Fréttablaðið - 05.02.2020, Side 6
Þessi gjaldskrá
stenst ekki lög og
skekkir mjög samkeppni í
pakkaflutningum.
Ólafur Stephensen, framkvæmda-
stjóri Félags atvinnurekenda
KJARAMÁL Mikil samstaða ríkti á
baráttufundi í Iðnó í gær þar sem
félagsmenn Ef lingar söfnuðust
saman og kröfðust bættra kjara.
Félagsmenn Ef lingar lögðu niður
störf klukkan 12.30 í gær og stóð
verkfallið til miðnættis.
Kjarasamningur Reykjavíkur-
borgar og Ef lingar rann út þann
31. mars í fyrra og tóku þær vinnu-
stöðvanir sem fram fóru í gær,
ásamt þeim vinnustöðvunum sem
fyrirhugaðar eru, til allra þeirra sem
vinna undir þeim samningi.
Náist ekki nýr samningur munu
félagsmenn Ef lingar leggja niður
vinnu í 24 klukkustundir á fimmtu-
daginn. Í kjölfarið eru boðaðar fjór-
ar vinnustöðvanir á tímabilinu 11.
til 17. febrúar. Fari svo að samningar
náist ekki fyrir 17. febrúar stefnir í
ótímabundna vinnustöðvun félags-
manna.
Sólveig Anna Jónsdóttir, for-
maður Eflingar, segir magnað and-
rúmsloft hafa ríkt á fundinum og
að þar hafi verið fullt út úr dyrum.
„Það ríkti hér mjög mikil samstaða
og stemning,“ segir Sólveig. Þá segir
hún einlæga baráttugleði hafa ríkt
meðal félagsmanna Eflingar. „Bar-
áttugleðin er bara mjög raunveruleg
þegar láglaunafólk ákveður að setja
hendurnar í vasann og sýna öllum
mikilvægi sitt,“ segir hún.
BSRB hefur lýst yfir stuðningi
við verkfallsaðgerðir Eflingar og í
tilkynningu frá félaginu eru félags-
menn í aðildarfélögum BSRB hvattir
til að virða verkfallsrétt Eflingar og
ganga ekki í störf þeirra sem séu í
verkfalli. Sólveig segist hafa upp-
lifað mikinn stuðning úr hinum
ýmsu áttum og fyrir það séu félags-
menn þakklátir.
„Við vorum ekki í verkfallsvörslu í
dag en við munum sinna markvissri
verkfallsvörslu á fimmtudaginn
en auðvitað ætlumst við til þess
að borgin og sviðin sem um ræðir
sendi skýr skilaboð um það hvað
má og hvað ekki og að verkfallsbrot
verði ekki liðin,“ segir Sólveig.
Spurð hvort hún sé bjartsýn á að
samningar náist fyrir næstu vinnu-
stöðvun, á fimmtudag, svarar Sól-
veig því neitandi. „Ég held að það
sé útilokað nema einhver stórkost-
legur viðsnúningur eigi sér stað hjá
viðsemjendum okkar,“ segir hún.
birnadrofn@frettabladid.is
Samstaða á baráttufundi
Félagsmenn Eflingar lögðu niður störf í gær og fjölmenntu í Iðnó þar sem fram fór baráttufundur. For-
maður Eflingar segist ekki bjartsýnn á að samningar náist fyrir næstu vinnustöðvun á fimmtudaginn.
Ásta Kristín Guðbjörnsdóttir | Leiðbeinandi á leikskóla
„Ég er hér til að styðja við okkar rétt og þau réttindi sem við eigum skilið
frá borginni. Ég skynja mikla samstöðu hér í dag og ég skynja líka mikla
samstöðu frá leikskólanum sem ég starfa á. Leikskólakennararnir styðja
þétt við bakið á okkur.“
Evelin Peralda | Starfsmaður á leikskóla
„Ég er mætt hingað til þess að krefjast þess að fá betri laun til þess að
lifa betra lífi. Það er mjög jákvæð orka hérna og mikil samstaða.“
Magnús Freyr Magnússon | Starfsmaður á leikskóla
„Ég er kominn hingað því að ég vil að það heyrist í okkur. Við erum undir-
staða þessarar borgar, borgin er í okkar höndum og mig bara virkilega
langar að koma fólki áfram, að við eigum fyrir því sem við þurfum að
borga um mánaðamót en að það sé ekki alltaf sama stressið.“
Kolfinna Elíasdóttir | Starfsmaður í heimaþjónustu
„Ég er hér því að við viljum fá réttlát laun fyrir mikilvæga vinnu. Það er
mikil samstaða og baráttuhugur í okkur. Þetta snýst bara um réttlæti, að
fá leiðréttingu launa okkar og viðurkenningu á mikilvægi starfa okkar.“
SAMKEPPNI Póst- og fjarskiptastofn-
un (PFS) hefur lagt fyrir Íslandspóst
að endurskoða gjaldskrá sína, sem
tók gildi um áramót, fyrir 5. maí
næstkomandi. Á meðal ástæðna
sem PFS nefnir fyrir þörf á endur-
skoðun er að fyrirtækið þurfi að
sýna fram á að verðlagning þess taki
mið af raunkostnaði að viðbættum
hæfilegum hagnaði, í samræmi við
ákvæði póstlaga.
