Fréttablaðið - 08.02.2020, Blaðsíða 4
TÖLUR VIKUNNAR 02.02.2020 TIL 08.02.2020
570
milljóna króna verðmiði hefur
verið settur á Kirkjuhús við
Laugaveg 31.
41
prósents fólksfjölgun varð á
Íslandi á tímabilinu 1990–2019.
2.162
beiðnir bárust til skólaþjón-
ustu Reykjavíkurborgar í fyrra
vegna barna sem þarfnast
sérfræðiráðgjafar.
18,2
milljarðar króna var hagnaður
Landsbankans eftir skatta í
fyrra borið saman við 19,3 millj-
óna króna hagnað árið áður.
56
einstaklingar leituðu til
transteymis Landspítalans
árið 2019.
Þrjú í fréttum
Mannföll, fjöll
og glerungsspjöll
Gunnar Snorri
Gunnarsson
sendiherra
Íslands í Kína
sendi allt
kínverskt
starfsfólk
sendiráðsins
í Peking
heim vegna
kórónaveirunnar
en aðeins íslenskt
starfsfólk var eftir við störf. Rúm-
lega eitt hundrað Íslendingar eru
í Kína en enginn á einangraða
svæðinu við Wuhan. Yfir sex
hundruð manns hafa látist af
völdum veirunnar.
John Snorri
fjallgöngumaður
hætti við
leiðangur
sinn upp
fjallið K2 í
Pakistan en
um var að
ræða tilraun
að fyrstu för upp
fjallið að vetrarlagi. Ástæðan var
að sögn sú að nokkrir liðsmenn
leiðangursins hafi ekki verið til-
búnir til að klífa fjallið.
Jóhanna Bryndís
Bjarnadóttir
formaður Tannlæknafélags
Íslands
sagði að mikla
aukningu
glerungs-
eyðingar hjá
unglingum
og ungu fólki
mætti rekja
til neyslu súrra
orkudrykkja.
Tannverndarvika
Tannlæknafélags Íslands og Land-
læknis hófst á mánudaginn þar
sem sérstök áhersla var lögð á
orkudrykki.
STJÓRNMÁL Sigurður Ingi Jóhanns-
son, samgöngu- og sveitarstjórnar-
ráðherra, er sammála Katrínu Jak-
obsdóttur um að skynsamlegt sé að
setja Íslandsbanka í söluferli. Bæði
vegna þarfar á innspýtingu og vönt-
unar á innviðauppbyggingu, sér-
staklega í samgöngumálum. Fjórð-
ungshlutur bankans hefur verið
nefndur í þessu samhengi.
Sigurður hefur ekki áhyggjur af
því að tímasetningin sé slæm. „Allt
bendir til þess að verðmæti hefð-
bundinna banka muni ekki aukast
á næstu árum, meðal annars vegna
nýrrar fjártækni.“ Hann segir þó að
sala banka sé ekki eina leiðin sem
fær sé til að bæta innviði, lántaka
komi til greina, góðar aðstæður séu
til þess vegna stöðu ríkissjóðs.
Hvað mögulega kaupendur varð-
ar segir Sigurður mikilvægast að
jafnræði gildi í ferlinu og góð dreif-
ing. „Við getum haft óskhyggju uppi
um að hingað kæmi öflugur skand-
inavískur banki en við munum ekki
ráða því.“ Á Sigurður fastlega von á
því að ferlið hefjist á kjörtímabilinu.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,
formaður Viðreisnar, segist fagna
hugmyndum um sölu Íslandsbanka
og sérstaklega stefnubreytingu
Vinstri grænna hvað það varðar.
„Við í Viðreisn höfum talað um að
það þurfi að selja hluta af bönk-
unum, meðal annars Íslandsbanka,
til að byggja upp innviði,“ segir
Þorgerður. „Við verðum samt að
horfast í augu við að gjaldmiðillinn
sjálfur og bankaskatturinn er ekki
að hjálpa til við að laða kaupendur
að. En það er nauðsynlegt að fara í
innviðafjárfestingar núna á meðan
samdráttur er.“
Þá veltir Þorgerður því einnig
fyrir sér, ef lífeyrissjóðirnir kæmu
að kaupum, hvort rétt sé að þeir eigi
bæði stóran hluta af fyrirtækjum
landsins og banka. „Við vonumst
eftir því að kaupendahópurinn
verði fjölbreyttari,“ segir hún.
Samkvæmt Smára McCarthy,
formanni Pírata, hefur málið ekki
verið rætt innan þingf lokks en
hans eigin afstaða er að það sé ekki
kappsmál að ríkið eigi bankana. „Ég
tel samt ekki sniðugt að selja í ein-
hverju óðagoti. Það virðist tilhneig-
ing hjá Sjálfstæðisflokknum að selja
og selja og selja og helst á sem lægsta
verði og hæpnum forsendum,“ segir
hann.
Telur hann betra að selja yfir
heilan áratug eða meira, eins og
fordæmi séu frá Norðurlöndunum.
Bæði til að passa upp á að ekkert fari
úrskeiðis og til að fá sem best verð,
þegar séu Íslendingar brenndir af
misheppnuðum einkavæðingum.
Hann segir að í ljósi lágs skuldahlut-
falls sé betra að fjármagna innviða-
uppbyggingu með lánum.
Áður en Íslandsbanki sé seldur
segir Logi Már Einarsson, formað-
ur Samfylkingarinnar, að Íslend-
ingar verði að koma sér saman um
hvernig bankaþjónusta eigi að vera
í breiðri sátt. Samfylkingin hafi
talað fyrir aðskilnaði viðskipta og
fjárfestingabankastarfsemi. Þegar
stefnan liggi fyrir sé hægt að ákveða
hvort selja eigi, hvaða banka og
hversu stóran hlut. „Búið er að vara
við því í mörg ár að tekna hafi ekki
verið af lað og tekjustofnar gefnir
eftir. Því finnst mér dapurt að nú,
þegar slaki er í hagkerfinu, að farið
sé í stofuskápinn og silfrið selt á
tíma sem við fáum undirverð fyrir
það,“ segir hann.
„Okkur líst ekki illa á það, það
er hins vegar hvort rétti tíminn sé
núna. Persónulega myndi ég bíða
aðeins lengur,“ segir Inga Sæland,
formaður Flokks fólksins, um sölu.
Enn þá sé hagnaður af bönkunum
sem skili sér í þjóðarbúið. „Miðað
við þær álögur sem settar eru, ítrek-
að og endalaust, á landsmenn, ætti
með réttri forgangsröðun að vera
hægt að fjárfesta í innviðum.“
Nefnir hún einnig að í stað þess
að setja arð orkufyrirtækja í Þjóðar-
sjóð skuli hann nýttur í innviði.
Einnig nefnir hún að bankaskattur
og veiðigjöld hafi verið að lækka og
þjóðarbúið verði af milljarðatugum
vegna skattaundanskota.
kristinnhaukur@frettabladid.is
Íslandsbanki fari í söluferli til
þess að byggja upp innviðina
Sigurður Ingi telur að selja eigi Íslandsbanka. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Samgönguráðherra er
sammála forsætis- og
fjármálaráðherra um
að selja Íslandsbanka,
að hluta hið minnsta,
og á von á því að ferlið
hefjist á kjörtímabilinu.
Stjórnarandstöðufor-
ingjar segja að til greina
komi að selja en eru
ekki allir sammála um
að nú sé rétti tíminn.
Því finnst mér
dapurt að nú, þegar
slaki er í hagkerfinu, að
farið sé í stofuskápinn og
silfrið selt á tíma sem við
fáum undirverð fyrir það.
Logi Már Einarsson,
formaður Sam-
fylkingarinnar
JEEP® GRAND CHEROKEE
FÁANLEGUR MEÐ 33” EÐA 35” BREYTINGU
ALVÖRU JEPPI - ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF
• 3.0L V6 DÍSEL
• 250 HÖ / 570 NM TOG
• 8 GÍRA SJÁLFSKIPTING
• LOFTPÚÐAFJÖÐRUN
• LÆSING Í AFTURDRIFI
jeep.is
AFMÆLISTILBOÐ VERÐ FRÁ: 10.390.000 KR.
AFMÆLISTILBOÐ
UMBOÐSAÐILI JEEP® Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433
WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
LISTAVERÐ VERÐ FRÁ: 10.990.000 KR.
8 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð