Fréttablaðið - 08.02.2020, Blaðsíða 44
Nýtt fólk
Johan Rönning óskar eftir að ráða þjónustulundaðan sölu-
ráðgjafa í Reykjanesbæ. Starfið felst í sölu og þjónustu við
viðskiptavini.
Um er að ræða fjölbreytt og spennandi starf í góðu starfs-
umhverfi. Johan Rönning hefur verið valið fyrirmyndarfyrirtæki
VR átta ár í röð ásamt því að hljóta nafnbótina fyrirtæki ársins
í sjö ár.
Johan Rönning hlaut einnig jafnlaunavottun árið 2013, eitt af
fyrstu fyrirtækjum á landinu til að hljóta slíka viðurkenningu.
Í dag hefur BSI jafnlaunavottun tekið við þessari viðurkenningu
og er Johan Rönning vottað af þeim staðli. Fyrirtækið leggur
mikið upp úr heiðarlegum og opnum samskiptum.
Johan Rönning hf. var stofnað árið 1933. Fyrirtækið er leiðandi á sviði rafbúnaðar og rekur jafnframt verslunar-
og þjónustufyrirtækin Sindra, Sindra vinnuföt, Vatn og Veitur og S. Guðjónsson. Hjá félaginu starfa yfir 125 manns
í Reykjavík, Fjarðabyggð, Reykjanesbæ, Hafnarfirði, á Grundartanga, Selfossi og Akureyri. Höfuðstöðvar félagsins
eru að Klettagörðum 25 í Reykjavík. Johan Rönning hf. er góður og eftirsóttur vinnustaður.
REYKJAVÍK
Klettagörðum 25
Sími 5 200 800
SELFOSSI
Eyravegi 67
Sími 4 800 600
AKUREYRI
Draupnisgötu 2
Sími 4 600 800
REYÐARFIRÐI
Nesbraut 9
Sími 4 702 020
REYKJANESBÆ
Hafnargötu 52
Sími 4 207 200
HAFNARFIRÐI
Bæjarhrauni 12
Sími 5 200 800
GRUNDARTANGA
Mýrarholtsvegi 2
Sími 5 200 830
P
ip
a
r\TB
W
A
\ S
ÍA
Hæfniskröfur:
• Menntun og reynsla í rafiðnaði
• Mikil þjónustulund
• Frumkvæði
• Samskiptahæfni
• Reynsla af sölustörfum kostur
• Lausnamiðaður hugsunarháttur
Söluráðgjafi á rafbúnaðarsviði
Upplýsingar um starfið veitir Helgi Guðlaugsson
í síma 5 200 800 eða helgig@ronning.is
Umsóknir sendist á netfangið helgig@ronning.is
fyrir 19. febrúar.
www.ronning.is
ER KRAFTUR Í ÞÉR?
Agla Eir lögfræðingur
Viðskiptaráðs
Agla Eir Vilhjálmsdóttir hefur tekið við starfi lögfræðings Viðskiptaráðs Íslands en hún
hefur starfað hjá Viðskiptaráði frá
árinu 2018 sem sérfræðingur á lög-
fræðisviði auk þess sem hún hefur
gegnt stöðu framkvæmdastjóra
Gerðardóms Viðskiptaráðs Íslands
frá því haustið 2019. Agla Eir mun
sinna lögfræðilegri ráðgjöf gagnvart
framkvæmdastjóra og stjórn, umsagnagerð, skýrsluskrif-
um og fleiri verkefnum tengdum málefnastarfi ráðsins –
ásamt því að halda áfram utan um starfsemi Gerðardóms
Viðskiptaráðs Íslands. Agla Eir er einkum sérhæfð á sviði
alþjóðaviðskipta og gerðardómsréttar. Agla Eir er með
meistarapróf í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík en
starfaði einnig fyrir ráðið samhliða námi.
Andri og Ingi til
Nýsköpunarmiðstöðvar
Ingi Vífill Guðmundsson, hefur verið ráðinn til Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands með starfsstöð á Sauðár-
króki. Ingi Vífill hefur reynslu
af rekstri sprotafyrirtækja og
nýsköpunar á sviði markaðs- og
kynningarmála. Hann er með
fjölbreytta menntun og er meðal
annars grafískur hönnuður. Ingi
Vífill hefur unnið að markaðssetningu
á samfélagsmiðlum hjá auglýsingastofunni ENNEMM,
Ölgerð Egils Skallagrímssonar og Hannesarholti.
Andri Í. Þórhallsson hefur verið ráðinn á deild tæknirann-sókna við Nýsköpunarmið-
stöð Íslands. Verkefni Andra verða
á sviði efnis- og orkurannsókna
sem tengjast jarðvarma og álfram-
leiðslu. Andri hefur umtalsverða
reynslu úr áliðnaðinum sem
verkfræðingur og stjórnandi hjá
Norðuráli. Hann hefur einnig starfað
sem verkfræðiráðgjafi hjá Mannviti og sem sérfróður
meðdómandi. Andri lauk framhaldsnámi í efnaverkfræði,
stundar doktorsnám í vélaverkfræði og stundakennslu
við Háskóla Íslands. Sérfræðiþekking Andra er í rafefna-
fræðilegum ferlum svo sem tæringu, rafgreiningu, efna-
rafölum og rafhlöðum.
Erlendur nýr forstjóri Cabo
Verde Airlines
Erlendur Svavarsson, framkvæmda-stjóri sölu- og markaðssviðs Loftleiða Icelandic, dóttur-
félags Icelandair Group, hefur
verið ráðinn forstjóri f lugfélagsins
Cabo Verde Airlines á Grænhöfða-
eyjum. Hann tekur við af Jens
Bjarnasyni sem hefur gegnt for-
stjórastarfinu frá því í byrjun síðasta
árs, eftir því sem fram kemur í tilkynn-
ingu frá félaginu. Erlendur, sem hefur setið í stjórn Cabo
Verde Airlines frá því í byrjun síðasta árs, hefur starfað í
f luggeiranum frá árinu 1992 þegar hann hóf störf hjá Air
Atlanta. Hann gekk síðan til liðs við Loftleiði Icelandic
árið 2003. Þá var hann um skeið framkvæmdastjóri við-
skiptaþróunar Icelandair Group. Hann hefur auk þess
setið í stjórnum ýmissa dótturfélaga Icelandair Group.
Erlendur er með BA-gráðu í rússnesku og hagfræði frá
Háskóla Íslands, MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík
og AMP-gráðu frá Harvard Business School.
Kristján framkvæmdastjóri
H:N Markaðssamskipta
Kristján Hjálmarsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri auglýsingastofunnar H:N
Markaðssamskipta. Hann hefur
víðtæka reynslu af fjölmiðla-
og auglýsingageiranum. Hann
hefur gegnt starfi viðskipta- og
almannatengslastjóra H:N Mark-
aðssamskipta frá árinu 2014. Áður
starfaði hann um fjórtán ára skeið hjá
365 miðlum, þar af sjö ár sem fréttastjóri á Fréttablaðinu
og eitt ár sem fréttastjóri Vísis. Kristján er með BA-próf
í stjórnmála- og fjölmiðlafræði frá Háskóla Íslands og
Háskólanum í Jönköping.
Þú ert ráðin/n!
FAST
Ráðningar
Uppáhaldssetningin okkar hjá FAST ráðningum
www.fastradningar.is