Fréttablaðið - 15.02.2020, Side 97
RITSTJÓRN
ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD
auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN
Torg. ehf
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 550 5000
Óttars
Guðmundssonar
BAKÞANKAR
Njóttu
Í Sturlungu leika draumar stórt hlutverk eins og í Íslendinga-sögum. Þegar Halldóra Tuma-
dóttir gekk með annað barn þeirra
Sighvats Sturlusonar, dróst með-
gangan á langinn. Guðnýju, móður
Sighvats dreymdi þá að maður kæmi
úr Hjarðarholti. Draummaður sagði
að Halldóra hefði fætt sveinbarn sem
héti Vígsterkur. Næsta morgun frétt-
ist að drengur væri fæddur sem fékk
nafnið Sturla. Draumurinn gerði
það að verkum að komið var fram
við Sturlu eins og lauk ættarinnar og
miklar vonir við hann bundnar.
Ég hef oft skynjað skaðsemi ofur-
væntinga foreldra gagnvart börnum
sínum. Fólk ákveður snemma að
barnið eigi að verða íþróttamaður,
píanóleikari eða skáld sem stundum
er í engu samræmi við hæfileika eða
óskir viðkomandi. Börn fá stundum
þá greiningu í æsku að vera af burða-
greind. Það getur valdið margs konar
vandamálum. Þau standa ekki undir
væntingum umhverfisins og koðna
niður. Stundum ætlast foreldrið til
að barnið nái markmiðum sem það
sjálft náði ekki. Sonur kórfélagans á
að verða heimsþekktur óperusöngv-
ari. Dóttir lögmannsins á að verða
dómari í Hæstarétti. Sonur hag-
yrðingsins á að verða þjóðskáld. Oft
myndast gjá milli væntinga foreldra
og hæfileika og möguleika barnsins.
Barninu finnst það vera að bregðast
foreldrinu, það sé að þykjast og muni
verða afhjúpað fyrr en síðar. Þetta
getur valdið minnimáttarkennd og
vanlíðan.
Þetta var raunin um Sturlu Sig-
hvatsson frænda minn. Hann fékk
þá tilfinningu að vera sérstakur og
lífið mundi hossa honum í faðmi sér.
Hann þróaði með sér hrokafullan
sjálfhverfan persónuleika sem varð
honum að aldurtila að Örlygs-
stöðum. Banamein Sturlu voru ofur-
væntingar Sighvatar Sturlusonar
til þessa sonar síns sem hann stóð
engan veginn undir.
Ofurvæntingar
HEMMA
rafmagnssnúra
fyrir loftljós
1.190,-
+
Tilboðið inniheldur
tvö pizzadeig, pizzasósu,
ost, pepperoni, skinku
og grænmetisbakka.
Gildir út morgundaginn.
+
+
+
+
+
+
+
++
+
+
+
+
+
+
+
+
Blaðið í dag og safn eldri blaða á frettabladid.is