Fréttablaðið - 05.02.2020, Page 9

Fréttablaðið - 05.02.2020, Page 9
+PLÚS Christina Koch, geimfari hjá Geimferðastofnun Bandaríkjanna, NASA, um borð í alþjóðlegu geimstöðinni í gær. Hún mun snúa aftur til jarðar 6. febrúar, eftir 328 daga búsetu og störf um borð í geimstöðinni. Engin kona hefur dvalið lengur í geimnum. Hlutverk hennar hefur verið að hjálpa vísindamönnum við öflun gagna fyrir framtíðarverkefni á tunglinu og á Mars. MYND/NASA Það þarf ekki bara að verja mannfólkið fyrir kórónavírus með andlits- grímum. Það var að minnsta kosti skoðun eiganda þessa hunds sem hefur fengið pappírsbikar fyrir vitin á göngu sinni í Peking í gær. NORDICPHOTOS/AFP Par með andlitsgrímur tekur sjálfu eða selfí á útsýnisstað í Hong Kong, Kína. NORDICPHOTOS/AFP Elísabet 2. Bretadrottning, sem er 94 ára, slær ekki slöku við í embættis- skyldum sínum. Hér gengur hún með James Beck, foringja í Konung- lega breska flughernum (RAF), fram hjá heiðursverði RAF, í heimsókn á nýrri þjálf- unarmiðstöð flughersins fyrir flugmenn nýrra herþota sem bera heitið F-35B Lightning II. NORDIC­ PHOTOS/GETTY Það var mikið um dýrðir í gær á þjóðhátíðardegi Alþýðulýðveldisins Srí Lanka. Þetta eyríki út af suðausturströnd Indlandsskaga fékk sjálfstæði frá Bretlandi 4. febrúar 1948. Hér eru dansarar í skrúðgöngu á þjóðhátíðinni í Kólombó, höfuðborg og stærstu borg landsins. NORDICPHOTOS/AFP

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.