Fréttablaðið - 08.02.2020, Blaðsíða 45
Aðstoðarskólastjóri í Engjaskóla
Skóla- og frístundasvið
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir
borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Auglýst er staða aðstoðarskólastjóra í Engjaskóla.
Frá upphafi skólaárs 2020-2021 verður Engjaskóli annar tveggja grunnskóla fyrir nemendur í 1.-7. bekk í norðanverðum
Grafarvogi. Auk Engjaskóla verður Borgarskóli fyrir nemendur í 1.-7. bekk og Víkurskóli 8.-10. bekk. Nemendur úr Engjahverfi
og Staðahverfi á yngsta- og miðstigi munu sækja Engjaskóla og áætlaður nemendafjöldi um 279 nemendur. Innan skólans
verður starfrækt frístundaheimili og félagsmiðstöð fyrir 10.-12. ára nemendur. Skólinn er staðsettur í fallegu umhverfi og
framundan eru spennandi tímar við að móta og þróa metnaðarfullt skólastarf í nýjum grunnskóla sem byggir á gömlum merg.
Ráðið er í starfið frá og með 1.ágúst 2020.
Umsóknarfrestur er til og með 22. febrúar 2020.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ v/Skólastjórafélags Íslands.
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf.
Nánari upplýsingar um veitir Álfheiður Einarsdóttir verðandi skólastjóri í síma 4117754 og tölvupósti
alfheidur.einarsdottir@rvkskolar.is
Helstu verkefni og ábyrgð
• Að vera í forystu um mótun og framkvæmd faglegrar stefnu
skólans innan ramma laga og reglugerða og í samræmi við
aðalnámskrá grunnskóla og skólastefnu Reykjavíkurborgar.
• Að leiða faglega forystu í skólanámskrárvinnu og
skólaþróunarverkefnum.
• Að bera ábyrgð á og stjórna daglegri starfsemi skólans í
samstarfi við skólastjóra.
• Að vinna að öflugu samstarfi innan skólasamfélagsins.
• Að stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og
annað fagfólk.
• Að vera staðgengill skólastjóra í fjarveru hans.
Hæfniskröfur
• Leyfisbréf sem kennari.
• Kennaramenntun með sérhæfingu á grunnskólastigi.
• Kennslureynsla í grunnskóla.
• Viðbótarmenntun í stjórnun æskileg og/eða reynsla af
stjórnunarstörfum á grunnskólastigi.
• Reynsla af faglegri forystu í skólaþróunarverkefnum.
• Metnaður í starfi og áhugi á skólaþróun.
• Þekking, leikni og hæfni í upplýsinga- og tæknimennt.
• Lipurð og færni í samskiptum og samvinnu.
• Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
• Góð færni í íslensku.
Mannauðsstjóri
Hafrannsóknastofnun óskar eftir að ráða til starfa mann
auðstjóra. Leitað er að kraftmiklum einstaklingi með reynslu
af mannauðsmálum. Staðan heyrir undir svið þróunar,
miðlunar og mannauðs.
Mannauðsstjóri tekur þátt í stefnumótun mannauðsmála á
stofnuninni og hefur umsjón með mannauðsmálum.
Mannauðsstjóri veitir stjórnendum stuðning, leggur til
sérþekkingu og ferla sem styðja mannauðsstefnu
stofnunarinnar.
Helsti verkefni:
• Þróun mannauðsstefnu og eftirfylgni hennar
• Ráðgjöf og stuðningur við stjórnendur í mannauðs
tengdum málum, m.a. við innleiðingu ánægjumæliskvarða
á sviði mannauðsmála
• Stuðla að traustri og jákvæðri vinnustaðamenningu sem
byggir á gildum Hafrannsóknastofnunar: samvinna –
þekking þor
• Umsjón með ráðningum, móttöku nýliða og þjálfun
starfsmanna.
• Umsjón með fræðslu og starfsþróunarmálum.
• Ábyrgð á ráðningasamningum og starfslýsingum í
samstarfi við stjórnendur/sviðsstjóra?
• Þátttaka í mótun og framkvæmd kjaramála
• Aðkoma að stofnanasamningum
• Samskipti við viðeigandi stjórnsýslueiningar s.s. Fjársýslu
ríkisins, kjara og mannauðssýsluna.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun á sviði mannauðsmála eða
skyldra greina
• Viðtæk og mikil starfsreynsla á sviði mannauðsstjórnunar
• Haldgóð reynsla af stefnumiðaðri mannauðsstjórnun,
fræðslu og starfsþróunarverkefnum, og breytingastjórnun
er kostur
• Mjög góð færni í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
• Þekking á kjarasamningum og reynsla af túlkun þeirra
• Góð færni í íslensku og ensku
Um er að ræða fullt starf með starfstöð í Reykjavík en fyrir
liggur að stofnunin flytur í Hafnarfjörð á árinu. Laun eru
samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðuneytis og viðkomandi
stéttarfélags. Æskilegt er að umsækjandi geti byrjað sem
fyrst.
Óskað er eftir að umsókn fylgi greinargóð ferilskrá yfir
menn tun og fyrri störf, staðfesting á námi og kynningarbréf
þar sem umsækjandi gerir grein fyrir ástæðu umsóknar
innar og útskýrir atriði í ferilskrá betur, eftir því sem
viðkomandi telur þörf á.
Umsóknarfrestur er til og með 24 febrúar n.k.
Umsóknir skulu sendar á póstfangið
mannaudsstjóri @hafogvatn.is.
Nánari upplýsingar um starfið veita Sigurður Guðjónsson
forstjóri (sigurdur.gudjonsson@hafogvatn.is) og
Sóley Morthens sviðsstjóri þróunar, miðlunar og mannauðs
(soley.morthens@hafogvatn.is).
Jafnt karlar sem konur, eru hvött til að sækja um starfið.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
ráðningu liggur fyrir.
Hafrannsóknastofnun, rannsókna og ráðgjafarstofnun hafs og vatna
er stærsta rannsóknastofnun landsins á sviði haf og vatnarannsókna
og gegnir auk þess ráðgjafarhlutverki varðandi skynsamlega nýtingu
og verndun auðlinda hafs og vatna. Mikill hluti starfseminnar tengist
alþjóðlegu samstarfi við erlendar hafrannsóknastofnanir og háskóla.
Stofnunin rekur auk aðalstöðva í Reykjavík starfsstöðvar vítt og breytt
um landið, tilraunaeldisstöð, tvö rannsóknaskip og hefur að jafnaði um
190 starfsmenn í þjónustu sinni.
Lögmannsstofa óskar eftir löglærðum
fulltrúa. Gott starfsumhverfi, mikil
reynsla og fjölbreytt verkefni.
Umsækjandi þarf að hafa
lögmannsréttindi og reynslu af
málflutningi. Óskað er eftir einstaklingi
sem er jákvæður og hugmyndaríkur og
með framúrskarandi samskiptahæfni.
Umsóknir sendist á solveig@llaw.is,
fyrir 20. febrúar nk.
ATVINNUAUGLÝSINGAR 11 L AU G A R DAG U R 8 . F E B R ÚA R 2 0 2 0
Ráðningar og þjálfun starfsfólks
Samskipti við starfsfólk
Umsjón og skipulag á vinnu starfsmanna
Launavinnsla og skráning
Samskipti við viðskiptavini
ÞJÓNUSTUSTJÓRI
Sólar ehf. óskar eftir að ráða öflugan þjónustustjóra til starfa hjá fyrirtækinu. Við erum að leita að
jákvæðri og ábyrgri manneskju til að vinna með öflugum hópi þjónustustjóra hjá Sólar. Starfið er
mjög fjölbreytt og mikið um mannleg samskipti. Vinnutími er mjög sveigjanlegur og viðkomandi
fær bíl og síma til umráða.
Sólar er eitt stærsta þjónustufyrirtæki landsins.
Við erum sérhæfð í ræstingum og tengdri þjónustu
fyrir hótel, fyrirtæki og stofnanir. Hjá okkur starfa tæplega
400 frábærir starfsmenn og við leggjum áherslu á að
vera góður vinnustaður þar sem starfsfólk á þess kost
að vaxa í starfi. Sólar er aðili að Stjórnvísi félagi um
framsækna stjórnun, Festu miðstöð um samfélagsábyrgð
og UN Global Compact. Þá höfum við síðustu ár verið á
meðal framúrskarandi fyrirtækja Creditinfo.
Viðkomandi þarf að hafa gilt bílpróf.
Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um starfið.
Vinsamlegast skilið inn umsóknum ásamt ferilskrá á www.hagvangur.is
Upplýsingar veitir Gyða Kristjánsdóttir, gyda@hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og með 16. febrúar 2020
Starfssvið/verkefni:
Reynsla af stjórnun æskileg
Háskólapróf er kostur
Jákvæðni og þjónustulund
Skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
Færni í mannlegum samskiptum
Hæfniskröfur:
2013
- 2019