Fréttablaðið - 15.02.2020, Page 91
04
03
20
Silfurberg, HarpaBEIN ÚTSENDING // OPIN DAGSKRÁ
HLUSTENDa
VERÐLAUNIN
2020
TAKTU ÞÁTT Í VALINU
Gagnamagnið 900 9901
Flytjandi: Daði og Gagnamagnið
Lag: Daði Freyr
Íslenskur og enskur texti:
Daði Freyr
Hörku keppni
með gæsahúð
Bein útsending frá seinni undankeppni
Söngvakeppninnar 2020 hefst á RÚV
klukkan 19.45 í kvöld. Þá verða fimm lög
lögð í dóm áhorfenda og dómnefndar sem
velja tvö til þess að halda áfram keppni.
KEPPENDUR 15. FEBRÚAR
Markús Þórhallsson sagnfræðingur:
Veðjaði á Dimmu í fyrri hlutanum.
Jóhannes Þór Skúlason Eurovisionnörd:
Hafði trú á Kid Isak í fyrri hlutanum.
Margrét Erla Maack skemmtikraftur:
Veðjaði á Elísabetu í fyrri hlutanum.
Styrmir Örn Hansson plötusnúður:
Veðjaði á Kid Isak í fyrri hlutanum.
Freyja Steingrímsdóttir stjórnmála
ráðgjafi: Veðjaði á Ísold og Helgu.
Fellibylur 900 9902
Flytjandi: Hildur Vala
Lag: Hildur Vala og Jón Ólafsson
Íslenskur texti: Bragi Valdimar
Skúlason
Oculis Videre 900 9903
Flytjandi: Íva
Lag: Íva Marín Adrichem
og Richard Cameron
Íslenskur texti: Íva Marín Adric-
hem og Richard Cameron
Enskur texti: Richard Cameron
Ekkó 900 9904
Flytjandi: Nína
Lag: Þórhallur Halldórsson
og Sanna Martinez
Íslenskur texti: Þórhallur Hall-
dórsson og Einar Bárðarson
Enskur texti: Þórhallur Halldórs-
son, Christoph Baer, Donal Ryan,
Sanna Martinez
Dreyma 900 9905
Flytjandi: Matti Matt
Lag: Birgir Steinn Stefánsson
og Ragnar Már Jónsson
Íslenskur texti: Matthías
Matthíason
Sig ur vegarar k völdsins munu síðan mæta þeim sem komust áfram um síðustu helgi; Ísold og Helgu með lagið Klukkan tifar og Dimmu með sinn
Almyrkva en eins og alþjóð veit
hlotnast þeim sem stendur uppi
sem sigurvegari það þjóðhagslega
mikilvæga menningarhlutverk að
syngja fyrir Íslands hönd í Euro-
vision í Hollandi í maí.
Skoðanir Eurovisionspekinga
Fréttablaðsins vega ekki þungt í
stóra samhenginu en gætu mögu-
lega verið óákveðnum einhvers
konar leiðarljós og gott að hafa í
huga að heimilsfriður Margrétar
Maack gæti verið í húfi. „Það er
ákveðin spenna á heimilinu þessa
dagana. Ég held svo mikið með
Daða og Tómas er gallharður Matta
Matt-maður þótt Daði sé æskufélagi
hans.“
toti@frettabladid.is
steingerdur@frettabladid.is
Varanleg gæsahúð
„Ég hefði fyrir fram álitið að Daði
og Gagnamagnið hans fengi mitt
atkvæði á seinna undanúrslita-
kvöldinu en ég er búinn að vera með
gæsahúð yfir Oculis Videre síðan ég
heyrði það fyrst og hún er ekkert í
rénun!
Lagið er hreint aldeilis dul-
magnað og Iva er stórgóð söngkona,
greinilega með bein í nefinu og
munninn fyrir neðan nefið þannig
að hún á eftir að standa sig frábær-
lega í Rotterdam. Svo skilst mér að
hún búi í Hollandi þannig að hæg
eru heimatökin.
Oculis Videre minnir að sumu
leyti á tvö sigurlög frá miðjum
tíunda áratug síðustu aldar; The
Voice og jafnvel Nocturne. Svo er
skemmst að minnast La forza sem
Elina Nechayeva f lutti fyrir hönd
Eistlands árið 2018. Elina endaði í
áttunda sæti og ég gæti trúað að Iva
gæti bætt þann árangur.
Þegar kemur að Eurovision er
langbest að bjóða upp á eitthvað
öðruvísi, spennandi og jafnvel ögr-
andi …!“
Verum kúl, ekki fúl
„Í seinni undanriðlinum er þetta í
raun spurning um hvaða lag á mest-
an séns í lokakeppninni í Rotter-
dam. Mér finnst engin spurning að
Oculis Videre með Ivu er besta lagið
í þessum riðli út frá því sjónarhorni.
Þessi næntís Enigma-Enya-La Voix
stemming snarvirkar og þetta lag
gefur langskemmtilegustu mögu-
leikana á einhverri alvöru klikkun
í sviðsetningu.
Eldur! Sturlaðir búningar! Kúl-
heit! Henda Netf lix-peningunum
í sprengjur, props og effekta! Bara
ekki púlla „einmana stelpan við
hvíta píanóið“ í tótal andleysi, ha
RÚV, bara ekki geraða. Verum kúl,
ekki fúl.“
Dansað við Daða
Mér finnst Daði og Gagnamagnið
bera af. Lagið er mjög grípandi og
skemmtilegt, ekta lag til að dansa
við. Daði Freyr var auðvitað rændur
sigrinum 2017 en mætir nú sterkur
til leiks og ég vil sjá þau fara alla leið
í þetta skipti.
Ég spái því að hann og Íva komist
áfram á lokakvöldið. Hún er með
fínt lag líka en mitt atkvæði rennur
beint til Daða og Gagnamagnsins
í kvöld. Lagið er gott og Daði auð-
vitað mjög skemmtilegur á sviði;
öruggur, taktfastur og hrífandi.
Svo það er aldrei að vita hvort það
nái langt.“
Oculis Videre – 12 sent
„Seinni undankeppnin er töluvert
sterkari en sú fyrri og það verður
fróðlegt að sjá hvaða tvö lög fara
áfram í úrslit í gegnum símakosn-
inguna. Mín tvö sent fara á lagið
Oculis Videre. Flutningur Ívu Mar-
ínar Adrichem á þessari hugljúfu
og silkimjúku kraftóperuballöðu
á eftir að fá Íslendinga til að kjósa.
Svo fer Daði Freyr og Gagnamagnið
augljóslega líka áfram.
Klassískum lögum hefur vegnað
vel undanfarin ár í aðalkeppninni,
má nefna Zero Gravity í f lutningi
hinnar fljúgandi áströlsku Kate Mill-
er og 2018 náði eistnesk sópransöng-
kona og kjóllinn hennar 8. sætinu.
Íva Marín Adrichem er á heimavelli
verði hún okkar fulltrúi í Rotterdam
og ég spái því að Ísland nái sínum
besta árangri á þessum áratug.“
Harðari keppni
„Þessi riðill er mun sterkari en sá
fyrri og verður þetta gríðarlega
spennandi.
Ég held með Daða Frey og er
spennt að sjá hvernig danssporin
verða. Iva mun vera í harðri sam-
keppni við Daða og co. Þetta verður
hin mesta skemmtun.
Gagnamagnið hefur 100% Euro-
vision-þokka og ég sé fyrir mér að
það gangi vel í keppninni úti og
skili stuði í íslensk júrópartí. Lagið
er barasta geggjað, f lytjendur eru
nógu sérstakir til að ná í gegn og
heillandi og svo er þetta bara svo
mikið fjör.“
1 5 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R50 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