Fréttablaðið - 08.02.2020, Blaðsíða 41
Starf móttökuritara
í heilbrigðisþjónustu
Sól, sálfræði- og læknisþjónusta sem er staðsett í Kópavogi,
óskar eftir að ráða móttökuritara í 80% starf (4 daga í viku)
frá 1. apríl til 1. nóvember með möguleika á framlengingu
og fastráðningu. Starfið felur í sér almenna móttöku skjól-
stæðinga, bókanir og símsvörun auk léttra ritarastarfa.
Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af móttökustörfum í
heilbrigðisþjónustu, lipurð í samskiptum og samstarfi.
Vinsamlegast sendið umsókn í tölvupósti ásamt ferlisskrá á
agusta@sol.is fyrir mánudaginn 24. febrúar.
Öllum umsóknum verður svarað.
Trésmiður- Framtíðarstarf
Viðhald og Nýsmíði ehf, er rótgróið smíðafyrirtæki á
höfuðborgarsvæðinu sem vinnur fjölbreitt og áhugaverð
verkefni, og er verkefnastaða góð.
Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi, sem er
nákvæmur í vinnubrögðum, jákvæður og lipur í
mannlegum samskiptum.
Um er að ræða framtíðarstarf.
Nánari upplýsingar veitir Guðsteinn í síma 820-9701
Umsóknir ásamt ferilskrá sendist fyrir 20. febrúar á
netfangið vogn@vogn.is
Helstu verkefni
• Fagleg yfirumsjón með byggingaframkvæmdum
• Undirbúningur og stjórnun verkefna
• Áætlanagerð, eftirfylgni og skýrslugerð
• Hönnunarrýni og samræming
• Kostnaðareftirlit
Menntun og hæfniskröfur
• Menntun á sviði bygginga eða annarra mannvirkjaframkvæmda. Kostur en ekki krafa um
menntun í byggingaverkfræði eða tæknifræði
• Mikil og farsæl starfsreynsla af byggingastjórnun byggingaframkvæmda
• Góð kunnátta á office pakkann og einnig önnur forrit við áætlanagerð
• Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
• Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
• Góð kunnátta í íslensku og ensku
Mannverk – Byggingastjóri
Óskum eftir öflugum og reynslumiklum aðila í byggingastjórn í Reykjanesbæ
Mannverk óskar eftir að ráða reynslumikinn aðila í byggingastjórn sem er tilbúin að takast á við krefjandi verkefni
og skemmtilegar áskoranir með góðri liðsheild. Byggingastjóri er staðsettur á verkstað og hefur yfirumsjón verkþátta
innan verk girðingar.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Hjalti Þór Pálmason framkvæmdastjóri mannvirkjasviðs (hjaltip@mannverk.is) í síma 771-1105. Umsókn ásamt ferilskrá skal senda á
netfangið mannverk@mannverk.is. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað. Umsóknarfrestur er til og með 17. febrúar 2020.
Nánari upplýsingar um fyrirtækið má finna á heimasíðu þess mannverk.is
Mannverk ehf | Dugguvogur 2, 104 Reykjavík | Sími 519 7100 | mannverk.is
MÚRARI ÓSKAST
Rótgróið fyrirtæki með trausta verkefnastöðu, óskar eftir
að ráða framtíðarmann á sviði múrverks. Gengur starfs-
maðurinn til liðs við samhentan hóp iðnaðarmanna, sem
vinna að krefjandi en jafnframt fjölbreyttum og spennandi
verkefnum.
Áhugasamir eru beðnir um að hringja í Björgvin (897-7983)
eða senda ferilskrá/upplýsingar á netföngin
retturmadur@gmail.is eða bjorgvin@vatnstjon.is.
100 % trúnaði er heitið. Heimasíða fyrirtækisins er
vatnstjon.is, en þar má kynna sér starfsemi fyrirtækisins.
Landsnet | Gylfaflöt 9 | 112 Reykjavík | Sími 563 9300 | landsnet@landsnet.is | www.landsnet.is
Fjölbreytt sumarstörf fyrir iðn- og háskólanema
Við leitum að snjöllum iðn- og háskólanemum til starfa í margvísleg sumarstörf við spennandi
verkefni sem tengjast starfsemi fyrirtækisins. Starfstímabil háskólanema er 3 mánuðir.
Störfin sem við bjóðum tengjast m.a. fjármálum, kerfisstjórnun, upplýsingatækni, kerfisvörnum og
verklegum framkvæmdum. Hér er kjörið tækifæri fyrir þau sem vilja verða sér úti um alvöru reynslu
og hafa alvöru áhrif í starfi.
Menntunar- og hæfniskröfur:
· Að umsækjandi stundi nám á iðn- eða háskólastigi
· Nákvæm, skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
· Jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum
Umsóknarfrestur er til og með 29. febrúar n.k. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið á landsnet.is.
Spennandi
reynsla
framundan!
Landsnet er þjónustufyrirtæki sem kapp kostar
að vinna í takt við samfélagið og hefur það að
meginmarkmiði að tryggja örugga afhendingu
á raforku til framtíðar. Við bjóðum upp á fyrsta
flokks aðbúnað, góðan starfsanda, frábært
mötuneyti, aðgengi að líkamsræktaraðstöðu
og stuðning við að viðhalda og sækja sér
frekari þekkingu. Landsnet er þátttakandi
í fjölmörgum rannsóknar- og samvinnu-
verkefnum innan Norðurlandanna og Evrópu.