaverkanir meðferðar?
Spyrjið bæði um lyf og aðrar aðferðir en lyf
Fyrri verkjameðferð Hvaða verkjameðferð hefur verið reynd?
Hvernig hefur hún virkað?
Aukaverkanir meðferðar?
Spyrjið bæði um lyf og aðrar aðferðir en lyf