Fréttablaðið - 08.02.2020, Side 4

Fréttablaðið - 08.02.2020, Side 4
TÖLUR VIKUNNAR 02.02.2020 TIL 08.02.2020 570 milljóna króna verðmiði hefur verið settur á Kirkjuhús við Laugaveg 31. 41 prósents fólksfjölgun varð á Íslandi á tímabilinu 1990–2019. 2.162 beiðnir bárust til skólaþjón- ustu Reykjavíkurborgar í fyrra vegna barna sem þarfnast sérfræðiráðgjafar. 18,2 milljarðar króna var hagnaður Landsbankans eftir skatta í fyrra borið saman við 19,3 millj- óna króna hagnað árið áður. 56 einstaklingar leituðu til transteymis Landspítalans árið 2019. Þrjú í fréttum Mannföll, fjöll og glerungsspjöll Gunnar Snorri Gunnarsson sendiherra Íslands í Kína sendi allt kínverskt starfsfólk sendiráðsins í Peking heim vegna kórónaveirunnar en aðeins íslenskt starfsfólk var eftir við störf. Rúm- lega eitt hundrað Íslendingar eru í Kína en enginn á einangraða svæðinu við Wuhan. Yfir sex hundruð manns hafa látist af völdum veirunnar. John Snorri fjallgöngumaður hætti við leiðangur sinn upp fjallið K2 í Pakistan en um var að ræða tilraun að fyrstu för upp fjallið að vetrarlagi. Ástæðan var að sögn sú að nokkrir liðsmenn leiðangursins hafi ekki verið til- búnir til að klífa fjallið. Jóhanna Bryndís Bjarnadóttir formaður Tannlæknafélags Íslands sagði að mikla aukningu glerungs- eyðingar hjá unglingum og ungu fólki mætti rekja til neyslu súrra orkudrykkja. Tannverndarvika Tannlæknafélags Íslands og Land- læknis hófst á mánudaginn þar sem sérstök áhersla var lögð á orkudrykki. STJÓRNMÁL Sigurður Ingi Jóhanns- son, samgöngu- og sveitarstjórnar- ráðherra, er sammála Katrínu Jak- obsdóttur um að skynsamlegt sé að setja Íslandsbanka í söluferli. Bæði vegna þarfar á innspýtingu og vönt- unar á innviðauppbyggingu, sér- staklega í samgöngumálum. Fjórð- ungshlutur bankans hefur verið nefndur í þessu samhengi. Sigurður hefur ekki áhyggjur af því að tímasetningin sé slæm. „Allt bendir til þess að verðmæti hefð- bundinna banka muni ekki aukast á næstu árum, meðal annars vegna nýrrar fjártækni.“ Hann segir þó að sala banka sé ekki eina leiðin sem fær sé til að bæta innviði, lántaka komi til greina, góðar aðstæður séu til þess vegna stöðu ríkissjóðs. Hvað mögulega kaupendur varð- ar segir Sigurður mikilvægast að jafnræði gildi í ferlinu og góð dreif- ing. „Við getum haft óskhyggju uppi um að hingað kæmi öflugur skand- inavískur banki en við munum ekki ráða því.“ Á Sigurður fastlega von á því að ferlið hefjist á kjörtímabilinu. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, segist fagna hugmyndum um sölu Íslandsbanka og sérstaklega stefnubreytingu Vinstri grænna hvað það varðar. „Við í Viðreisn höfum talað um að það þurfi að selja hluta af bönk- unum, meðal annars Íslandsbanka, til að byggja upp innviði,“ segir Þorgerður. „Við verðum samt að horfast í augu við að gjaldmiðillinn sjálfur og bankaskatturinn er ekki að hjálpa til við að laða kaupendur að. En það er nauðsynlegt að fara í innviðafjárfestingar núna á meðan samdráttur er.“ Þá veltir Þorgerður því einnig fyrir sér, ef lífeyrissjóðirnir kæmu að kaupum, hvort rétt sé að þeir eigi bæði stóran hluta af fyrirtækjum landsins og banka. „Við vonumst eftir því að kaupendahópurinn verði fjölbreyttari,“ segir hún. Samkvæmt Smára McCarthy, formanni Pírata, hefur málið ekki verið rætt innan þingf lokks en hans eigin afstaða er að það sé ekki kappsmál að ríkið eigi bankana. „Ég tel samt ekki sniðugt að selja í ein- hverju óðagoti. Það virðist tilhneig- ing hjá Sjálfstæðisflokknum að selja og selja og selja og helst á sem lægsta verði og hæpnum forsendum,“ segir hann. Telur hann betra að selja yfir heilan áratug eða meira, eins og fordæmi séu frá Norðurlöndunum. Bæði til að passa upp á að ekkert fari úrskeiðis og til að fá sem best verð, þegar séu Íslendingar brenndir af misheppnuðum einkavæðingum. Hann segir að í ljósi lágs skuldahlut- falls sé betra að fjármagna innviða- uppbyggingu með lánum. Áður en Íslandsbanki sé seldur segir Logi Már Einarsson, formað- ur Samfylkingarinnar, að Íslend- ingar verði að koma sér saman um hvernig bankaþjónusta eigi að vera í breiðri sátt. Samfylkingin hafi talað fyrir aðskilnaði viðskipta og fjárfestingabankastarfsemi. Þegar stefnan liggi fyrir sé hægt að ákveða hvort selja eigi, hvaða banka og hversu stóran hlut. „Búið er að vara við því í mörg ár að tekna hafi ekki verið af lað og tekjustofnar gefnir eftir. Því finnst mér dapurt að nú, þegar slaki er í hagkerfinu, að farið sé í stofuskápinn og silfrið selt á tíma sem við fáum undirverð fyrir það,“ segir hann. „Okkur líst ekki illa á það, það er hins vegar hvort rétti tíminn sé núna. Persónulega myndi ég bíða aðeins lengur,“ segir Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, um sölu. Enn þá sé hagnaður af bönkunum sem skili sér í þjóðarbúið. „Miðað við þær álögur sem settar eru, ítrek- að og endalaust, á landsmenn, ætti með réttri forgangsröðun að vera hægt að fjárfesta í innviðum.“ Nefnir hún einnig að í stað þess að setja arð orkufyrirtækja í Þjóðar- sjóð skuli hann nýttur í innviði. Einnig nefnir hún að bankaskattur og veiðigjöld hafi verið að lækka og þjóðarbúið verði af milljarðatugum vegna skattaundanskota. kristinnhaukur@frettabladid.is Íslandsbanki fari í söluferli til þess að byggja upp innviðina Sigurður Ingi telur að selja eigi Íslandsbanka. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Samgönguráðherra er sammála forsætis- og fjármálaráðherra um að selja Íslandsbanka, að hluta hið minnsta, og á von á því að ferlið hefjist á kjörtímabilinu. Stjórnarandstöðufor- ingjar segja að til greina komi að selja en eru ekki allir sammála um að nú sé rétti tíminn. Því finnst mér dapurt að nú, þegar slaki er í hagkerfinu, að farið sé í stofuskápinn og silfrið selt á tíma sem við fáum undirverð fyrir það. Logi Már Einarsson, formaður Sam- fylkingarinnar JEEP® GRAND CHEROKEE FÁANLEGUR MEÐ 33” EÐA 35” BREYTINGU ALVÖRU JEPPI - ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF • 3.0L V6 DÍSEL • 250 HÖ / 570 NM TOG • 8 GÍRA SJÁLFSKIPTING • LOFTPÚÐAFJÖÐRUN • LÆSING Í AFTURDRIFI jeep.is AFMÆLISTILBOÐ VERÐ FRÁ: 10.390.000 KR. AFMÆLISTILBOÐ UMBOÐSAÐILI JEEP® Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433 WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16 LISTAVERÐ VERÐ FRÁ: 10.990.000 KR. 8 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.