Fréttablaðið - 29.02.2020, Síða 32
Sigurbjörn Aðalsteinsson og Kristín Gísladóttir hafa búið og starfað í Los Angeles í meira en tuttugu ár. Kristín fór þangað á undan Sigur-
birni og stundaði nám í leiklist og
leikstjórn. Áður en Sigurbjörn hélt
vestur um haf vann hann við kvik-
myndagerð á Íslandi í nokkur ár, að
loknu námi í London. Hann rifjar
upp titla á eigin sjónvarpsmyndum,
Ókunn duf l, Camera Obscura og
Ráðagóða stelpan.
„Flest sem við höfum fengist við
í Los Angeles tengist kvikmynda-
gerð á einn eða annan hátt. Það er
skemmtilegt líf og vinnan getur
verið spennandi en við ákváðum
samt fyrir nokkrum árum að söðla
um og helga okkur því sem okkur
finnst sjálfum skemmtilegast að
gera, bókaskrifum og ferðalögum,“
lýsir Sigurbjörn. Hann segir þau
líka svo heppin að geta tekið ýmsa
kvikmyndatengda vinnu, eins og
klippiverkefni, með sér í ferðalögin.
„Ef tök eru á dveljum við fjóra til
sex mánuði á hverju ári að heiman.
Við gistum í þrjár til sex vikur á
hverjum stað, tökum vinnuna með
okkur og njótum þess að skjóta
rótum um stund, hvort sem það
er í rauðviðarskógi í Norður-Kali-
forníu, á vínekru í Mexíkó, heims-
borg í Vestur-Evrópu, eða á strönd
í Suður-Tyrklandi. Hvar sem við
erum, þá verður eldhúsið þar sem
við dveljum að þungamiðju heim-
ilisins. Við fýrum upp í eldavélinni
og svo er stokkið af stað inn í tak-
markalausar lendur ímyndunar-
aflsins.“
Leyndardómur sokkahvarfa
Nýlega vörðu þau Sigurbjörn og
Kristín þremur mánuðum hér á
Íslandi við ritstörf. Sigurbjörn
lagði meðal annars lokahönd á bók
númer tvö í bókaröðinni The Sock.
Or, Steven Ph. Bearlyman's Advent-
ure in Parallel Dimensions. Hún
nefnist Arrival og kemur kemur út
nú í lok í febrúar hjá Amazon. Þar
fæst líka fyrsta bókin, Journey.
Sigurbjörn segir hugmyndina að
The Sock hafa fæðst fyrir nokkrum
árum þegar hann hafi ákveðið að
koma skipulagi á sokkaskúffuna
sína, það hafi gengið svo illa að í
verklok hafi hann staðið uppi með
tuttugu og einn stakan sokk. „Í kjöl-
farið á þessum hremmingum voru
teknar tvær ákvarðanir á heimil-
inu. Annars vegar að kaupa bara
svarta sokka handa mér og alla
eins. Hins vegar að leggjast í bóka-
skrif um þann djúpa leyndardóm
sem liggur að baki sokkahvörfum.
„Bæði þessi verkefni eru í fullum
gangi, enn í dag. Ég á bara svarta
sokka og bók númer tvö í sokka-
seríunni er að líta dagsins ljós – en
þær eiga að verða sjö.
Farið er um víðan völl í bók-
unum og hoppað fram og til baka
milli tímabila og vídda, að sögn
Sigurbjörns. „Meginsagan gerist í
nútímanum í Los Angeles og fjallar
um hinn seinheppna Stephen Ph.
Bearlyman sem tapar forláta sokk
í þurrkara, skríður inn í hann og
endar með því að uppgötva sam-
hliða vídd. Inn í þá sögu spinnst svo
saga um dularfullan verkfræðing
sem starfaði í þurrkaradeild þvotta-
vélaframleiðanda á áttunda áratug
síðustu aldar,“ lýsir hann og segir
að upphafið að sokka bisnessinum
öllum sé rakinn til Júlíusar Sesars
sem hafi ekki aðeins hrint af stað
alls kyns atburðum í mannskyns-
sögunni heldur líka verið haldinn
þráhyggju gagnvart sjö sokkum sem
gerðir voru löngu fyrir hans tíð.
