Fréttablaðið - 05.02.2020, Side 49
RITSTJÓRN
ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD
auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN
Torg. ehf
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 550 5000
Jónu Hrannar
Bolladóttur
BAKÞANKAR
buzzador®
Fjórum sinnum um ævina hef ég verið þar stödd að ég hef þurft nauðsynlega að
komast í skjól frá álagi, streitu,
hugarþvætti og aukakílóum. Ég hef
notið þeirrar blessunar að geta í
þessum tilfellum dvalið á Heilsu-
stofnun NLFÍ í Hveragerði. Okkur
hættir oft til þess að leita langt yfir
skammt, en það að geta ekið bara
yfir Hellisheiðina og átt slíkan
vin sem Heilsustofnunin reynist,
er mikið lán í íslensku samfélagi.
Enda kemur í ljós að meðalaldur
þeirra sem þangað sækja hefur
lækkað verulega á síðustu árum og
hópurinn orðið fjölbreyttari.
Einu gildir hvert litið er á þessum
heilunarstað, hvort sem það er
fólkið í móttökunni, sundlauginni,
ræstingunni eða hjúkrunar-
fræðingar, læknar, sjúkranuddarar
eða -þjálfarar, eldhúsfólkið sem
ber fram þennan næringar- og
litríka mat; alls staðar er valinn
maður í hverju rúmi. Hvers kyns
asi og ónot eru fjarri heldur ríkir
andrúmsloft virðingar, vináttu
og hvatningar sem verður til
þess að gestir hússins tileinka sér
falleg samskipti. Enda sér maður
vináttu skapast milli fólks þar
sem gott samtal fær að þróast,
lífssögur eru sagðar og sorgum og
gleði deilt. Augljós metnaður sem
um leið virkar svo áreynslulaus
birtist í öllum aðbúnaði. Eins eru
fyrirlestrar um gildi húmors og
núvitundar, aðferðir við slökun og
minnisþjálfun eða hvernig vinna
má með verki og bæta mataræði
hver öðrum betri. Landsmenn eru
lánsamir að eiga svona heilagan
stað sem fengið hefur að þróast og
blómstra í áranna rás.
Ég get alltaf af heilu hjarta hvatt
fólk sem mætt hefur áföllum, álagi,
sorgum og veikindum að fara og
dvelja á Heilsustofnun NLFÍ, því
ég hef reynt gildi starfseminnar á
eigin skinni.
Heilsustofnun
NLFÍ Út fyrir þægindarammann
og umhverfis hnöttinn
Öll þekkjum við Sveppa, en færri vita að hann er Sverrisson og þeim
Sverri kynnumst við betur í Pabbi skoðar heiminn, skemmtilegri og
einlægri þáttaröð þar sem Sveppi dregur pabba sinn út fyrir þæginda-
rammann og dröslar honum með sér í heimsreisu.
Öll þáttaröðin er komin í Sjónvarp Símans Premium.
siminn.is
VÁ VERÐ
SAMBÓ
ÞRISTUR 28 G
69
KR/STK
2464 KR/KG