Fréttablaðið - 05.02.2020, Page 8
Vandinn sem við
erum að glíma við
núna er aðeins tímabund-
inn.
Jin Zhijian,
sendiherra Kína
á Íslandi
✿ Fjöldi skráðra smita og dauðsfalla af kórónaveirunni
Staðfest tilfelli 4.2.2020 kl. 16.00
BANDARÍKIN Niðurstöður forvals
Demókrata í Iowa fyrir komandi
forsetakosningar í Bandaríkjunum
lágu ekki fyrir þegar Fréttablaðið
fór í prentun í gær, tæpum sólar-
hring eftir að meðlimir f lokksins
í fylkinu hópuðust hver um sinn
f rambjóðanda íþrótt ahúsum,
kirkjum og skólum í fyrsta forvali
f lokksins fyrr forsetakosningarnar.
Framkvæmdastjóri kjörstjórnar
einnar sýslunnar sagði fjölmiðlum
vestanhafs að nýtt app sem nota átti
til að senda tölur hefði aldrei virkað
og að enginn svaraði í hjálparlínuna
sem kjörstjórnum var uppálagt að
hringja í ef vandræði yrðu með smá-
forritið.
Í yfirlýsingu flokksstjórnarinnar
í fylkinu var fullyrt að engin hætta
væri á því að öryggi kosninganna
væri ógnað og enginn grunur léki á
að brögð væru í tafli. Þá hafi smáfor-
ritið ekki klikkað heldur stemmdu
ekki þrjár talningar og mikilvægt
væri að skila réttum niðurstöðum.
Frambjóðendurnir taka klúðrinu
misjafnlega. Sumir tala um stórkost-
legt klúður en aðrir reyna að varð-
veita heiður flokksins og trúverðug-
leika forvalsins, meðal annars með
því að útvega kosningastjórninni
myndir af talningum og önnur gögn.
Repúblikanar hafa dregið Demó-
krata sundur og saman í háði á sam-
félagsmiðlum og minnt á ásakanir
um kosningasvindl í þágu Donalds
Trump í kosningunum 2016.
Repúblikanar eiga þó sjálfir erf-
iðar minningar af talningu í Iowa.
Árið 2012 var Mitt Romney sviptur
sigri í forkosningum í fylkinu eftir
endurtalningu. Eftir nýja talningu
kom í ljós að helsti keppinautur
Romneys hafði betur þótt ekki
munaði nema 34 atkvæðum. Kjör-
stjórn Repúblikana þurfti hins
vegar að játa sig sigraða þar sem
niðurstöður nokkurra kjördeilda
vantaði og lýsti því yfir að úrslitin
væru óráðin.
Forvalið í Iowa markar upphaf
forkosninganna og sigurvegari þess
hefur nær undantekningarlaust
fengið mikinn byr í seglin að því
loknu. Hagsmunir sigurvegarans af
því að niðurstöður séu kynntar á til-
settum tíma eru því miklir. Stjórn-
málaskýrendur vestanhafs velta því
nú fyrir sér hver raunveruleg ástæða
þessa klúðurs sé og ekki síður hver
áhrif þeirra kunni að verða bæði
fyrir frambjóðendurna og trú-
verðugleika flokksins. – aá
Martraðarkennt upphaf forvals Demókrata í Iowa
Í DAG, MIÐVIKUDAGINN 5. FEBRÚAR KL. 8.30-11.30
Í HÖRPU – NORÐURLJÓSUM
MENNTADAGUR ATVINNULÍFSINS 2020
Dagskrá og skráning á vef SA: www.sa.is
SKÖPUN
UTANRÍKISMÁL Kínversk yfirvöld
eiga von á því að smit og dauðsföll
vegna kórónaveirunnar, sem oft
er kennd við borgina Wuhan, eigi
eftir að ná hámarki eftir rúmar tvær
vikur. 427 eru látnir af völdum veir-
unnar og meira en 20 þúsund hafa
smitast. Jin Zhijian, sendiherra Kína
á Íslandi, segir að vonir séu bundnar
við að aðgerðir kínverskra stjórn-
valda verði til þess að veiran verði í
rénun jafnvel í lok mánaðarins.
Zhijian er mjög ánægður með
viðbrögð Íslendinga við veirunni.
Nokkuð hefur borið á fordómum
í garð Kínverja í tengslum við
kóróna veiruna, eru dæmi um að
veitingahús í Suður-Kóreu og Taí-
landi hafi neitað Kínverjum um
borð. Hann segist ekki hafa orðið
var við neitt slíkt hér á landi, þvert á
móti. „Það hafa engar kvartanir í þá
veru ratað til okkar,“ segir Zhijian.
