Fréttablaðið - 08.02.2020, Blaðsíða 86
„Jæja, á þetta að vera
þraut?“ sagði Kata byrst.
„Þetta er sko engin þraut,
það er augljóst, þetta er
hringavitleysa.“ Kannski
hafði hún eitthvað til síns
máls að minnsta kosti
voru þetta óskaplega
margir hringir
og allt mjög
ruglingslegt.
„Eru ekki líka
einhverjir
punktar þarna?“
spurði Konráð.
„Hringavitleysa
með punktum.“
Kata var augljóslega
mjög pirruð þennan
daginn. „Svona, svona,
Kata,“ sagði Lísaloppa.
„Víst er þetta þraut og
hún er þannig að við
eigum að
nna út hvað
margir þessara hringja
innihaldi punkt.“ „Hvað
margir punktar eru í
þessari hringavitleysu?“
spurði Kata. „Nei,“
sagði Lísaloppa. „Ekki
hvað það eru margir
punktar heldur hversu
margir hringir innihalda
punkt.“ Kata var orðin
aðeins rórri og virti fyrir
sér þrautina. „En sumir
Konráð
á ferð og ugi
og félagar
390
Getur þú
talið hvað margir hringir innihalda svartan punkt?
??
?
telja,“ hrópaði Kata
upp y
r sig. „Látiði
Konráð fá þraut og
hann byrjar, alveg
sama þótt það sé
hringavitleysa,“
bætti hún við
vonleysislega.
„En þú?“ spurði
Lísaloppa. „Hvar er
keppnisskapið?“ bætti
hún við glottandi. Kata
horfði brúnaþung á hana
dágóða stund og sagði
svo: „Allt í lagi, telja,
en þið verðið samt að
viðurkenna að þetta er
algjör hringavitleysa.“
punktarnir eru í eiri en
einum hring,“ hrópaði
hún og fórnaði höndum.
„Já,“ sagði Lísaloppa. „En
við erum bara að telja
hringina sem innihalda
punkt, það skiptir ekki
máli hvort það sé
eiri en einn hringur
sem inniheldur sama
punktinn.“ Kata leit
hvasst á Konráð. „Þetta
er alger hringavitleysa,
við tökum ekki þátt í
svona.“ Konráð horfði á
myndina og hljóðlaust
hreyfðust á honum
varirnar. „Byrjaður að
Lausn á gátunni
Tólf hringir innihalda svartan punkt?
Birta Sól Helgadóttir hefur hell-
ing fyrir stafni. Hún er fjórtán ára
nemandi í Langholtsskóla, æfir
fimleika og þjálfar tvo hópa. Svo
er hún skáti og var á vetrarmóti
Reykjavíkurskáta á Úlf ljótsvatni
um síðustu helgi. Birta er að detta í
hús á tíunda tímanum að kvöldi og
á eftir að borða kvöldmat. En svarar
fyrst spurningum um skátastarfið.
Ertu búin að vera lengi skáti?
Síðan ég var sex ára.
Í hvaða félagi ertu? Ég er dróttskáti
í Skjöldunum, þar er rosa mikið líf
og fjör. Við eigum skátaheimili í
Sólheimunum, þar er alltaf eitthvað
um að vera.
Hvað gerið þið á skátafundum?
Það er mjög mismunandi. Núna
erum við að sauma skikkjur. Það er
hellingur af fjölbreyttu fólki að gera
fjölbreytta hluti í skátunum.
Segðu mér aðeins frá vetrarmót-
inu. Vetrarmót er eitt af uppáhalds-
mótunum mínum á árinu. Þá koma
öll Reykjavíkurfélögin saman,
maður hittir fullt af nýju fólki og er
alltaf að gera eitthvað skemmtilegt,
aldrei inni að láta sér leiðast.
Alveg sama hvernig veður er? Við
höfum verið ótrúlega heppin með
veður síðustu þrjú árin en oft er
djúpur snjór á svæðinu sem erfitt
er að labba í.
Hvað var sniðugast af því sem þið
gerðuð? Við fórum í leiki, eins og
að setja hausinn á sér á kústskaft
og snúa sér í hringi og reyna svo að
hlaupa, það er rosalega fyndið. Svo
fórum við í risastóran fánaleik sem
endalaust margt fólk gat tekið þátt
í. Við vorum með stóra kvöldvöku á
laugardagskvöldið, sem ég og önnur
stelpa stjórnuðum. Það var mikið
sungið líka, endalaust hægt að finna
lög sem skátar hafa búið til.
Hvernig svafstu? Vel. Ég svaf inni
í húsi en elstu þátttakendurnir, 18
og 19 ára foringjar, sváfu úti í tjaldi.
Fóruð þið fram og til baka í
rútum? Já, það var hávær tónlist
alla leiðina og mikil læti!
Nú ætla ég að leyfa þér að fá þér eitt-
hvað í svanginn. Þakka þér fyrir
spjallið og gangi þér vel.
Aldrei inni
að láta sér leiðast
Birta Sól stjórnaði stórri kvöldvöku á vetrarmótinu á Úlfljótsvatni um
síðustu helgi ásamt annarri stúlku. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Sumir skátarnir sváfu í þessu tjaldi
á mótinu, þrátt fyrir tíu stiga frost.
VETRARMÓT ER EITT
AF UPPÁHALDSMÓT-
UNUM MÍNUM Á ÁRINU. ÞÁ
KOMA ÖLL REYKJAVÍKUR-
FÉLÖGIN SAMAN, MAÐUR
HITTIR FULLT AF NÝJU FÓLKI.
Hæ Gosi! – Algert keppnisspil fyrir tvo!
Spilunum er skipt milli
spilaranna tveggja,
þau eru lögð á hvolfi á
borðið, eins og stokkur.
Svo skiptast spilararnir á
fletta upp sínum bunka,
einu spili í einu og setja í
kastbunka á miðju borði.
Þegar spilin tía til ás
koma upp hjá öðrum
hvorum spilaranum skal
gefa ákveðin merki.
Ef báðir spilararnir eru
alveg jafn fljótir að gefa
merki er bunkinn látinn
liggja áfram á borðinu.
Sá sem endar með bunk-
ann allan í lokin vinnur.
Sá sem er fyrri til að gefa
merki tekur bunkann.
Vinningsspilin eru sett
neðst í bunkann sem
spilarinn hafði fyrir framan
sig.
n Tía: Skella flötum lófa
ofan á bunkann.
n Gosi: Segja Hæ, Gosi!
n Drottning: Flauta.
n Kóngur: Bera hönd að
enni að hermannasið.
n Ás: Standa upp.
8 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R38 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
KRAKKAR