„Á þetta sérstaklega við um kröf-
una um sömu gjaldskrá um allt land
þar sem ÍSP kýs að miða verðlagn-
ingu á landinu öllu við gildandi verð
á svæði 1, þ.e. vegna svæða 2 3 og 4
sem orsakar samsvarandi tekjutap
á pökkum innanlands að óbreyttu,“
segir í bréfi PFS.
Ólafur Stephensen, framkvæmda-
stjóri Félags atvinnurekenda, hefur
sakað Póstinn um undirverðlagn-
ingu í pakkaflutningum. „Við fögn-
um því að Póst- og fjarskiptastofnun
taki þetta upp að eigin frumkvæði.
Þessi gjaldskrá stenst ekki lög og
skekkir mjög samkeppni í pakka-
flutningum,“ segir Ólafur. – ds
Póstinum gert
að endurskoða
gjaldskrána
Það ríkti hér mjög
mikil samstaða og
stemning.
Sólveig Anna Jónsdóttir,
formaður Eflingar
Landeyjahöfn. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
SAMGÖNGUR Danska dýpkunar-
fyrirtækið Rhode Nielsen A/S mun
vinna að dýpkun Landeyjahafnar
frá 15. febrúar næstkomandi og út
marsmánuð. Þetta kemur fram í
tilkynningu frá Vegagerðinni þar
sem greint er frá samningum við
danska fyrirtækið.
Áður umsamin vordýpkun hafn-
arinnar hefst svo í apríl en það er
Björgun sem vinnur það verk.
Í tilkynningu Vegagerðarinnar
segir að dýpkunin nú sé tilrauna-
verkefni þar sem notast verði við
aðrar aðferðir en hingað til. Þá sé
staða dýpis í höfninni óvenju góð
miðað við árstíma og reynslu síð-
ustu ára.
Notast verður við dýpkunar-
skipið Trud R við verkið. Á heima-
síðu Rhode Nielsen segir að það
henti vel við aðstæður þar sem
grunnt er en það ristir 3,8 metra
fullhlaðið. – sar
Dýpkun hefst
í mánuðinum
STJÓRNMÁL Bergþór Ólason, þing-
maður Miðf lokksins, lagði fram
fyrirspurn til menntamálaráðherra
um hvað Ríkisútvarpið hefði greitt
mikið í sektir eða bótagreiðslur
árin 2007 til 2019. Annaðhvort til
einstaklinga eða lögaðila og annað-
hvort eftir úrskurð dómstóla eða
samninga á milli deiluaðila.
„Ég tel að það sé áhugavert að
þessar upplýsingar liggi fyrir, sér-
staklega með það í huga hvort samið
sé innanhúss um deilumál. Hversu
algengt þetta er og hversu hátt hlut-
fall komi fram í fjölmiðlum,“ segir
Bergþór og á þá fyrst og fremst við
mál sem eru tilkomin vegna frétta-
flutnings.
Þegar er vitað að RÚV hefur greitt
bætur í einstaka málum á umræddu
tímabili. Síðastliðið haust var
sjónvarpsmanninum Jóni Ársæli
Þórðarsyni og RÚV gert að greiða
Gyðu Dröfn Grétarsdóttur eina
milljón króna vegna viðtals í Para-
dísarheimt. Árið 2017 greiddi RÚV
Guðmundi Spartakusi Ómarssyni
2,5 milljónir gegn því að hann drægi
meiðyrðamál til baka.
Í fyrirspurn Bergþórs er einnig
spurt um kostnað við lögfræðiráð-
gjöf og hvað vinna starfsmanna við
málin hafi kostað. En RÚV hefur á
undanförnum árum verið fundið
brotlegt af úrskurðarnefndum, til
dæmis Persónuvernd og Fjölmiðla-
nefnd. – khg
Vill fá að vita hvað Ríkisútvarpið hafi greitt í sektir og bætur
Fyrirspurn Bergþórs nær til áranna 2007 til 2019. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Árið 2017 greiddi RÚV
2,5 milljónir til þess að
meiðyrðamál yrði dregið til
baka.
5 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð