Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.02.2020, Qupperneq 40

Fréttablaðið - 05.02.2020, Qupperneq 40
Sýningarsalur Draghálsi 4 - Sími: 535 1300 - verslun@verslun.is TA K T IK 5 5 6 3 # Húsgögn fyrir hótel og veitingastaði 135 ára hefð Við státum af yr aldarlangri hefð. Við höfum búið til stóla síðan 1881, byggð á Thonet stíl húsgagnagerðarhefðarinnar. Við erum erngjar í hæsta stigi handverks sem er vel þegið af samfelldum kynslóðum viðskiptavina, undan- tekningarlaust öruggir í vörumerkinu okkar. Fameg - Um fyrirtæki Hin einstaka viðar beygja tækni var upprunnin á 19. öld af Michael Thonet. Í meira en heila öld höfum við haldið áfram með þetta magnaða iðn, búið til tímalaus húsgögn fyrir komandi kynslóðir. Við hegðum okkur með tilliti til fólks og náttúru í kringum okkur. Verðlaunastóllinn armchair V e r ð l a u n a s t ó l l i n n á r i ð 2 0 2 0 - A r c h Handverksstólar í meira en 100 ár. Thonet húsgagnahefðin kallar aðeins á gegnheilan efnivið í hæsta gæðaflokki TÓNLIST Sinfóníutónleikar Verk eftir Atla Heimi Sveinsson, Snorra Sigfús Birgisson, Missy Mazzoli, Báru Gísladóttur og Huga Guðmundsson Eldborg í Hörpu Fimmtudaginn 30. janúar Einleikari: Andreas Borregaard Lírukassar eru sjaldséð sjón á Íslandi og víðar sjálfsagt líka. Maður rak því upp stór augu þegar lírukassa var rúllað inn á svið í Eld- borg á tónleikum Sinfóníuhljóm- sveitar Íslands á Myrkum músík- dögum á fimmtudagskvöldið. Þetta var á undan frumf lutningnum á harmóníkukonsert eftir Huga Guð- mundsson sem bar heitið Box og var einleikari Andreas Borregaard. Verkið byrjaði bara eins og hver annar einleikskonsert, með hljóm- sveitarleik, harmóníkuleik og ein- hverri blöndu þar á milli. En svo allt í einu var eins og einleikarinn missti áhugann á hljóðfærinu sínu og fór að fikta við lírukassann. Hann opn- aði hann varlega og fór svo að snúa hjólinu sem lætur hann spila, en það var brotakenndur vals. Á meðan lék hljómsveitin undir og það skapaði furðulega sterka heildarmynd. Við tók nú óvanalega frumleg samsuða lírukassaleiks og harmóníkuspils með dyggri þátttöku hljómsveitar- innar. Var hún í senn draumkennd og nostalgísk, en einnig áleitin og þrungin merkjanlegum sársauka sem snart mann. Guð bjargaði málunum Konsertinn var í þremur hlutum. Annar hlutinn bar yfirskriftina Deus ex machina, það er, Guð í vél- inni. Það er nafnið á ódýru bragði í leikhúsi, kvikmyndum eða skáld- sögu, þegar eitthvað óvænt gerist sem reddar annars óleysanlegu vandamáli eða aðstæðum. Hug- takið átti við konsertinn í heild sinni, lírukassinn var svo sannar- lega Guð í vélinni, utanaðkomandi afl sem breytti atburðarásinni svo Lírukassinn rokkaði á Sinfóníutónleikum Þetta er án efa einn merkasti einleikskonsert íslenskra tónbókmennta, segir í dómnum um Box, verk Huga Guð- mundssonar tónskálds, þar sem harmóníka og lírukassi komu meðal annars við sögu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Hvað? Hvenær? Hvar? Miðvikudagur hvar@frettabladid.is 5. FEBRÚAR 2020 Orðsins list Hvað? Menntadagur atvinnulífsins Hvenær? 08.30-11.30. Hvar? Norðurljós, Hörpu Fjallað um sköpun í íslensku atvinnulífi og menntakerfi út frá fjölmörgum sjónarhornum. Hvað? Breytingar í lífríki hafsins Hvenær? 12.15 Hvar? Náttúrufræðistofa Kópavogs Hrönn Egilsdóttir sjávarvistfræð- ingur fjallar um lífríki hafsins. Aðgangur ókeypis. Hvað? Jafnréttisdagar í HÍ Hvenær? 14.00-16.00 Hvar? Setberg – Hús kennslunnar HÍ, Suðurgötu Vinnustofa um innflytjendur og háskólanám. Hvað? Höfundakvöld Hvenær? 19.30 Hvar? Norræna húsið Gestur er sænski rithöfundurinn og þýðandinn Gunnar D. Hansson, dósent í bókmenntafræði og fyrr- verandi prófessor við Háskólann í Gautaborg. Umræðan fer fram á sænsku og dönsku. Streymt er frá viðburðinum. Hvað? Lífsstílskaffi – Áskoranir Hvenær? 