Fréttablaðið - 05.02.2020, Side 23
Í hartnær 50 ár hafa rafiðnaðarmenn verið virkir í endurmenntun fagmanna í greininni.
Þegar árið 1973 hófst formleg
endurmenntun á vegum Félags
íslenskra rafvirkja en þar var
lagður grunnurinn að því sem við
erum í dag,“ segir Þór.
Tækniframfarir kveikjan
að endurmenntun
Drifkrafturinn að baki endur
menntuninni var að bregðast við
tækninýjungum í starfsgrein sem
er í stöðugri þróun. „Það sem ýtti
endurmenntuninni formlega í
gang á þessum árum var gríðarleg
tækniþróun og framfarir í rafiðn
greininni með tilkomu stórvirkj
ana og stóriðju. Menn áttuðu sig á
því að þekking rafiðnaðarmanna
þess tíma náði ekki yfir þessar
nýjungar og almennt í námi þess
tíma til sveinsprófs var ekki fjallað
um þær,“ skýrir Þór frá.
Þór segir nemendum í grunn
námi hafa fjölgað sem sé afar
ánægjulegt, enda sé nám af þessu
tagi afar hagkvæmt og bjóði upp
á ótal valmöguleika. „Segja má að
nám í rafiðnaði sé góður grunnur
fyrir framtíðina. Þar sem ljóst er
að framtíðin stefnir bara í meiri
sjálfvirkni, hvort sem það snýr að
framleiðslu, f lokkun eða kringum
daglegt líf einstaklinga. Nám í
rafiðnaði er einnig mjög góður
grunnur að frekara námi í tækni
og verkfræði.“
Námið opni dyr í allar hugsan
legar áttir. „Störf rafiðnaðarmanna
eru mjög fjölbreytt og má segja
að það fari eftir áhugasviði á
hvaða línu rafiðnaðarmenn lenda.
Störfin spanna allt frá framleiðslu,
f lutningi, dreifingu orkunnar til
notkunar hvers konar. Notkunin
getur verið hjá stóriðju, sveitar
félögum, minni fyrirtækjum og
einkaheimilum,“ útskýrir Þór.
„Alls staðar á þessari leið eru raf
iðnaðarmenn starfandi. Þá eru
ótalin fjarskiptafyrirtækin, hvort
sem um er að ræða hljóð, mynd
eða önnur rafræn samskipti og
svona má lengi telja.
Sveigjanleg þjónusta
Óhætt er að fullyrða að það sé nóg
um að vera innan veggja RAF
MENNTAR.
„RAFMENNT sinnir fjölda verk
efna sem snúa að menntun rafiðn
aðarmanna. Árlega eru hér í húsi
rúmlega 150 rafvirkjar í sveins
prófi sem haldið er tvisvar á ári.
Einnig eru hér kenndar faggreinar
í meistaranámi rafiðnaðarmanna.
Nú eru um 70 nemendur skráðir í
fagnámi meistaranáms á þessari
önn.“
Þjónustan einkennist af miklum
sveigjanleika en starfsemin er
til að mynda ekki bundin við
höfuðborgarsvæðið. „Framkvæmd
endurmenntunar er með ýmsum
hætti. Haldin eru námskeið hér í
húsi en einnig erum við færanleg
þannig að námskeið eru einnig
haldin í fyrirtækjum eða í skólum
á landsbyggðinni,“ segir Þór.
Ýmist sé óskað eftir tilteknum
eða jafnvel sérsniðnum námskeið
um sem þjóna ólíkum þörfum
mismunandi fyrirtækja. „Oft óska
fyrirtæki eftir því að fá námskeið
sem eru í boði hér til sín en einnig
koma þau með óskir um sérhæfð
námskeið sem við þá útbúum í
samvinnu við þau.“
Tenging við yngri kynslóðir
Verksvið RAFMENNTAR nær víða
og er af ýmsum toga.
„Við sjáum um umsýslu um
námssamninga og getum verið
nemendum innan handar við
að finna sér fyrirtæki til að
gera námssamning við. Einnig
sjáum við um vottun menntunar
erlendra rafiðnaðarmanna.“
Þá stendur skjólstæðingum
okkar til boða að gangast undir
svokallað raunfærnimat.
„Raunfærnimat er stórt verkefni
hjá okkur, þar sem við sjáum um
kynningu og fræðslu, útvegum
fagmenn sem meta þátttakendur
og útbúum þannig ferli sem þátt
takendur geta fengið metið inn í
skólana til að ljúka námi.“
RAFMENNT leggur jafnframt
ríka áherslu á að skapa tengingu
við yngri skólastig.
„RAFMENNT er í góðu samstarfi
við framhaldsskólana á landinu,
árlega færum við nemendum sem
hefja nám í rafiðngreinum spjald
tölvur. Við það tilefni hittum við
kennara og stjórnendur sem eykur
samtalið og önnur jákvæð sam
skipti,“ segir Þór. „Einnig höldum
við úti raf bók þar sem allt náms
efni sem nemendur í grunnnámi
þurfa, nemendur og kennarar hafa
þar gjaldfrjálsan aðgang að þessu
efni. Spjöldin sem nemendur fá eru
einmitt ætluð til að auðvelda þeim
aðgang að þessu efni á meðan á
námi stendur.“
Endurmenntun hefur aldrei
verið mikilvægari en nú
Þór leggur sérstaka áherslu á
mikilvægi og nauðsyn endur
menntunar í síbreytilegum sam
tíma.
„Hafi verið ástæða til að rafiðn
aðarmenn sæktu endurmenntun
árið 1973, hver er þá staðan í dag!
Það er auðvitað alveg morgun
ljóst að þær framfarir, þróun og
nýjungar sem komið hafa fram í
þessari grein eru gríðarlegar og
fjölbreytni í störfum rafiðnaðar
manna er gríðarleg.“
Rafiðnaðarmenn geti víða
komið sterkir inn.
„Veröldin er að verða svo
snjöll að ljósastaurarnir ákveða
sjálfir hvenær þeir lýsa götur og
gangstíga. Bílar keyra sjálfir svo
maður geti slakað á á leiðinni
heim. Þarna kemur rafiðnaðurinn
sterkur inn þar sem þetta er illa
framkvæmanlegt án stýringa og
sjálfvirkni.“
Snjallvæðingin geri það þó að
verkum að allir þurfi að vera á
tánum, ekki einungis þau sem eru
að stíga sín fyrstu skref á vinnu
markaðinn. „Það er mikið talað
um að ekki séu til þau störf í dag
sem verði til þegar ungt fólk í dag
kemur út á vinnumarkaðinn og
fer að vinna, það segir manni þá
bara það að þeir sem eru á vinnu
markaði í dag þurfa að vera á
tánum til að halda í þá þróun.“
Það hafi raunar aldrei verið jafn
áríðandi að viðhalda og bæta við
þekkingu sína og kunnáttu eins
og núna, í hringiðu fjórðu iðn
byltingarinnar.
„Þar kemur endurmenntun
sterk inn til að starfandi rafiðn
aðarmenn verði tilbúnir í þessi
nýju störf. Við erum í miðri fjórðu
iðnbyltingunni og vitum ekkert
hvert tæknin er að taka okkur,
og því er ljóst að endurmenntun
er ekki síður mikilvæg á þessum
tímum sem við lifum en hingað
til.“
RAFMENNT er á Stórhöfða 27.
Sími 540 0160. Sjá rafmennt.is
Hér má sjá hluta af verkefni þeirra Maríönnu Rögnu og Partyks.
Framhald af forsíðu ➛
Við erum stödd í
miðri fjórðu iðn-
byltingunni og vitum
ekkert hvert tæknin er
að taka okkur. Því er
ljóst að endurmenntun
kemur sterk inn til að
starfandi rafiðnaðar-
menn verði tilbúnir í þau
nýju störf.
Þau Maríanna Ragna og Partyk Slot eru þessa dagana að undirbúa sig fyrir keppni í rafvirkjun á Euroskills 2020. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Það krefst kunnáttu og hæfileika að útbúa rafmagnstöflur fyrir Euroskills.
Hér fer fram kennsla í PLC-stýringum í einni af skólastofum RAFMENNTAR.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 5 . F E B R ÚA R 2 0 2 0 M I ÐV I KU DAG U R