Fréttablaðið - 29.02.2020, Page 18
2 9 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R18 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
GOLF Viktor Hovland braut blað
í sögu norska golfsambandsins
um síðustu helgi þegar hann varð
fyrsti Norðmaðurinn til að sigra á
móti á PGA-mótaröðinni, innan við
ári eftir að hann gerðist atvinnu-
kylfingur. Hovland setti niður tíu
metra pútt fyrir sigur á Coco Beach
golfvellinum, sem kom í veg fyrir
að hann þyrfti að fara í bráðabana
gegn Josh Teater, og tryggði sér um
leið keppnisrétt út árið 2022 og
540.000 dollara sem eru tæplega 70
milljónir íslenskra króna. Þá skaust
Viktor upp um 42 sæti á styrkleika-
lista heimsins í golfi og er í 60. sæti,
tíu sætum frá því að öðlast þátt-
tökurétt á Masters-mótinu í apríl.
Viktor fór að leika golf ellefu ára
þegar pabbi hans bjó í Bandaríkj-
unum og snemma varð ljóst að kylf-
ingurinn var bráðefnilegur. Fimm
árum seinna stóð Viktor uppi sem
norskur meistari í höggleik. Árið
2015 ákvað Viktor að leika fyrir
hönd Oklahoma State háskólans
í golfi, sem er sami skóli og Rickie
Fowler lék með. Með sigri á Opna
bandaríska meistaramóti áhuga-
kylfinga árið 2018 öðlaðist Viktor
þátttökurétt sem áhugakylfingur
á þremur risamótum ári seinna,
Masters-mótinu, Opna bandaríska
og Opna breska meistaramótinu.
Stærra svið virtist ekki truf la
Viktor sem lék með Brooks Koepka
og Francesco Molinari á fyrsta degi
á Opna bandaríska og lenti í tólfta
sæti á mótinu. Kom hann í hús á
besta skori áhugakylfings í sögunni
og bætti með því 59 ára gamalt met
Jack Nicklaus. Á sama tíma afrekaði
hann að verða fyrsti kylfingurinn í
21 ár sem lék best allra áhugakylf-
inga á Masters-mótinu og Opna
bandaríska á sama ári.
Það var því ljóst í hvað stefndi og
ákvað norski kylfingurinn að gerast
atvinnukylfingur eftir Opna banda-
ríska meistaramótið. Ping var strax
tilbúið að semja við hinn bráðefni-
lega Viktor og náði hann að vinna
sér inn þátttökurétt á PGA-móta-
röðinni á yfirstandandi tímabili
með góðum árangri á næststerk-
ustu mótaröð Bandaríkjanna það
sem eftir lifði ársins.
Tímabilið til þessa hefur verið
kaf laskipt eins og eðlilegt er hjá
yngri kylfingum. Tvisvar hafði
Viktor endað meðal tíu efstu áður
en kom að mótinu í Púertó Ríkó
um helgina. Hann sýndi hvað stutt
er í fallið þegar hann fékk þrefaldan
skolla á elleftu braut um síðustu
helgi, sem hleypti öðrum kylfing-
um inn í mótið og var hreinskilinn
þegar hann ræddi mistök sín eftir
mótið. „Ég er ömurlegur í innáhögg-
um. Það sást bersýnilega þarna, ég
kemst of oft upp með það, en ég þarf
að æfa þessi högg og gera betur.“
Erfið veðurskilyrði gerðu kylf-
ingum erfitt fyrir á lokaholunum
en Viktor sýndi stáltaugar og land-
aði fyrsta titlinum með því að setja
niður erfitt pútt í tólfta mótinu
sem hann tók þátt í sem atvinnu-
kylfingur.
Spurningin er nú, hvert er næsta
skref kylfingsins? Þessi bráðefni-
legi kylfingur hefur ekki farið leynt
með áhuga sinn að komast í Ryder-
liðið í haust og ef hann heldur rétt á
spöðunum er kominn nýr kylfingur
í fremstu röð frá Skandinavíu, sem
hefur horft upp á sænska og danska
kylfinga skara fram úr þeim norsku
undanfarin ár. Fyrst þarf Viktor
hins vegar að rjúfa álög, ef svo má
segja.
Will Gray, fjölmiðlamaður á Golf
Channel, vakti athygli á því að í ell-
efu ára sögu mótsins í Púertó Ríkó
hefur engum kylfingi sem hefur
unnið mótið, tekist að vinna mót
annarsstaðar í PGA-mótaröðinni.
Michael Bradley sem vann fyrsta
mótið náði að endurtaka leikinn í
Púertó Ríkó, en engum hefur tekist
að vinna annað mót.
kristinnpall@frettabladid.is
SPORT
Norskur kylfingur með stáltaugar
Viktor Hovland vann sitt fyrsta mót á PGA-mótaröðinni um helgina þegar hinn 22 ára gamli Norðmaður vann Puerto Rico Open.
Hann skaust fram á sjónarsviðið sem áhugakylfingur á risamótunum í fyrra og er fyrsti Norðmaðurinn sem vinnur mót á PGA.
Viktor Hovland sáttur eftir að hafa sett niður tíu metra pútt fyrir sigurinn í Púertó Ríkó. Hann varð um leið fyrsti Norðmaðurinn til að vinna mót á PGA-mótaröðinni. MYND/GETTY
Öðlingur sem hlustar mikið á þungarokk
„Ég spilaði með honum í Jac-
ques Leglise og mætti honum
nokkrum sinnum þegar ég var að
spila fyrir Kent State og hann var
að spila með Oklahoma State í
bandaríska háskólagolfinu. Hann
er alveg hrikalega almennilegur
strákur, svakalega hógvær og
góður maður fyrst og fremst,“
sagði Gísli Sveinbergsson, kylf-
ingur úr GK, sem lék með Viktori
Hovland í úrvalsliði Evrópu gegn
úrvalsliði Bretlands í Jacques
Leglise-mótinu, aðspurður
hvernig væri að spila með Norð-
manninum.
„Fyrst og fremst er hann auð-
vitað frábær kylfingur. Það er
auðvitað svolítið auðvelt að segja
það eftir á en maður sá alveg
hversu framarlega hann var og
það er gaman að sjá stökkið sem
hann hefur tekið á fyrsta ári sínu
á PGA-mótaröðinni. Það lýsir
honum vel, honum kemur vel við
alla og laus við stjörnustæla eins
og sumir eru með á þessu
stigi íþróttarinnar og það
hefur hjálpað honum að að-
lagast mótaröðinni betur.“
Aðspurður hversu langt
hann gæti náð sagðist Gísli
eiga von á því að Viktor
verði í fremstu röð
næstu árin.
„Ég held að hann
geti farið eins langt
og hann vill. Ég fylg-
ist vel með honum,
hann er varla búinn
að stoppa síðan hann hætti í há-
skólaliðinu hjá Oklahoma State
og vonandi heldur hann áfram á
sömu vegferð. Hann er kominn
í 60. sæti á heimslistanum og
það kæmi manni ekkert á óvart
ef hann yrði í Ryder-liðinu í
haust.“
Gísli segir Viktor ekki fara
leynt með tónlistaráhuga
sinn.
„Það sem ekki margir
vita er að hann er mikill
þungarokks aðdá-
andi. Það er akkúrat
öfugt við karakt-
erinn hans inni á
vellinum og sýnir
hvað hann leynir
á sér.“
Viktor var aðeins sextán
ára þegar hann vann norska
meistaramótið í höggleik.