Fréttablaðið - 29.02.2020, Síða 34

Fréttablaðið - 29.02.2020, Síða 34
Þetta er stærsta helgin okkar á Íslandi, aðalhelgin okkar Eurovision aðdáenda, þangað til við tökum dolluna heim,“ segir Flosi. Lokakvöldið í undankeppn- inni sé alltaf spennandi en þó mismikið milli ára. „Það fer eftir árum, ef það er mikið af f lottum lögum, eins og í ár, þá er maður dálítið mikið spenntur. Keppnin er líka orðin svo flott hjá RÚV og við erum búin að ná að mynda svo mikla stemningu. Þá sé ómögu- legt að gera upp á milli undan- keppninnar og stóru keppninnar, hvað eftirvæntingu varðar. „Ég get ekki sagt hvort sé betra af því að úti þá tekur Eurovision fjölskyldan manns við, en það er stór hópur sem er búinn að hittast í mörg ár og skemmta sér saman.“ „Eitt lag enn“ var kveikjan Fyrsta minning Flosa af Eurovision var þegar hann fylgdist dolfall- inn með þeim Siggu Beinteins og Grétari Örvars keppa fyrir hönd Íslands árið 1992. „Ég man eftir mér að dansa á stígvélunum við „Eitt lag enn“ með Stjórninni, það er svona fyrsta minningin sem ég kveiki á. Þá var Stjórnin mjög vinsæl og þau ferðuðust í kringum landið með tónleika og þá bjó ég á Hornafirði og var sex ára gamall þegar ég tók þátt í söngvakeppni Stjórnarinnar og sigraði þar á mínum gúmmítúttum, í gallajakka og gallabuxum og söng þar „Eitt lag enn“,“ rifjar Flosi upp hlæjandi. „Þá varð ekki aftur snúið og ég fór að biðja mömmu og pabba að taka keppnina upp á VHS-spólur og það er engin spóla til í dag því ég horfði svo mikið á þetta að þær eru allar ónýtar. Þá byrjaði maður að stúdera bæði dansana og búningana og náttúrulega lögin. Maður var ungur farinn að syngja á hebresku og serbnesku án þess að vita hvað maður var að segja.“ Síðan þá hefur Flosi verið mikill aðdáandi keppninnar og má segja að líf hans undanfarinn áratug hafi litast töluvert af þessari miklu ástríðu en hann fór fyrst út á stóru keppnina árið 2010 og hefur farið allar götur síðan. Stoltur af Íslendingum í fyrra Flosi segir erfitt að svara því hvaða keppni standi upp úr. „Það er rosalega erfið spurning. Ég tengi bara við minningarnar og á mjög sterkar minningar af því þegar ég fór til Aserbaídsjan þar sem Loreen vann keppnina, en það var nátt- úrulega svolítið sögulegur sigur því hún vann svo afgerandi. Þá segir hann framlag Íslands síðasta ár, Hatara, einna eftir- minnilegasta atriðið. „Ég var svo- lítið stoltur af Íslendingum í fyrra, að hafa þorað að taka þennan séns og það var gaman að fylgjast með hvernig Hatari setti eiginlega Evrópu bara á annan endann. Það er alltaf skemmtilegra þegar laginu okkar er spáð góðu gengi, þegar maður er úti og finnur meðbyr. Svo er ekki verra ef maður heyrir lagið á Euro-klúbbnum og getur dansað við það. Núna er tæknin orðin svo mikil að róleg lög eru sett í partí- búning þannig að það skiptir ekki máli hvort þú ert með ballöðu, það er alltaf hægt að dansa.“ „Ég gleymi samt aldrei fyrstu ferðinni. Hver og einn aðdáandi veit hvað maður er að tala um þegar maður segir: þetta er jóm- frúarferðin mín. Þá klappa manni allir á bakið og segja: þú átt eftir að upplifa svo mikið. Það var í Ósló þegar Hera Björk stóð sig með prýði. Það var mikil skemmtun og maður sveif eiginlega um á bleiku skýi allan tímann.“ Fjölbreyttur hópur í FÁSES Flosi segir fjölda meðlima FÁSES, sem starfrækt hefur verið í níu ár, breytilegan á milli ára. „Við vorum með stofnfundinn okkar árið 2011. Það voru um 20-30 manns sem byrjuðu þetta saman og síðan þá hefur þetta bara vaxið. Við vitum að þó að það fíli ekki allir Eurovisi- on, þá hafa allir skoðanir þannig að það hefur verið okkar stefna að fá alltaf f leiri og fleiri með okkur í lið. Þegar keppnin hefur verið haldin í Stokkhólmi eða Kaupmannahöfn þá hefur fjöldi meðlima alveg farið upp í 600. En meðalárið, þá er þetta á milli 300 og 400 meðlimir sem við erum með og í kringum 150 manns sem fara út.