20.00-22.00 Hvar? Borgarbókasafnið Gerðu- bergi Margrét Jónsdóttir Njarðvík, leið- sögumaður og eigandi ferðaskrif- stofunnar Mundo, segir frá Jakobs- veginum sem er krefjandi og segir frá mismunandi leiðum sem hæfa fólki með ólíka getu. Hvað? Landhelgi og efnahagur Hvenær? 20.00 Hvar? Sjóstangaveiðifélagið, Grandagarði 18 Jóhann Sigurjónsson, fyrrverandi forstjóri Hafró, fjallar um fiski- stofnana og útfærslu landhelg- innar á 8. áratugnum og Ragnar Árnason, prófessor í fiskihagfræði, um efnahagslega þýðingu þeirra gjörða. Aðgangur er ókeypis. Hvað? Hvar er draumurinn? Hvenær? 20.30. Hvar? Háaleitisbraut 13, IV. hæð ADHD samtökin bjóða upp á opinn spjallfund, um svefn barna með ADHD. Tónlist Hvað? Útgáfutónleikar á Múlanum Hvenær? 20.00 Hvar? Kaldalón, Hörpu Kvartett Einars Scheving fagnar útkomu nýs disks. Landsdómnefndir Barna- og unglingabókmenntaverðlauna Vestnorræna ráðsins tilnefna eftirfarandi þrjú verk til Barna- og unglingabók mennt averðlauna Vestnorræna ráðsins 2020: Grænland: Orpilissat nunarsu- armi kusanarnersaat (Det smuk- keste juletræ i verden) eftir Juaaka Lyberth, Milik, 2019, skáldsaga með myndum. Ísland: Langelstur að eilífu (For- evigt den allerældste) eftir Berg- rúnu Írisi Sævarsdóttur, Bókabeit- an, 2019, skáldsaga með myndum. Færeyjar: Loftar tú mær? (Griber du mig?) eftir Rakel Helmsdal, Bókadeild Føroya Lærarafelags, 2019, skáldsaga með myndum. Tilkynnt verður um sigurverkið 2020 á bókmenntahátíðinni Bóka- dagar í Norræna húsinu í Þórshöfn, Færeyjum, í nóvember. Verðlaunin eru veitt annað hvert ár vestnorrænu bókmenntaverki ætluðu börnum og ungu fólki. Fær- eyska barnabókin Træið (Tréð) hlaut verðlaunin 2018. Bók Bergr- únar Írisar, Langelstur að eilífu, hreppti á dögunum Íslensku bók- menntaverðlaunin í f lokki barna- og unglingabóka. Bergrún Íris tilnefnd Bergrún Íris sankar að sér viður- kenningum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR hún hlaut farsælan endi. Borregaard spilaði frábærlega vel og hljómsveit- in sömuleiðis undir öruggri stjó n Daníels Bjarnasonar, útkoman var einkar ánægjuleg. Þetta er án efa einn merkasti einleikskonsert íslenskra tónbókmennta. Gaman var líka að verkinu Hjakk, sem var eftir Atla Heimi Sveinsson. Það er upphaflega frá sjöunda áratug síðustu aldar, en Atli endurskoðaði það rúmum tíu árum síðar. Eins og nafnið ber með sér var tónmálið kraftmikið og endurtekningasamt, en um leið var uppbygging þess markviss og glæsileg, með áhrifa- miklum hápunkti og flottu niðurlagi. Hefði mátt ver le gra Hin efnilega Bára Gísladóttir átti tónsmíð á tónleikunum, Ós að nafni. Hún var örstutt og hefði vel mátt vera helmingi lengri, því hún var nánast búin áður en hún byrj- aði. Maður bjóst jafnframt við meiru frá Missy Mazzoli, en samkvæmt tónleikaskránni átti verkið, Sin- fonia (for Orbiting Spheres), að vera eins konar tónræn eftirlíking af sólkerfinu. Það sem heyrðist var meira eins og rómantískt næturljóð, áferðarfallegt vissulega, en ekki sér- lega tilkomumikið. Loks ber að nefna konsert fyrir hljómsveit eftir Snorra Sigfús Birgisson, sem hér var frumfluttur. Tónlistin var mestan partinn tví- þætt, annars vegar voru hrjúfar laglínur þar sem blásturshljóð- færi voru áberandi, h ns vegar liggjandi strengjahljómar sem hefðu þess vegna getað sómt sér í einhverri „noir“ bíómynd. Þetta skilaði sér í dramatískri togstreitu sem var ávallt áhugaverð en kom þó aldrei beinlínis á óvart. Tónlist- in var kannski dálítið gamaldags og í ætt við margt sem var gert á síðustu áratugum aldarinnar sem leið. Jónas Sen NIÐURSTAÐA: Skemmtilegir tón- leikar með magnaðri tónlist og góðum flutningi. LÍRUKASSINN VAR SVO SANNARLEGA GUÐ Í VÉLINNI, UTANAÐKOMANDI AFL SEM BREYTTI ATBURÐA- RÁSINNI. M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 19M I Ð V I K U D A G U R 5 . F E B R Ú A R 2 0 2 0

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.