Hver bók endar í spennuhnút
„Bækurnar í ritröðinni eru í styttri
kantinum og hver bók endar
í spennuhnút sem er leystur í
þeirri næstu. Kaf lar eru stuttir og
atburðarásin hröð, þar er „spenna,
ofsi og húmor“, eins og lesandi sem
hafði samband við mig um daginn,
orðaði það,“ lýsir Sigurbjörn. Hann
segir móttökur The Sock hafa verið
frábærar og því verði þau Kristín að
halda sig að verki. „Ef við ætlum að
fá lesandann með okkur í svona
tíma- og víddaflakk er betra að ekki
líði of langt á milli bóka.“
Aðeins er hægt að fá The Sock í
vefversluninni Amazon, eins og
er, bæði á prenti og stafrænu formi
fyrir Kindle-appið, en í náinni
framtíð verða bækurnar fáanlegar
á netinu og í bókabúðum, að sögn
Sigurbjörns. „Við Kristín erum hér
á landi meðal annars til að kanna
ÉG Á BARA SVARTA SOKKA
OG BÓK NÚMER TVÖ Í
SOKKASERÍUNNI ER AÐ
LÍTA DAGSINS LJÓS – EN
ÞÆR EIGA AÐ VERÐA SJÖ.
Sigurbjörn
Stakir sokkar
kveikjan að
bókaflokki
Hjónin Sigurbjörn Aðalsteinsson og
Kristín Gísladóttir eru rithöfundar og kvik-
myndagerðarfólk. Meðal verkefna þeirra
er spennubókaröð á ensku, The Sock. Hún
fjallar um týnda sokka, hversdagslega ráð-
gátu sem flestir kannast nú við.
Tvær fyrstu bækurnar af sjö.
Róm er einn af eftirlætisstöðum Kristínar og Sigurbjörns. Hér eru þau framan við Colosseum.
Hjónin nota ýmsan ferðamáta. Hér eru þau á vespu í umferðinni.
Kristín og Sigurbjörn komu við í Flórens á ferðum sínum.
möguleika á að þýða bókaröðina
á íslensku,“ segir hann og tekur
fram að þó að hann sé titlaður höf-
undur sé The Sock samstarfsverk-
efni beggja. Hún hanni kápuna, sé
annar af tveimur ritstjórum og eigi
mikið af plottinu í sögunni. „Þó að
sagan um sokkinn hafi orðið til í
kollinum á mér, þá þróaðist hún
yfir í núverandi mynd í eldhúsinu
hjá okkur í Los Angeles þar sem við
látum hugargamminn geisa óbeisl-
aðan meðan við eldum.“
Dagbjartur Skuggi elst upp í helli
Sigurbjörn segir þó aðalástæðu
þess að hann og Kristín komu til
landsins í haust vera aðra bók sem
þau séu að skrifa, hún eigi að heita
Dagbjartur Skuggi og útlagarnir.
„Sú bók er um strák sem elst upp
í helli á hálendi Íslands með for-
eldrum og fjölda systra og bræðra
í lok 19. aldar. Við fylgjumst með
uppvexti hans og þeim ævintýrum
sem hann lendir í þegar hann fer
að átta sig á því að fjölskylduað-
stæður hans eru kannski ekki alveg
normal.“
Sagan um Dagbjart Skugga á
sterkar rætur í Íslendingasög-
unum, þjóðsögunum og norrænni
goðafræði, að sögn Sigurbjörns.
„Við höfum bæði áhuga á sögunni,
tungumálinu og öllu sem gerir
okkur að Íslendingum. Kristín
hefur legið yfir goðafræðinni og
sem stelpa las hún þjóðsögur Jóns
Árnasonar upp til agna. Bókin
um Dagbjart Skugga er skrifuð á
íslensku, enda er aðalmarkhópur-
inn íslenskir krakkar á aldrinum
tíu til sextán ára. Við viljum vekja
athygli þeirra á hversu spennandi
sagnaarfur okkar er.“
Í nóvember dvöldu Sigurbjörn
og Kristín í Snorrastofu í Reykholti
við skriftir og rannsóknir á efni
tengdu Dagbjarti Skugga og útlög-
unum. „Aðstæðurnar í Reykholti
eru einstakar, heljarinnar bókar-
safn og starfsfólk sem þekkir sögu
þjóðarinnar betur en margur,“ segir
Sigurbjörn. „Þá má ekki gleyma
þætti Snorra Sturlusonar sem lagði
grundvöllinn að menningu okkar
með því að skrifa Heimskringlu í
Reykholti. Andi hans svífur þykkur
yfir vötnum þar.“
Sigurbjörn og Kristín hittu
krakkana í borgfirsku skólunum
að Kleppjárnsreykjum og Varma-
landi. „Við lásum fyrir krakkana
úr bókinni um Dagbjart Skugga og
fengum viðbrögð og álit hjá þeim
við ýmsu sem við vorum að velta
fyrir okkur. Þar vöknuðu spurning-
ar sem var bæði gagnlegt og gaman
að velta fyrir sér.“
Enn er óráðið hvenær bókin um
Dagbjart Skugga kemur út, að sögn
Sigurbjörns. „Okkur miðar vel,“
segir hann, „svo hver veit nema að
bókin komi út í haust.“
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
2 9 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R32 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð