Fréttablaðið - 08.02.2020, Blaðsíða 38
VIÐ LEITUM AÐ
LIÐSAUKA Á TÍMUM BREYTINGA
Mennta- og menningarmálaráðuneytið er ráðuneyti framtíðarinnar.
Við berum ábyrgð á menntamálum, vísindum, íþrótta- og æskulýðs-
málum og menningu. Sameiginlegur þráður í verkefnum okkar er
skapandi hugsun, eiginleiki sem verður sífellt mikilvægari fyrir
einstaklinga jafnt sem samfélög. Við tökum framtíðinni fagnandi.
Tímar breytinga eru runnir upp í ráðuneytinu. Við ætlum að efla
fagskrifstofur, endurskoða vinnulag og ferla og bæta stuðning við
stjórnendur stofnana. Við viljum auka skilvirkni og bæta upplýsinga-
gjöf til almennings, stofnana og starfsfólks.
HVERNIG
FÓLK VILJUM VIÐ?
Við leitum að drífandi einstaklingum sem brenna fyrir málaflokkum
ráðuneytisins. Fólki sem hugsar í lausnum og sér tækifæri í öllum
hindrunum. Við viljum ráða til starfa einstaklinga sem þrífast á
krefjandi verkefnum, skynja taktinn í samfélaginu og elska breytingar.
Við ætlum sérstaklega að auka áherslu á stjórnun mannauðsmála,
stafrænar breytingar, tölfræði og greiningar.
Okkur er annt um að málaflokkar ráðuneytisins dafni og fjármunir
nýtist sem best til að bæta samfélagið. Undir ráðuneytið heyra 52
stofnanir eða um þriðjungur af stofnanakerfi íslenska ríkisins. Á
fjárlögum þessa árs er um 115 milljörðum króna varið til okkar
málaflokka.
LIFANDI
VINNUSTAÐUR
Við erum 73 talsins og komum úr ólíkum áttum; lög- og listfræðingar,
íslensku-, bókmennta- og kennslufræðingar, kennarar, smiðir, íþrótta-,
mann- og guðfræðingar. Hér starfa tónlistarmenn og fornleifafræðing-
ar, menningarstjórnendur og fjölmiðlafræðingar. Hér starfa þrír karlar
fyrir hverjar sjö konur, en við horfum fyrst og fremst á hæfileika hvers
og eins, en ekki kyn, áhugamál, skoðanir eða hneigðir. Við rekum
öflugt starfsmannafélag sem gerir lífið skemmtilegra.
SKRIFSTOFUSTJÓRAR
á skrifstofu skóla-, íþrótta- og æskulýðsmála
á skrifstofu framhaldsskóla og -fræðslu
Skrifstofustjórar stýra starfsemi sinnar skrifstofu og annast
almennan rekstur. Þeir bera ábyrgð á því að skrifstofan sinni
stjórnsýslulegum skyldum sínum og að stefnumarkandi
ákvörðunum ráðherra sé hrint í framkvæmd.
Skrifstofustjórar eiga að draga fram það besta í starfsfólki
sinnar skrifstofu, setja því markmið og mæla árangur.
Skrifstofustjórar bera ábyrgð á því að rekstraráætlanir stofnana
ráðuneytisins séu gerðar og þeim sé fylgt í samræmi við fjárlög.
Skrifstofustjórar leiða samstarf við aðrar skrifstofur, önnur
ráðuneyti, hagaðila og aðra innlenda og erlenda aðila sem
koma að málefnum viðkomandi skrifstofu.
Við leitum að einstaklingum sem búa yfir:
• Stjórnunarreynslu og færni í því að skapa liðsheild á vinnustað.
• Þekkingu á sviði rekstrar og starfsmannastjórnunar.
• Reynslu af verkefnastjórnun og áætlanagerð.
• Þekkingu og reynslu á sviði opinberrar stjórnsýslu.
• Meistaragráðu á háskólastigi sem nýtist í starfi.
• Jákvæðu og lausnamiðuðu viðhorfi, þjónustulund og metnaði.
MANNAUÐSSTJÓRI
Starf mannauðsstjóra er nýtt í ráðuneytinu og því viljum við ráða
drífandi einstakling með skýra sýn, faglega þekkingu og reynslu.
Við gerum kröfu um:
• Getu, vilja og þor til ákvarðanatöku, frumkvæði og kraft til að
hrinda hugmyndum í framkvæmd.
• Reynslu af breytingastjórnun, mótun liðsheildar og góðrar
vinnustaðamenningar.
• Skapandi hugsun, greiningarfærni og yfirvegun.
• Leiðtogahæfileika og getu til að hvetja aðra til árangurs.
• Þjónustulund og framúrskarandi hæfni í samskiptum.
• Háskólapróf sem nýtist í starfi.
GÆÐASTJÓRI
Við leitum að jákvæðum einstaklingi sem vill gegna lykilhlutverki
í endurskoðun vinnulags, verkferla og gæðamála í ráðuneytinu.
Viðkomandi mun stýra þróun og viðhaldi á gæðakerfi ráðuneytisins.
Við leitum að fagmanni með:
• Reynslu af rekstri gæðastjórnunarkerfa, mótun verkferla
og innleiðingu.
• Sannfæringarkraft, áræðni og getu til að hrinda
hugmyndum í framkvæmd.
• Færni í samskiptum og uppbyggilegt viðmót.
• Hæfileika til að miðla þekkingu.
• Sjálfstæði í vinnubrögðum.
• Háskólapróf sem nýtist í starfi.
Önnur skólastig
og stjórnsýslaFjölmiðlun
Framhalds-
skólastig
Háskóla-
stig
Menning, listir,
íþrótta- og æsku-
lýðsmál
Sjá nánar á starfatorg.is.
Umsóknarfrestur er til 2. mars 2020.
Umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf.
Nánari upplýsingar veitir Anna María Urbancic, rekstrarstjóri í
mennta- og menningarmálaráðuneytinu, í síma 545 9500.
Ráðuneyti framtíðarinnar
leitar að leiðtogum sem
brenna af ástríðu
fyrir menntun og menningu
Svona skiptast fjármunir milli
okkar málefnasviða