Nefnir hann svo sérstaklega sam-
úðarkveðjur Katrínar Jakobsdóttur
forsætisráðherra til Kína sem hafi
verið tekið fagnandi.
Í samfélagi Kínverja á Íslandi eru
um 500 manns, sá fjöldi breytist þó
oft og mikið. Sendiráðinu er ekki
kunnugt um að fjölskyldumeðlimur
nokkurs sem býr hér á landi hafi
smitast. Hins vegar er mikill fjöldi
kínverskra ferðamanna staddur hér
á landi á hverjum tíma. Zhijian segir
að þó nokkrir hafi leitað til sendi-
ráðsins þar sem erfitt sé að ferðast
heim. „Það er talsverður fjöldi,
nokkrir tugir, sem hefur leitað til
okkar síðustu daga þar sem búið er
að fella niður f lugið heim, áhrifin
eru auðvitað minni hér þar sem það
er ekki beint f lug milli landanna.
Það er enginn kínverskur ríkis-
borgari fastur hér á Íslandi á þess-
ari stundu,“ segir Zhijian. „Vandinn
er öllu stærri annars staðar og það
eru dæmi um að kínversk stjórnvöld
hafi leigt f lugvélar til að koma fólki
heim.“
Aðilar í ferðaþjónustu hér á landi
hafa orðið varir við af bókanir frá
Kína, Zhijian segir það vera hluta
af aðgerðum yfirvalda þar í landi.
„Engar hópferðir, þetta er ein besta
leiðin til að koma í veg fyrir að smit
geti borist til annarra landa. Þetta
var mjög erfið ákvörðun, en þegar
okkur mun takast að ráða niðurlög-
um veirunnar í náinni framtíð þá
verður þessu breytt og það f ljótt,“
segir Zhijian. „Vandinn sem við
erum að glíma við núna er aðeins
tímabundinn.“
Bretar hafa beðið ríkisborgara
sína í Kína að koma heim og Banda-
ríkjamenn hafa sett strangar höml-
ur á ferðir fólks þangað frá Kína.
Zhijian segir þetta of harkaleg við-
brögð. „Þetta eru meiri hömlur en
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin,
WHO, mælir með. Leið Íslendinga er
mun skynsamari en þeirra. Dánar-
hlutfallið er 2,1 prósent. Minna en
með HABL, sem tók okkur hálft ár
að ráða bug á árið 2003. Við erum
líka loksins að sjá tölu þeirra sem
hefur batnað orðna hærri en þeirra
Segir vandann aðeins tímabundinn
Meira en 20 þúsund manns hafa nú smitast af kórónaveirunni sem kennd er við borgina Wuhan. Sendiherra Kína á Íslandi segir
viðbrögð Íslendinga hafa verið til fyrirmyndar. Stjórnvöld í Kína binda vonir við að veiran nái hámarki eftir rúmar tvær vikur.
sem hafa dáið. Við það má bæta
að aðeins eitt prósent af smitum
er utan Kína. Það er engin ástæða
til að stressa sig. Við sjáum ljós við
enda ganganna.“
Zhijian segir að viðbrögð Kín-
verja hafi svo verið talsvert meiri en
WHO hafi mælt með. „Við byggðum
sjúkrahús á níu dögum, það er ekk-
ert nema kraftaverk. Við erum búin
að einangra borgir, það er ekki auð-
velt að koma í veg fyrir að fólk ferð-
ist til og frá 11 milljón manna borg.
Við getum rétt svo ímyndað okkur
stöðuna ef við hefðum ekki ein-
angrað Wuhan og svæðið í kring.“
Varðandi f lugfélagið Juneyao
sem hyggst hefja f lug til Íslands í
lok mars segir Zhijian að það sé enn
á áætlun. „Við krossleggjum fingur,
að þetta verði allt gengið yfir þegar
að því kemur.“ arib@frettabladid.is
Land Tilvik Dauði
Kína 20.492 425
Ástralía 12
Bandaríkin 11
Belgia 1
Bretland 2
Filippseyjar 2 1
Finnland 1
Frakkland 6
Hong Kong 17 1
Indland 3
Ítalía 2
Japan 20
Kambódía 1
Kanada 4
Malasía 10
Land Tilvik Dauði
Makaó 10
Nepal 1
Rússland 2
SAF 5
Singapore 24
Spánn 1
Srí Lanka 1
Suður-Kórea 16
Svíþjóð 1
Taíland 25
Taívan 11
Víetnam 8
Þýskaland 12
Samtals 20.701 427
Heimild: The Center for Systems Science and Engineering
at Johns Hopkins og kínversk heilbrigðisyfirvöld.
5 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð