Fréttablaðið - 08.02.2020, Blaðsíða 48
Embætti
fiskistofustjóra
Embætti fiskistofustjóra er laust til umsóknar en sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra skipar í embættið til fimm ára.
Leitað er eftir einstaklingi sem hefur leiðtogahæfileika, er framsýnn í hugsun,
hefur sýnt hæfni í samskiptum og samvinnu og hefur metnað til að ná árangri
í þágu almennings og atvinnulífs
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Árangursrík reynsla af áætlunargerð, stjórnun og rekstri
• Góð þekking og reynsla af stefnumótun
• Fagmennska, frumkvæði, drifkraftur, og jákvæðni
• Færni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku
• Þekking og/eða reynsla af stjórnsýslustörfum er kostur
• Þekking og reynsla af milliríkja- og alþjóðasamstarfi er kostur
Fiskistofa er stjórnsýslustofnun með höfuðstöðvar á Akureyri og rekur starfs-
stöðvar á sex stöðum á landinu. Þar starfa rúmlega 60 manns.
Hlutverk Fiskistofu er að stuðla að ábyrgri nýtingu auðlinda hafs og vatna.
Stofnunin sinnir stjórnsýsluverkefnum á sviði fiskveiða, eftirliti með veiðum
og vinnslu sjávarafurða. Einnig annast stofnunin stjórnsýslu og eftirlit sam-
kvæmt lögum um lax- og silungsveiði, lögum um fiskrækt og fleiri lögum.
Fiskistofa sér um söfnun, úrvinnslu og útgáfu upplýsinga á verkefnasviði sínu.
Þá tekur stofnunin þátt í fiskveiðisamstarfi Íslands við önnur ríki eftir því sem
við á. Fiskistofa veitir ráðherra ráðgjöf við samningu frumvarpa og reglugerða
og sinnir öðrum verkefnum sem stofnuninni eru falin með lögum eða öðrum
fyrirmælum.
Umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er
grein fyrir ástæðu umsóknar og hvernig viðkomandi uppfyllir hæfniskröfur
fyrir starfið. Konur og karlar eru hvött til að sækja um embættið. Sjávarút-
vegs- og landbúnaðarráðherra mun skipa þriggja manna valnefnd sem metur
hæfni umsækjenda og skilar greinargerð til ráðherra.
Umsóknarfrestur er til og með 28. febrúar 2020.
Umsóknum skal skila rafrænt á netfangið postur@anr.is.
Upplýsingar um starfið veitir Kristján Skarphéðinsson, ráðuneytisstjóri í
atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu á netfangið postur@anr.is
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun hefur verið tekin.
Tilkynningar um nýtt fólk Atvinnublað Fréttablaðsins
kemur út á laugardögum í viku hverri. Umsjónarmaður
blaðsins er Hrannar Helgason. Blaðið birtir valdar
greinar um ráðningu nýrra starfsmanna. Sendið til-
kynningar ásamt mynd af viðkomandi á netfangið:
nyttfolk@frettabladid.is
Nýtt fólk
Pálmi fram kvæmda stjóri
Kadeco
Stjórn Kadeco hefur ráðið Pálma Frey Randversson sem framkvæmdastjóra
félagsins. Hann tekur til starfa
1. mars. Pálmi hefur undan-
farin ár starfað sem deildarstjóri
og verkefnastjóri hjá Isavia við
mótun og utanumhald þróunar- og
uppbyggingaráætlana Kef lavíkur-
f lugvallar. Þá hefur hann jafnframt stýrt
hönnunarsamkeppni og forvali vegna þróunaráætlunar,
tekið þátt í vinnu við deiliskipulag og aðalskipulag f lug-
vallarins. Pálmi lauk M.Sc. prófi í Urban Design, borgar-
hönnun, frá Háskólanum í Álaborg árið 2009 og B.Sc.
prófi í sama fagi frá sama háskóla 2003. Hann hefur setið
fjölda ráðstefna og námskeiða varðandi þróun f lugvalla-
borga. Pálmi starfaði áður sem verkefna- og teymisstjóri
og borgarhönnuður hjá umhverfis- og skipulagssviði
Reykjavíkurborgar. Þar stýrði hann fjölmörgum verk-
efnum tengdum umhverfis-, skipulags- og samgöngu-
málum.
Anna framkvæmdastjóri
sölusviðs Coca-Cola
á Íslandi
Anna Regína Björnsdóttir hefur tekið við nýju starfi framkvæmdastjóra sölusviðs Coca-Cola Europ-ean Partners á Íslandi (Coca-Cola á
Íslandi) en hún gegndi áður starfi
framkvæmdastjóra fjármálasviðs
hjá fyrirtækinu. Anna Regína
hefur gegnt starfi framkvæmda-
stjóra fjármálasviðs Coca-Cola
á Íslandi frá ársbyrjun 2018 en
þar áður stýrði hún hagdeild
fyrirtækisins. Hún er með meist-
aragráðu í iðnaðarverkfræði frá
Háskóla Íslands. Hún hóf starfsferil
sinn í orkugeiranum og starfaði hjá Enex og
síðar Geysir Green Energy. Árið 2012 gekk hún til liðs við
Coca-Cola European Partners á Íslandi (þá Vífilfell) og
hefur síðan þá byggt upp víðtæka þekkingu af dagvöru-
og veitingamarkaðinum.
Valdimar til Arctica Finance
Valdimar Ármann, sem var áður forstjóri GAMMA Capital Management, hefur verið ráðinn til verð-bréfafyrirtækisins Arctica Finance. Valdimar, sem
er hagfræðingur og fjármálaverkfræðingur að mennt,
staðfestir það í samtali við Markaðinn en hann hefur
hafið störf sem sérfræðingur í markaðsviðskiptum
félagsins. Hann lét af störfum sem forstjóri GAMMA í
september í fyrra, eftir að hafa stýrt félaginu frá því í árs-
byrjun 2017, en áður hafði hann gegnt
starfi framkvæmdastjóra sjóða hjá
fjármálafyrirtækinu um margra
ára skeið. Þá starfaði Valdimar
um árabil í London og New York
við verðbólgutengd af leiðu-
viðskipti, fyrst hjá hollenska
bankanum ABN AMRO og síðar
Royal Bank of Scotland.
Ábendingahnappinn má finna á
www.barnaheill.is
Ráðgjafar okkar búa
yfir víðtækri þekkingu
á atvinnulífinu og
veita trausta og
persónulega ráðgjöf.
capacent.is
Við gætum
verið með næsta
starfsmann
mánaðarins á skrá
14 ATVINNUAUGLÝSINGAR 8 . F E B R ÚA R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R