Fréttablaðið - 15.02.2020, Blaðsíða 5
TÖLUR VIKUNNAR 02.02.2020 TIL 08.02.2020
jeep.is
UMBOÐSAÐILI JEEP® Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR
S. 534 4433 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
ALVÖRU JEPPI - ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF
JEEP® WRANGLER RUBICON
AFMÆLISTILBOÐ: 11.960.000 KR.
FULLT VERÐ MEÐ AUKAHLUTUM: 12.590.000 KR.
FÁANLEGUR MEÐ 35”, 37” EÐA 40” BREYTINGU
• BENSÍN 273 HÖ / DÍSEL 200 HÖ
• 8 GÍRA SJÁLFSKIPTING
• ROCK-TRACK® FJÓRHJÓLADRIF
• SELECT-TRAC® MILLIKASSI
• TRU-LOCK® 100% DRIFLÆSINGAR AÐ FRAMAN OG AFTAN
• AFTENGJANLEG JAFNVÆGISSTÖNG AÐ FRAMAN
• HEAVY DUTY FRAM- OG AFTURHÁSING
• BAKKMYNDAVÉL MEÐ BÍLASTÆÐAAÐSTOÐ
Hildur Guðnadóttir
tónskáld
vann Óskars
verðlaun fyrst
Íslendinga fyrir
tónlist sína í
kvikmyndinni
Joker. Meðal
tilnefndra voru
skáld á borð við
John Williams og Randy New
man. Hildur hefur hlotið fjölda
verðlauna undanfarið fyrir tónlist
sína í Joker og HBOþáttunum
Chernobyl.
Wei Li
ferðamaður
fékk ekki skipt
1,6 milljónum
króna, eða um
170 kílóum af
íslenskri mynt,
sem hann ferð
aðist með til
landsins. Fulltrúi
Arion banka sagði bankanum
ekki skylt að taka við peningum
frá aðilum sem eru ekki í við
skiptum við bankann en Li gaf
síðar Samhjálp hluta myntar
innar.
Birni H. Halldórssyni
framkvæmdastjóra Sorpu
var sagt upp
störfum á fundi
stjórnar Sorpu.
Í tilkynningu
frá stjórninni
segir að ákvörð
unin eigi sér
meðal annars stoð
í skýrslu Innri endurskoðunar
Reykjavíkurborgar. Í yfirlýsingu
til fjölmiðla lýsti Björn yfir von
brigðum með niðurstöðuna og
sagðist telja að stjórnin væri að
varpa athygli frá sjálfri sér með
uppsögninni.
Þrjú í fréttum
Óskarinn,
íslensk mynt
og uppsögn
1,3
tonna flugeldur var sprengdur í
Bandaríkjunum, sá stærsti í heim-
inum hingað til.
62
tillögur bárust fyrir nafn á nýju
sameinuðu sveitarfélagi á
Austurlandi.
80
prósent landsmanna 15 ára og
eldri eru með rafræn skilríki.
44
stundir var
meðalvinnuvika
einstaklinga á
síðasta ári miðað
við fullt starf.
3.186
fyrirtæki og félög
voru nýskráð á
síðastliðnu ári sam-
kvæmt Hagstofu.
Fauk ofan af fjölskyldu á Rangárvöllum
„Það varð töluvert tjón á nokkr-
um stöðum, sérstaklega á húsum
og bæjum uppi á Rangárvöllum,“
segir Grímur Hergeirsson, settur
lögreglustjóri á Suðurlandi.
Óveðrið sem gekk yfir landið í
gær varð ekki síst öflugt á Suður-
landi. „Við höfum ekki fengið
neinar tilkynningar um að það
hafi orðið slys á fólki hérna hjá
okkur,“ segir Grímur. „Það voru
fáir á ferðinni og það hefur
hjálpað til þess að fólk var ekki
að lenda í vandræðum."
Að sögn Gríms var aðallega
um að ræða fok á lausamunum
og þakplötum og skemmdir á
útihúsum.
„Það gaf sig veggur á skemmu
á einum bæ. Á öðrum bæ féll
fóðursíló og lenti á fjósinu. Síðan
féll fjárhús. Það var töluvert
mikið af rafmagnsstaurum sem
brotnuðu,“ segir Grímur.
Á bænum Lambhaga þurfti
heimilisfólkið að sögn Gríms að
yfirgefa íbúðarhúsið er burður
í þaki gaf sig. Ábúandinn gaf sér
ekki tíma til að ræða við blaða-
mann í gær. – gar
ÓVEÐUR Óveðrið sem gekk yfir
landið í gær hafði áhrif víða en rauð
viðvörun var í gildi fyrir sunnanvert
landið aðfaranótt föstudags.
Aldrei fyrr hefur verið gefin út
rauð viðvörun fyrir höfuðborgar
svæðið.
Rýma þurfti hús í Garði þar sem
sjór var farinn að flæða inn í kjall
ara eftir mikinn sjógang í bænum.
Töluvert var af vatni inni í húsinu og
fengu mæðgur sem þar búa aðstoð
björgunarsveitar við að komast út.
Þær komust ómeiddar í öruggt skjól.
Vélbáturinn og fyrrum varðskipið
Blátindur sökk í Vestmannaeyjahöfn
í óveðrinu í gær þar sem vindur fór í
50 metra á sekúndu. Báturinn var í
eigu bæjarfélagsins og talinn mikil
menningarverðmæti fyrir bæinn.
Blátindur var til sýnis á Skans
svæðinu og um klukkan hálf tíu í
fyrrakvöld fór hann á flot. Skömmu
síðar var honum komið fyrir við
bryggjuna þar sem hann svo sökk.
Þá losnuðu smábátar frá bryggj
unni í Vestmannaeyjahöfn og einn
bátur á Suðurnesjum.
Lög reglan í Vest manna eyjum
segir að við varanir og undir
búningur íbúa og eig anda fyrir
tækja í Vest manna eyjum hafa átt
lykil þátt í því að ekki varð meira tjón
í ó veðrinu. Björgunar sveitir og lög
regla höfðu sinnt á fjórða tug verk
efna um miðjan dag í gær.
Karlmaður slasaðist þegar þak
plata fauk á hann í Hvalfirði.
Björgunar sveitar menn frá Kjalar
nesi voru kallaðir út á samt lög reglu
og gekk vel að koma manninum af
vett vangi. Maðurinn var f luttur á
sjúkrahús til aðhlynningar en ekki
liggja fyrir upplýsingar um ástand
hans.
Allt skólahald í leik og grunn
skólum höfuðborgarinnar féll niður
í gær og fjöldi verslana og fyrir
tækja lokaði starfsemi sinni vegna
veðurs. Þá varð þó nokkur röskun
á almenningssamgöngum.
Sömu sögu má segja um landið allt
nema á Akureyri þar sem skólar voru
opnir.
Rafmagn fór af víðs vegar um
landið, til að mynda á Höfn í Horna
firði og í Vík í Mýrdal. Í Vík var raf
magn skammtað og þar var fólk
beðið að fara sparlega með rafmagn.
Í Landeyjum brotnuðu 27 raf
magnsstaurar.
birnadrofn@frettabladid.is
Óveður gekk yfir landið í gær
Áhrifa óveðursins sem gekk yfir landið í gær gætti víða. Bátur sökk í Vestmannaeyjahöfn. Rýma þurfti
hús í Garði er kjallarinn fylltist af vatni. Maður slasaðist í Hvalfirði og nokkur truflun varð á rafmagni.
Björgunarsveitarmenn þurftu að vanda sig við að standa í fæturna við Reykjavíkurhöfn. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Meira á frettabladid.is
1 5 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð