Fréttablaðið - 15.02.2020, Page 29
Þetta verður síðasta bíó-my ndin. Við Frank höfum eytt rúmlega fimmtán árum í Klovn og þurfum á tilbreyt-ingu að halda núna,
segir Casper Cristensen. „Stundum
verður maður að hætta á meðan það
er gaman og við erum mjög ánægðir
með þessa mynd og af hverju ekki
að hætta þá bara þar?“ spyr Casper
en dregur aðeins í land þegar hann
er spurður hvort sjónvarpsþættirnir
verði ekki heldur fleiri.
„Aldrei segja aldrei. Aldrei segja
aldrei, vegna þess að okkur finnst
svo gaman að gera þetta. Klovn
hefur ætíð verið gæluverkefni gert
af ást og við höfum haldið svona
lengi áfram vegna þess að okkur
finnst alltaf jafn skemmtilegt að
gera þetta. Maður veit aldrei hvað
mun gerast en þetta er lokamynd-
in.“
Þannig að þessi lokakaf li í kvik-
myndasögu Klovn er ekki til marks
um að þið eruð orðnir þreyttir hvor
á öðrum?
„Málið með okkur Frank er …
sjáðu til. Þetta er Frank. Þú færð
stundum nóg. Þú færð nóg,“ segir
Casper glettinn og bendir á að þeir
hafi öll þessi ár fengist við önnur
verkefni hvor í sínu lagi. „Ég held að
við Frank eigum eftir að finna eitt-
hvað annað sem við munum vilja
gera saman en hann er mikið í uppi-
standsgríni í augnablikinu en ég vil
ekki fara út á kvöldin og þar erum
við staddir akkúrat núna.“
Eitt af þessum öðrum verkefnum
Franks var lítið hlutverk í einum
þætti Game of Thrones. Fannstu þá
fyrir af brýðisemi?
„Já. Auðvitað. Þetta er Game
of Thrones, komon maður. Hver
myndi ekki vilja vera í því? Við
Frank þekkjum mannskapinn á bak
við Game of Thrones og þegar þau
báðu Frank en ekki mig þá súrnaði
vináttan pínulítið en ég mun lifa
þetta af.“
Lofsöngur
Klovn 3 hefst á því að Casper gefur
Frank strákaferð til Íslands í fimm-
tugsafmælisgjöf en eins og vera
ber þegar Frank er annars vegar
rennur ferðaáætlunin út í tóma vit-
leysu. „Málið er að Ísland var fyrsta
landið fyrir utan Danmörku til
þess að sýna Klovn og við höfum
alltaf verið ykkur mjög þakklátir
fyrir það þannig að auðvitað varð
síðasta bíómyndin að hafa eitthvað
með Ísland að gera þannig að þessi
mynd er virðingarvottur.“
Casper finnur einnig snertif löt
milli þeirra félaga og Íslendinga í
áþekku og frjálslegu skopskyni.
„Okkur Dönum er jú sagt að við
séum frjálslegir. Ég hef verið mikið á
Íslandi og mér finnst þið ekki síður
skora ansi hátt þarna. Við höfum
oft verið á Íslandi og ég held að við
Frank elskum landið ykkar svona
mikið vegna þess að húmorinn er
nánast sá sami þannig að við finn-
um sterkari tengingar við Ísland
frekar en Svíþjóð og Noreg.“
Nýr línudans
Þeir sem þekkja til Klovn vita að
grínið sprettur ekki síst upp á
mörkum þess sem boðlegt getur
talist og aðspurður segir Casper að
vissulega finni þeir Frank fyrir því
að rammi þess sem má gera grín að
þrengist hratt.
„Það er satt. Það er svo satt. Við
þurfum meira að segja að takast
á við þetta í Danmörku en þetta
eru bara nýjar reglur. Ég og Frank
höfum eytt svo miklum tíma í að
finna þessi landamæri. Þetta tak-
mark á því hversu langt grínið má
ganga og núna hefur þetta breyst.
Það er komið nýtt strik, nýjar tak-
markanir og við vinnum þá bara
í kringum það og höfðum þann-
ig klárlega áhyggjur af því hversu
langt við gætum gengið að þessu
sinni og þessi mynd er ekki jafn villt
og númer tvö.
Hún er aðeins léttari vegna þess
Þórarinn
Þórarinsson
thorarinn@frettabladid.is
Casper segir
þá Frank alltaf
skemmta sér
við gerð Klovn
en þriðja bíó-
myndin þeirra
sem er komin
í sýningar á
íslandi verði
þó sú síðasta.
MYND/PER
ARNESEN
að ég held að við Frank höfum ekki
viljað kasta fólki burt. Við vildum
ekki sjokkera fólk svo mjög að
það gæti ekki lengur hlegið. And-
rúmsloftið er bara … þetta er í
fyrsta skipti sem fólk sagðist ekki
vilja gera ákveðna hluti. Þetta er
fyrsta myndin þar sem við Frank
þurftum að velta fyrir okkur hvort
við værum að ganga of langt,“ segir
Casper og bætir við að þegar þeir
tveir loki sig af í algeru öryggi sé
markaleysið algert og þeim er ekk-
ert heilagt.
„En þegar við sýndum fólki fyrsta
uppkastið að handritinu þá fengum
við bara: „Nei,“ og þau sögðust ekki
lengur geta hlegið að þessu vegna
þess að þetta væri yfirgengilegt.
Og þá þurftum við að fara til baka
og spyrja: „Hvað við viljum gera?
Við viljum gera grín, ekki satt? Við
viljum fá fólk til þess að hlæja og
skemmta sér. Þannig að við þurftum
stanslaust að vera að breyta ein-
hverju.“
Samt besta myndin
Casper er engu að síður hæstánægð-
ur með myndina og þann dans sem
þeir Frank stíga þar á nýjum marka-
línum. „Ég held að þetta séu bestu
viðbrögð sem við höfum nokkru
sinni fengið. Fólk elskar myndina
og sjálfum finnst mér hún besta
myndin af þessum þremur sem við
höfum gert.
Vegna þess,“ segir Casper, „að
þetta er enn þá Klovn. Þér finnst
hún enn ganga of langt án þess
þó að við förum yfir landamærin
þannig að þetta fari að verða óþægi-
legt. Þetta er of mikið en samt akk-
úrat nóg vegna þess að þegar það
verður markmið í sjálfu sér að
fara yfir strikið þá geturðu misst
áhorfendurna og húmorinn,“ segir
Casper.
Skemmtilegur fáviti
„Það má ekki gerast þannig að þú
vilt komast nákvæmlega að mörk-
unum þar sem þú getur látið fólk
hlæja þannig að því líði pínulítið
óþægilega en samt verið réttum
megin línunnar og ég held að okkur
hafi tekist það með þessari mynd.“
Casper segir nafna sinn einhvers
kona ýkta skopstælingu af honum.
„Það fyndna er að þegar ég var sem
líkastur honum var minna gaman
að leika hann. Núna er ég á allt
öðrum stað en Casper og það er
búið að vera svo skemmtilegt að
leika þennan fávita,“ segir hinn
eini sanni Casper sem horfir nú til
Jim Carrey. „Vegna þess að hann
gefur skít í þetta allt, og ég stefni í
sömu átt. Að láta ekki festa mig því
að leika alltaf sömu persónuna.“
ÞETTA ER FRANK.
ÞÚ FÆRÐ STUNDUM NÓG.
Ástarkveðja Klovn
til Íslendinga í bíó
Casper Christensen úr Klovn segir þá Frank bera sterkar taugar
til Íslendinga sem tóku þeim strax fagnandi. Síðasta bíómyndin
þeirra sé því virðingarvottur við land, þjóð og íslenskan húmor.
1 5 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R28 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð