Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Side 48
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 2. tbl. 91. árg. 201546
NIÐURSTÖÐUR
Þátttakendur í rannsókninni voru konur á aldrinum 1723
ára og voru þær allar búsettar á Reykjavíkursvæðinu en
nokkrar voru af landsbyggðinni. Þrjár höfðu áður komið á
kynsjúkdómamóttöku. Við gagnagreiningu komu fram þrjú
meginþemu sem lýsa því hvernig kynsjúkdómar eru feimnismál,
hvernig hugsunin um kynsjúkdóma og það sem fram undan er
getur valdið innri spennu hjá konunum og hvernig þær finna
fyrir létti þegar þær mæta jákvæðu og skilningsríku viðmóti
(tafla 1). Þessi meginþemu eru feimnismál, spenna og léttir.
Meginþemað feimnismál skiptist í tvö undirþemu sem eru
hinn samfélagslegi tónn og óttinn við skömmina. Meginþemað
spenna skiptist í undirþemun búast við því versta og hið
vandræðalega og ópersónulega. Meginþemað léttir skiptist í
tvö undirþemu sem eru fagmennska og fordómaleysi.
Feimnismál
Hér kemur annars vegar fram hvernig orðræðan um
kynsjúkdóma er í samfélaginu sem konurnar lifa og hrærast í
og hins vegar hvernig þær upplifa feimnina í tengslum við það
að fara í greiningu á kynsjúkdómum og vilja því með öllum
ráðum vera ósýnilegar.
Hinn samfélagslegi tónn
Konunum fannst ekki vera nægilega opin umræða í samfélaginu
um kynsjúkdóma en það viðhélt þeirri skömm og fordómum
sem greining á kynsjúkdómum getur haft í för með sér. Þetta
kristallaðist í setningunnni: „Þetta er náttúrulega svo mikið
feimnismál.“ Fram kom að slík viðhorf viðhaldist einnig innan
fjölskyldna og í vinahópum.
Síðan fer á kreik orðrómur um þá sem fara í greiningu eða fá
greiningu þar sem í því felst viss skömm. Erfitt virðist vera að
hemja umræðuna, „það fréttist út“: „… einhver kjaftasaga í
skólanum að einhver strákur væri með klamydíu.“ Það liggur
því í loftinu að sá sem fer í greiningu getur orðið að skotspæni.
Konurnar greindu frá því að það geti jafnvel verið mun meiri
hætta á slíku í litlum samfélögum úti á landsbyggðinni. Þó að
það kæmi fram að greining á kynsjúkdómi væri í raun ekki neitt
mál og meðferð fælist bara í því að taka töflur þá er greinilegt
að hinn fordæmandi samfélagslegi tónn er ekki langt undan.
Óttinn við skömmina
Þar sem kynsjúkdómar eru feimnismál voru konurnar, sem fóru í
greiningu, berskjaldaðar og óttuðust slæman orðróm. Þetta kom
fram í tengslum við tímapantanir, staðsetningu móttökunnar,
nafnleynd á biðstofunni og biðina á biðstofunni. Það var ýmislegt
sem gat gert konunum erfitt fyrir að sækja sér þjónustu. Það
reyndist þeim erfitt að panta tíma, „ofboðslega stuttur tími sem
þú mátt hringja til að panta tíma“. Það var meðal annars tengt
því að viðkomandi þurfti að fara afsíðis til þess að enginn heyrði
símtalið. Jafnframt var til staðar sú fjarlæga hugsun að greinast
sjálfur með kynsjúkdóm: „Manni finnst þetta svona ofboðslega
fjarlægt sér … þangað til maður lendir í þessu sjálfur.“ Einnig gat
óttinn við skömmina dregið úr löngun þeirra til að koma sér á
staðinn því ljóst var að „sumir … mundu aldrei þora að fara upp
á húð og kyn“, „sumir mundu bara fríka út“. Þeim var mikið í mun
að enginn vissi um ferðir þeirra og lögðu mikið upp úr því að
staðsetning deildarinnar væri afsíðis. „Jú, hún … er á rosa fínum
stað ... af því hún er falin sko … Hún er ekki alveg í ... Kringlunni,
eða þú veist, allir sjá að þú labbar inn, eða þú veist.“ Þeim fannst
það gott að deildin væri ekki auglýst með skilti á útiveggnum þar
sem HÚÐ OG KYN stæði með stórum stöfum. Það gaf til kynna
að þær vildu ekki að nokkur maður sæi þær fara á móttökuna,
„mann langar ekki eitthvað að hitta … hvern sem er þarna fyrir
utan eða þegar þú ert að labba þangað“, „ekki að allir sjái að
maður sé að fara þarna“.
Þegar þær voru mættar á staðinn var nafnleynd þeim mikilvæg.
Fram kom að lítið næði væri til staðar til að ræða við móttökuritarann
þar sem allt heyrðist sem sagt væri. „Mér fannst svolítið … opið
sko, mér fannst svolítið heyrast sem sagt var, maður þurfti alveg
Tafla 1. Þemagreining.
Feimnismál Hinn samfélagslegi tónn
Fordómar
Slúður
Óttinn við skömmina
Erfitt að panta tíma
Móttakan sé vel falin
Nafnleynd mikilvæg
Óttast að hitta einhvern
Spenna Búast við því versta
Óróleiki
Viðhorf þeirra og annarra
Bið eftir niðurstöðum
Hið vandræðalega og ópersónulega
Vandræðalegt að fara í skoðun
Vera eins og einhver hlutur
Mikill hraði í þjónustuferlinu
Léttir Fagmennska
Vingjarnlegt viðmót
Vellíðan
Gagnkvæm samskipti
Fordómaleysi
Mannlegt að gera mistök
Mæta skilningi
Vera ekki skammaður