Fréttablaðið - 15.02.2020, Page 97

Fréttablaðið - 15.02.2020, Page 97
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Torg. ehf DREIFING Póstdreifing ehf. dreifing@postdreifing.is 550 5000 Óttars Guðmundssonar BAKÞANKAR Njóttu Í Sturlungu leika draumar stórt hlutverk eins og í Íslendinga-sögum. Þegar Halldóra Tuma- dóttir gekk með annað barn þeirra Sighvats Sturlusonar, dróst með- gangan á langinn. Guðnýju, móður Sighvats dreymdi þá að maður kæmi úr Hjarðarholti. Draummaður sagði að Halldóra hefði fætt sveinbarn sem héti Vígsterkur. Næsta morgun frétt- ist að drengur væri fæddur sem fékk nafnið Sturla. Draumurinn gerði það að verkum að komið var fram við Sturlu eins og lauk ættarinnar og miklar vonir við hann bundnar. Ég hef oft skynjað skaðsemi ofur- væntinga foreldra gagnvart börnum sínum. Fólk ákveður snemma að barnið eigi að verða íþróttamaður, píanóleikari eða skáld sem stundum er í engu samræmi við hæfileika eða óskir viðkomandi. Börn fá stundum þá greiningu í æsku að vera af burða- greind. Það getur valdið margs konar vandamálum. Þau standa ekki undir væntingum umhverfisins og koðna niður. Stundum ætlast foreldrið til að barnið nái markmiðum sem það sjálft náði ekki. Sonur kórfélagans á að verða heimsþekktur óperusöngv- ari. Dóttir lögmannsins á að verða dómari í Hæstarétti. Sonur hag- yrðingsins á að verða þjóðskáld. Oft myndast gjá milli væntinga foreldra og hæfileika og möguleika barnsins. Barninu finnst það vera að bregðast foreldrinu, það sé að þykjast og muni verða afhjúpað fyrr en síðar. Þetta getur valdið minnimáttarkennd og vanlíðan. Þetta var raunin um Sturlu Sig- hvatsson frænda minn. Hann fékk þá tilfinningu að vera sérstakur og lífið mundi hossa honum í faðmi sér. Hann þróaði með sér hrokafullan sjálfhverfan persónuleika sem varð honum að aldurtila að Örlygs- stöðum. Banamein Sturlu voru ofur- væntingar Sighvatar Sturlusonar til þessa sonar síns sem hann stóð engan veginn undir. Ofurvæntingar HEMMA rafmagnssnúra fyrir loftljós 1.190,- + Tilboðið inniheldur tvö pizzadeig, pizzasósu, ost, pepperoni, skinku og grænmetisbakka. Gildir út morgundaginn. + + + + + + + ++ + + + + + + + + Blaðið í dag og safn eldri blaða á frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.