Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.02.2020, Qupperneq 27

Fréttablaðið - 05.02.2020, Qupperneq 27
 4 KYNNINGARBLAÐ 5 . F E B R ÚA R 2 0 2 0 M I ÐV I KU DAG U RUT MESSAN Þór Haraldsson, framkvæmda- stjóri Spektra, segir að nýlega hafi komið uppfærsla á Work Point hug- búnaðinn sem auðveldar mjög utanumhald og skipulagningu á Microsoft Teams lausninni. FRÉTTABLAÐIÐ/ STEFÁN Spektra er Microsoft ráð­gjafarfyrirtæki með 12 starfsmenn sem hefur verið starfrækt frá árinu 2013. „Við bjóðum upp á tilbúnar lausnir, sérlausnir og ráðgjöf í Microsoft lausnum,“ segir Þór Haraldsson, framkvæmdastjóri Spektra. „Meðal tilbúinna lausna er WorkPoint, sem er danskur hugbúnaður sem byggir á Share­ Point og Office 365. WorkPoint býður upp á alls kyns möguleika sem geta auðveldað yfirlit og skipulag á ýmsan hátt, svo sem fullbúna skjalavistun, verkefna­ lausn, málaskrá, samningaumsjón og funda­ og stjórnargátt. Í dag nota um 40 fyrirtæki og stofnanir á Íslandi WorkPoint. Meðal þeirra eru fyrirtækin Arion banki, CRI, Domino’s, Ef la verkfræðistofa, Fiskistofa, Landsvirkjun, LS Retail, Norðurál, Norðurorka, Veðurstofan og VSÓ Ráðgjöf,“ segir Þór. „Það eru því ýmis stór, reynd og umsvifamikil fyrirtæki sem nýta sér þessa gagn­ legu lausn.“ WorkPoint og Teams „Nýlega kom uppfærsla á WorkPoint hugbúnaðinn sem auðveldar utanumhald og skipu­ lagningu á hinni vinsælu Micro­ soft Teams lausn,“ segir Þór. „Þar er meðal annars hægt að stjórna miðlægt hvaða lýsigögn séu á skjölum og gögnum. Þá er einnig hægt að stýra því hvaða f lipar stofnast og hvaða gögn birtast þar undir hverju Teams svæði. Í WorkPoint er sett upp eining sem getur falið í sér bæði sam­ þykktarferli og boðið upp á öll lýsigögn á Teams svæðum. Einingin gefur manni því yfirsýn yfir öll Teams svæði, hverjum þau tilheyra og hvernig þau f lokkast,“ segir Þór. „Það er svo hægt að uppfæra uppbyggingu lýsigagna skjalasafns miðlægt í Teams, þannig að það er til dæmis hægt að bæta við nýrri tegund lýsigagna einu sinni og þá skilar breytingin sér í öll núverandi skjalasöfn og þau sem verða stofnuð í framtíðinni. Þessi miðlæga stjórn auðveldar mjög skipulag og utanumhald skjala­ safna. Með því að nota WorkPoint Express viðbótina í Outlook er svo leikur einn að vista tölvu­ pósta inn á Teams og láta þá birtast þar í f lipa,“ útskýrir Þór. Tengingar við bókhaldskerfi og tímaskráningu „Við gerum líka mikið af því að tengja WorkPoint við bókhalds­ kerfi,“ segir Þór. „Þegar kerfin hafa verið tengd saman f læða upplýs­ ingar um viðskiptavini, birgja og samstarfsaðila frá bókhaldskerfi yfir í WorkPoint. Þá er hægt að sjá á einum stað allar upplýsingar um fyrirtækin, öll verkefni, samninga og skjöl. Með því að tengja WorkPoint svo við tímaskráningu fáum við stöðu verkefna miðað við áætlun,“ segir Þór. „Þannig geta verkefna­ stjórar meðal annars séð viðvör­ unarmerki ef verkefni eru í hættu á að fara yfir á tíma. Við bjóðum líka upp á f leiri tilbúnar lausnir, meðal annars gæðahandbækur fyrir fyrirtæki sem leggja þeim línurnar til að setja upp verklagsreglur, gátlista, eyðublöð og ferla, ásamt því að gera þeim kleift að setja upp sam­ þykktar­ og rýniferli,“ segir Þór. „Við bjóðum líka upp á innri vefi og innri og ytri úttektir. Svo erum við með kennslustofu þar sem við bjóðum upp á námskeið í öllum helstu lausnum í Office 365.“ Komdu skipulagi á Teams Spektra býður upp á WorkPoint, sem er vinsæll danskur hugbúnaður sem byggir á SharePoint og Office 365. Workpoint hugbúnaðurinn getur komið skipulagi á Microsoft Teams lausnina. WorkPoint býður upp á ýmsa notkunarmöguleika sem bæta yfirsýn og veitir miðlæga stjórn, sem auðveldar meðal annars skipulag og utanumhald skjalasafna. Í dag nota um 40 fyrirtæki og stofnanir á Íslandi WorkPoint. WorkPoint býður upp á alls kyns möguleika sem geta auðveldað yfirlit og skipulag á ýmsan hátt, svo sem fullbúna skjala­ vistun, verkefnalausn, málaskrá, samninga­ umsjón og funda­ og stjórnargátt.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.