Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Síða 31
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 2. tbl. 91. árg. 2015 29
Flestir hjúkrunarfræðingar hafa reynslu af vaktavinnu og hafa fundið fyrir því
hvað hún getur verið erfið. Nú liggja fyrir margar rannsóknir um afleiðingar
hennar. Kominn er tími til að taka tillit til þeirra og gera störf í heilbrigðiskerfinu
heilbrigðari.
Jafnvægi vinnu og einkalífs verður sífellt
umfangsmeira viðfangsefni í iðnvæddum
ríkjum. Fjöldi starfsmanna innan þessara
ríkja er óánægður með vinnutíma sinn
og finnur til of mikils álags sem getur
leitt til heilsufarsvanda. Starfsmenn í
vaktavinnu finna oft fyrir svefnleysi auk
þess sem heila og líkamsstarfsemi er
hægari á nóttunni og saman geta þessi
atriði ýtt undir þreytu og syfju (Boivin
o.fl., 2007). Þreyta skerðir einbeitingu
hvers manns og eykur þar með hættu
á slysum og mistökum og slíkt getur
Nanna Ingibjörg Viðarsdóttir, nanna@landlaeknir.is
verið hættulegt fyrir starfsmanninn og
almenning sömuleiðis.
Stjórnvöld hafa staðfest að erfiðleikar
tengdir vaktavinnu séu ekki bundnir
við starfs fólk heldur séu þeir að auki
kostnaðar samir fyrir fyrirtæki. Framleiðni
minnkar oft, veikindadögum fjölgar og
starfs mannavelta eykst (VandenHeuvel
og Wooden, 1995). Þetta endurspeglar
umræðu um hugsanlega skaðsemi þess
að vinna of langan vinnudag. Vinnu fyrir
komulag getur haft mikil áhrif á heimilishald
fjölskyldna (Brannen, 2005). Einnig hefur
vinna um helgar og vakta vinna þau áhrif að
starfsfólk verður frekar andlega örmagna,
finnur til streitu á vinnustað, sálrænna og
líkamlegra einkenna heldur en þeir sem
eiga frí um helgar (Jamal, 2004).
Áhrif á heilsufar
Vaktavinna getur haft í för með sér
sálfræði leg og heilsufarsleg vandamál
ásamt erfiðleikum tengdum félagslegri
aðlögun vegna truflunar á líkamsklukku
ÁHRIF VAKTAVINNU Á HEILSU OG LÍÐAN