Fréttablaðið - 08.02.2020, Blaðsíða 82
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir,
afi, langafi og langalangafi,
Einar Sverrisson
viðskiptafræðingur,
Hlíðarhúsum 5,
Reykjavík,
lést 2. febrúar.
Útförin fer fram frá Langholtskirkju 20. febrúar kl. 13.
Þorgeir Einarsson Halla Kristín Þorsteinsdóttir
Sverrir Einarsson
Vilborg Rósa Einarsdóttir Tryggvi M. Baldvinsson
Sigurlaug Vigdís Einarsdóttir
Sigrún Unnur Einarsdóttir Sigurjón Bragason
og afabörn.
Okkar ástkæri
Þorsteinn Halldórsson
var bráðkvaddur á heimili sínu
20. janúar sl. Útför hans fór fram
í kyrrþey. Þökkum auðsýnda samúð.
Ásthildur Halldórsdóttir og börn
Sólveig Sigurðardóttir
Bára Rós Björnsdóttir
Innilegar þakkir fyrir hlýhug og samúð
við andlát og útför okkar ástkærs
eiginmanns, föður, tengdaföður
og besta afa,
Jóns Björns Hjálmarssonar
bifvélavirkjameistara,
Fagrahvammi 6,
220 Hafnarfirði.
Þökkum einnig öllum þeim sem af alúð önnuðust hann
í veikindum hans.
Brynja Þorvaldsdóttir
Birgir Már Guðbrandsson Ingrid Johannessen
Kolbeinn Jónsson Anna Birna Jónsdóttir
Hlini Snær, Birkir Smári, Karítas Ísold
og Eirik Brynjar Birgisbörn
Birnir Breki og Hrafney Tinna Kolbeinsbörn
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi,
langafi og langalangafi,
Helgi Magnús Sigvaldason
Hlíðarvegi 38, Reykjanesbæ,
lést á Landspítalanum v/Hringbraut,
miðvikudaginn 22. janúar.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hins látna. Sérstakar þakkir til starfsfólks Landspítalans v/
Hringbraut, deild 11E, fyrir frábæra umönnun.
Sigrún Helgadóttir
Hugrún Helgadóttir Adam Ásgeir Óskarsson
Guðrún Helgadóttir
Svava Helgadóttir
Helgi Helgason
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Ástkær eiginkona,
móðir, tengdamóðir, amma og systir,
Álfheiður Sigurgeirsdóttir
Miðleiti 3, Reykjavík,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Sóltúni
31. janúar síðastliðinn. Útför hennar fer
fram frá Grensáskirkju mánudaginn
10. febrúar kl. 13.00. Þeim sem vildu minnast hennar er
bent á minningar- og styrktarsjóð Sóltúns.
Páll Bjarnason
Kristín Pálsdóttir Gunnar Þór Kjartansson
Heiðrún Pálsdóttir Gestur Guðjónsson
Bjarni Pálsson Unnur Ýr Kristjánsdóttir
Þuríður Anna Pálsdóttir
Kristján Frosti, Elva, Álfheiður, Auðunn Páll,
Páll Theodór, Bragi Valur
Ólína Sigurgeirsdóttir
Klemens Sigurgeirsson
Kr ist ín hr ingd i í mig í vinnuna síðasta miðviku-dagsmorgun og sagðist vera komin með verki, mér lægi samt ekkert á. Ég stimplaði
mig samt strax út, stökk af stað og kom
heim um 11.10, þá sat hún sárþjáð í sóf-
anum.“ Þannig hefst frásögn Magnúsar
Yngva Einarssonar af því þegar hann,
ásamt tengdamóður sinni, tók á móti
lítilli dóttur sem lá mikið á í heiminn.
Kristín kveðst hafa hringt í mömmu
sína og hún ákveðið að kasta á þau
kveðju áður en þau færu upp á spítala.
„Mamma var með bíl heima, aldrei
þessu vant, því pabbi var lasinn og
komst ekki í vinnu.“
„Þegar tengdó var nýkomin fékk
Kristín hrikalega harðar hríðir og við
ákváðum að hún yrði að komast upp
á deild strax,“ tekur Magnús við. „Ég
stökk með barnaföt og f leira út í bíl
en þegar ég kom inn aftur var Kristín
að missa legvatnið. „Við verðum drífa
okkur,“ sagði ég í angist en hún horfði
í augun á mér og sagði ákveðin: „Ég er
ekki að fara neitt.“ Ég vissi fyrst ekkert
hvernig ég átti að haga mér en Kristín
fór inn á baðhergi og byrjaði að rembast
framan við vaskborðið. Þá hringdi ég á
Neyðarlínuna og sagði yndislegri konu
þar að líklega værum við hjónin óvænt
að eignast barn heima hjá okkur. Eftir
stuttar útskýringar frá mér sagði hún að
sjúkrabílar væru á leiðinni með bláum
ljósum. Hún fór yfir gátlista hjá sér og
leiðbeindi okkur tengdó sem lágum á
hnjánum á baðherbergisgólfinu. Þegar
konan á línunni spurði hvort ég sæi
í koll og ég svaraði játandi bað hún
okkur að passa að barnið dytti ekki á
höfuðið. Við náðum í hrúgu af hand-
klæðum og í næstu andrá skaust höf-
uðið út. Ég sagði Neyðarlínukonunni
það æstur og hún svaraði rólegri röddu:
„Þá kemur búkurinn trúlega í næstu
hríðum.“ Það var eins og við manninn
mælt. Tengdamamma greip höfuðið og
ég búkinn. Klukkan var 11.43 og stúlka
fædd, með tíu fingur og tíu tær. Þetta
slapp ótrúlega vel, sem betur fór.“
Magnús segir þau hafa ákveðið að
láta sjúkraf lutningamennina um að
klippa á naf lastrenginn. „Mér fannst
líða margir klukkutímar þar til þeir
komu, það hafa trúlega verið tvær
mínútur! Þeir voru fimm saman og
hrósuðu okkur fyrir frammistöðuna.
Einn þeirra hafði tekið á móti sextán
börnum og hann klippti á strenginn.
Þetta var stórkostleg lífsreynsla fyrir
okkur öll,“ segir Magnús og bætir við
hlæjandi: „Það er ekki amalegt að hafa á
ferilskránni að hafa tekið á móti barni!“
„Mamma er svo stolt líka, hún grínast
með að hún ætli að setja titilinn „ljós-
móðir“ við nafnið sitt í símaskránni,“
segir Kristín, sem kveðst ekki muna
atburðarásina eins glöggt og maður
hennar. „Þetta er allt dálítið í móðu
hjá mér. Ég man eiginlega bara eftir
mér þegar ég er komin inn í rúm með
þá litlu og Hrafnhildur Halldórsdóttir,
ljósmóðir í Björkinni, komin til okkar.
Það var yndislegt að fá hana. Þá var
Rebekka Sif, átta dóttir okkar, komin
heim úr skólanum og Hrafnhildur fór í
gegnum þetta allt með henni. Sú yngri,
Fanndís Mist, fór til ömmu sinnar og
afa eftir leikskólann og var þar í sólar-
hring,“ segir Kristín. Hún hrósar Magn-
úsi og mömmu sinni fyrir dugnaðinn.
Magnús tekur fram að hún hafi verið í
aðalhlutverkinu sjálf og staðið sig alger-
lega eins og hetja. „Svo er hún bara eins
og ekkert hafi gerst,“ bendir hann á. „Ef
við eignumst f leiri börn væri ég alveg
til í aðra heimafæðingu,“ segir Kristín
alsæl. gun@frettabladid.is
Þetta var stórkostleg
lífsreynsla fyrir okkur öll
Það hljóp heldur betur á snærið hjá hjónunum Magnúsi Yngva Einarssyni og Krist-
ínu Dögg Eysteinsdóttur er dóttir þeirra flýtti sér í heiminn síðasta miðvikudag svo
foreldrunum gafst enginn tími til að komast úr Kópavoginum upp á fæðingardeild.
Stoltir foreldrar með yngstu dótturina af þremur. Hún fæddist í vikunni og var 16,5 merkur og 51 cm. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
„Við verðum drífa okkur,“ sagði
ég í angist en hún horfði í augun
á mér og sagði ákveðin: „Ég er
ekki að fara neitt.“
Magnús
8 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R34 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT