Fréttablaðið - 29.02.2020, Side 24

Fréttablaðið - 29.02.2020, Side 24
fullar aðgerðir, erfiðar en nauð- synlegar. Ég hafði hins vegar sterkt umboð. Starfsmenn, stjórnendur og stjórnin voru á einu máli um að þetta væru nauðsynlegar breyting- ar. Og þótt þetta hafi verið erfitt eru svona ákvarðanir auðveldari þegar fyrirtæki rekur sig í strand eins og Íslandspóstur gerði. Þegar fyrirtæki á ekki fyrir launum eins og staðan var, þá þarf ekki að útskýra það frekar. Þetta er að auki ekki fyrir- tæki sem er í gróðarekstri heldur mikilvægt þjónustufyrirtæki sem þurfti að koma á sjálf bæran grund- völl. Ég verð að taka fram að þessar breytingar hefðu alltaf orðið. Þær urðu ekki vegna þess að einhver karl eins og ég með excel-skjal mætti á svæðið. Það er verið að reyna að laga vanda sem allir vissu í nokkur ár að væri óumflýjanlegt verkefni að ráðast í.“ Biður fólk að nöldra í sér Hvað með fyrirtækjamenninguna, hvernig tókst þú á við hana? „Verkefnið er tvíþætt, ég þurfti að snúa rekstrinum í jákvætt horf. Fyrirtæki eins og Íslandspóstur er frekar mannfrekt, launahlutfallið er 70 prósent og það lá því strax fyrir að það væri hægt að forða fyrirtæk- inu úr miklum taprekstri með nið- urskurði og það var mikið af góðu fólki sem var látið fara. Við gátum fækkað um nær 150 manns án þess að það bitnaði á þjónustunni. En það var fleira sem þurfti að gera og varðaði fyrirtækjamenninguna. Hér ríkti sá andi að þetta væri ríkis- stofnun. Við ákváðum strax í upp- hafi að leggja mikla áherslu á leið- togaþjálfun og erum með frábært mannauðsteymi. Allir sem hafa mannaforráð fara á leiðtoganám- skeið. Þá hef ég reynt eftir fremsta megni að útskýra vel fyrir fólki hver staðan er á hverjum tíma og hika ekki við að biðja um hugmyndir til að leysa vandamálin. Ég er allt- af að kalla eftir hugmyndum frá starfsfólki; bréf berum, bílstjórum. Frá þeim koma dýrmætustu hug- myndirnar sem hafa sparað okkur hundruð milljóna. Ég er búinn að fara nokkrum sinnum í gegnum svona krefjandi breytingar og viðsnúninga og hef lært að þetta er mjög mikilvægt. Að virða hugmyndir fólks og skoð- anir. Ég bið fólk að sleppa því að nöldra heima yfir vinnunni og nöldra frekar í mér. Ég tryggi ekki að ég geti lagað allt það sem er að, en lofa að ég skoði það,“ segir Birgir og nefnir dæmi. „Bílstjóri spurði mig að því hvers vegna þeir væru úti að keyra á milli fyrirtækja klukkan 10 þegar það kæmu engir pakkar fyrr en klukkan 14,“ segir Birgir og segir að auðvitað hafi þurft að leysa þá óskilvirkni þegar í stað. Meðvirkni skaðleg Birgir segir mörgum stjórnendum standa fyrir þrifum að takast á við meðvirkni í fyrirtækjum. „Meðvirkni á vinnustöðum er eitthvað sem allir þekkja. Ég tengdi áður fyrr meðvirkni eingöngu við alkóhólisma. En þú getur hins vegar verið meðvirkur með fólki í alls konar aðstæðum og stutt við vondar ákvarðanir og vinnumenn- ingu. Ég held að allir þekki þetta, það verða til óformlegir samningar á milli fólks og það staðnar allt. Það er engin meðvirkni hérna. Við erum með skýr skilaboð um það sem við fylgjum eftir í þjálfun starfsfólks. Við tölum um topphegð- un og botnhegðun. Og við viljum vera í toppnum, ekki í botninum, eða leðjunni, þar sem allt situr fast. Þetta er lykillinn að velgengni, hvort sem það er á vinnustaðnum eða lífinu almennt.“ Tilbúinn að dreifa áfengi Birgir er stoltur af starfsfólki sínu. Hann, ásamt f leiri stjórnendum hjá Íslandspósti, var tilnefndur til verðlauna Stjórnvísis. „Hér voru tilnefndir starfsmenn sem hafa unnið baki brotnu í kjölfar mik- illa uppsagna. Vanalega logar allt Aftast á sviðinu, þar vill Birgir vera. Í starfi stjórnanda og á sviðinu. Með félögum sínum í Dimmu. „Við vorum gamlir karlar að spila saman þungarokk, þetta átti aldrei að verða svona stórt.“ í illdeilum í fyrirtækjum sem eru í svona miklum breytingum, en hér var meira að segja yfirmaður póstmiðstöðvarinnar á Stórhöfða tilnefndur af starfsfólki sínu sem stjórnandi ársins. Vinnustöð þar sem mjög stór hluti uppsagnanna átti sér stað. Fólkið er með okkur í liði í þessu erfiða verkefni. Af þessu er ég stoltur.“ Á næstunni mun Áslaug Arna Sig- urbjörnsdóttir dómsmálaráðherra leggja fram frumvarp sem heimilar kaup á áfengi í netverslunum hér á landi án aðkomu Áfengis- og tób- aksverslunar ríkisins. Birgir fylgist grannt með og er tilbúinn með lausn á dreifingu á áfengi. „Við erum að fylgjast með þeirri þróun og þessu frumvarpi. Fyrir okkur er þetta tvíþætt, dreifing á lyfjum og svo áfengi. Þróun á dreifingu lyfja er komin lengra og er reyndar lögleg. Þetta er sami dreifingarfasinn, við notum raf- rænar undirskriftir og getum séð til þess að sá aðili sem skráir sig inn á rafrænu netverslunina með sínum skilríkjum sé sá sami og tekur á móti sendingunni. Það er hægt að viðhafa mikið öryggi í sendingum,“ segir Birgir og segir Íslandspóst nú þegar dreifa miklu af lyfjum til sjúkrastofnana. ÞESSI MÝTA UM AÐ ÞÚ EIGIR HELST AÐ VINNA 10-12 TÍMA Á DAG OG SVARA PÓSTI FRÁ MORGNI TIL KVÖLDS ER SKAÐLEG. EF MAÐUR GETUR EKKI GEFIÐ SÉR TÍMA TIL AÐ SITJA MEÐ FÓLKI OG TALA VIÐ ÞAÐ, ÞÁ ER ÞETTA ALLT TIL LÍTILS. Framhald af síðu 22  Framhald á síðu 26  2 9 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R24 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.