Fréttablaðið - 05.02.2020, Síða 35
Ef út gef end ur eða
aðrir vilja sækja
rík isaðstoð þá er það ekki
hlut verk Ísland s pósts að
veita hana frek ar en
annarra fyr ir tækja á
markaði.
Birgir Jónsson,
forstjóri Íslandspósts
02.02.2020
MARKAÐURINN Instagram fréttablaðsins@frettabladidfrettabladid.is
Miðvikudagur 5. febrúar 2020FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS UM VIÐSKIPTI OG FJÁRMÁL |
Þorsteinn Friðrik
Halldórsson
SKOÐUN
Það var kominn tími til. Þremur og hálfu ári eftir afdrifaríka þjóðaratkvæða-
greiðslu er Bretland loksins gengið
úr Evrópusambandinu. Þessi sögu-
legu þáttaskil eru fagnaðarefni
fyrir Bretland og nauðsynleg fyrir
Evrópusambandið.
Bretar eru nú í komnir í stöðu til
að grípa hin fjölmörgu tækifæri í
alþjóðaviðskiptum sem áður voru
utan seilingar. Þá skiptir miklu
máli að hafa stefnufastan og stór-
huga leiðtoga við stjórnvölinn. Ef
leiðtoginn hugsar á sömu nótum
og sumir álitsgjafar, það er að segja
að Bretar sitji ekki lengur við stóra
borðið, verður ávinningurinn
minni en ella. Hugarfarið skiptir
máli og Boris Johnson forsætisráð-
herra hefur sýnt að hann sé rétti
maðurinn í verkið. Hann sér tæki-
færin og er tilbúinn að grípa þau.
Hvað ESB varðar ætti leiðtogum
og embættismönnum þess nú að
vera ljóst að aðildarþjóðir geta
fengið nóg og sagt sig úr samband-
inu. Það er engu fyrirtæki hollt
að taka viðskiptavinum sínum
sem sjálfsögðum hlut og það sama
gildir um ríkjasamband. Ósögð en
trúverðug hótun um útgöngu þarf
að liggja að baki þátttöku í slíku
samstarfi til þess að því sé veitt
aðhald. Hugsanlega þarf hótun um
aðra eða þriðju útgöngu aðildar-
ríkis til að embættismennirnir átti
sig á stöðunni.
Eitt af því sem hefur einkennt
Brexit-deiluna frá upphafi – og
mun líklega einkenna hana til
enda – er hroki af hálfu þeirra
sem sætta sig ekki við niðurstöðu
þjóðaratkvæðagreiðslunnar.
Þetta á við ýmsa embættismenn,
stjórnmálamenn og álitsgjafa.
Þeir fullyrða að blekkingaráróður
frá breskum útgöngusinnum og
jafnvel rússneskum undirróðurs-
mönnum geti hafa ráðið úrslitum.
Hins vegar telja þeir sjálfa sig
ónæma fyrir slíkum áróðri.
Þannig er yfirlætið afhjúpað.
Það hvarflar ekki að þeim að svart-
sýnisspárnar, sem þeir bera á borð
en aldrei rætast, séu helsti áróður-
inn. Né heldur að niðurstaðan
endurspegli sanna óánægju með
ESB sem grundvallast í gildismati
kjósenda. Nei, skýringin er sú, að
þeirra mati, að kjósendur – og þá
er oftast verið að vísa til láglauna-
stétta – láti blekkjast af slóttugum
stjórnmálamönnum.
Þrátt fyrir allar svartsýnis-
spárn ar og dragbítana hefur
breska þjóðin náð fram kröfunni
sem fólst í niðurstöðu þjóðarat-
kvæðagreiðslunnar. Bretar geta
nú skapað fordæmi fyrir aðrar
aðildarþjóðir sem eru hugsi yfir
stöðu ESB. Tíminn mun leiða í ljós
að útganga Bretlands úr samband-
inu – rétt eins og höfnun íslensku
þjóðarinnar á Icesave – hafi verið
farsælt skref. Aldrei skal vanmeta
þjóð sem fær sjálfstraust og tekur
örlögin í eigin hendur.
Með örlögin í
eigin höndum
PwC | Bókhald & laun | Sími 550 5300 | www.pwc.is
PwC á Íslandi er framsækið og traust fyrirtæki sem veitir sérfræðiþjónustu á sviði fyrirtækja- skatta- og lögfræðiráðgjafar,
endurskoðunar og reikningsskila. Fyrirtækið er íslenskt og er hluti af alþjóðlegu neti sjálfstæðra fyrirtækja sem aðstoðar
viðskiptavini sína við að auka verðmæti, stjórna áhættu og bæta árangur sinn.
Reykjavík | Akureyri | Reykjanesbær | Húsavík | Selfoss | Hvolsvöllur | Vestmannaeyjar
Með nýjum rafrænum lausnum sjáum við um bókhald þitt á
einfaldan og öruggan hátt meðan þú sinnir rekstrinum og hefur
góða yfirsýn yfir stöðuna.
Taktu skrefið inn í framtíðina með okkur, útvistaðu bókhaldinu
og njóttu þess að hafa meiri tíma fyrir þig.
Sjá nánar á www.pwc.is/bokhald
Enginn
tími fyrir
bókhaldið?
Bókhald & laun
Valdimar Ármann, sem var áður for-stjóri GAMMA Capital Management, hefur verið ráðinn til verðbréfafyrir-
tækisins Arctica Finance. Valdimar, sem er
hagfræðingur og verkfræðingur að mennt,
staðfestir það í samtali við Markaðinn en
hann hefur hafið störf sem sérfræðingur í
markaðsviðskiptum félagsins.
Valdimar lét af störfum sem forstjóri
GAMMA í september í fyrra, eftir að hafa stýrt
félaginu frá því í ársbyrjun 2017,
en áður hafði hann gegnt starfi
framkvæmdastjóra sjóða hjá fjár-
málafyrirtækinu um margra ára
skeið.
Þá starfaði Valdimar um árabil
í London og New York við verð-
bólgutengd afleiðuviðskipti, fyrst
hjá hollenska bankanum ABN
AMRO og síðar Royal Bank of Scotland. – hae
Valdimar Ármann til Arctica
Valdimar Ármann