“ Fjöldi þeirra sem fari út á stóru keppnina fari eftir ýmsu. „Það fer eftir því hver vinnur, hvar keppnin er haldin og hversu vinsælt lagið er. Eins og í fyrra, þetta var langt í burtu og dýrt að fara svo það voru ekki margir sem fóru en þegar keppnin var til dæmis í Stokk- hólmi árið 2016 voru meira en 150 sem við vissum af á okkar vegum.“ En hvað einkennir þennan hóp að mati Flosa, fyrir utan hið aug- ljósa? „Ég hef sjaldan upplifað að vera í svona félagsskap þar sem allir eru velkomnir. Það er enginn að fara að dæma þig þó þú vitir ekki hver sigraði keppnina árið 1972. Við viljum frekar bara taka þátt í gleðinni, bjóða alla vel- komna og kynna fyrir fólki hvað þetta er nú skemmtilegt og margt hægt að gera í kringum þetta. Við erum auðvitað með ákveðinn hóp sem veit allt og þú getur spurt að því í hvernig jakkafötum kynnir- inn var árið 1989. Það er einhver sem mun geta svarað því,“ segir Flosi og hlær. „Þetta er mjög breiður hópur aldurslega séð og við erum eini hópurinn þar sem eru fleiri konur. Þetta er auðvitað mjög sterkur hópur meðal samkynhneigðra karlmanna. Það þykir mjög sér- stakt hvað það eru margar konur í okkar klúbbi og ég myndi segja að við værum fjölskylduvænasti klúbburinn en við vitum ekki til þess að það séu svona margir ungir meðlimir í öðrum klúbbum. Það endurspeglar svolítið stemning- una hérna heima, hún er pínulítið öðruvísi. Klúbbarnir úti ganga meira út á partí og að drekka og hlusta á tónlist en þetta er meiri fjölskylduviðburður hérna og við reynum að gera eitthvað fyrir þennan hóp líka þannig að þetta sé ekki bara drykkja og vitleysa,“ segir Flosi, léttur í bragði. Allir hafa skoðanir hér heima Vinsældir söngvakeppninnar hér á landi vekja mikla athygli. „Það er talað um Ísland, Möltu, Svíþjóð og nokkur lönd í viðbót þar sem er áberandi mikill áhugi. Ég veit það er yfir 90% áhorf á Möltu til dæmis. Svo eru undankeppnirnar í Noregi og Svíþjóð jafn flottar ef ekki f lottari keppnir en úrslitin í maí. Það er alveg svakalegt pró- Flosi segir mikinn kær- leika einkenna Eurovision- samfélagið. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON Flosi fer nú í tíunda skiptið á stóru keppnina í ár en hann segir keppnina í fyrra afar eftirminnilega. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Hjördís Erna Þorgeirsdóttir hjordiserna@frettabladid.is Það er mikið hlegið að því þegar Euro- vision klárast þá byrji hið svokallaða PED- tímabil, eða Post Euro- vision Depression, sem er mjög erfiður fyrir hinn sanna Eurovision aðdá- anda. Maður verður pínu niðurlútur þegar sprengj- an er búin á laugardeg- inum í maí. Framhald af forsíðu ➛ gramm sem fer þar fram.“ Hann nefnir nokkur atriði sem hugsanlegar skýringar á vinsældum keppninnar. „Við erum auðvitað lítil þjóð og menn þekkjast svo mikið. Við erum nátt- úrulega rosalega stolt af öllu sem við gerum. Það hafa allir skoðanir og þó menn viðurkenni ekki að vera aðdáendur þá hafa allir eitt- hvað um þetta að segja. Það er meira að segja en í öðrum löndum þar sem sumir vita ekki einu sinni hvað þetta er. Ég hef búið í löndum eins og Sviss, sem er eitt af fyrstu löndunum sem byrjar að taka þátt í Eurovision og það voru margir hreinlega sem höfðu ekki hug- mynd um keppnina. Það kemur ekki fyrir hérna á Íslandi, því get ég lofað.“ Þessi tími árs er Flosa og öðrum aðdáendum afar kærkominn. „Þegar maður er nýbúinn að taka niður jólaljósin og er pínu þung- lyndur yfir því hvað dagurinn er stuttur, þá kemur þetta yndis- lega prógram sem léttir manni lundina. Það er mikið hlegið að því þegar Eurovision klárast þá byrji hið svokallaða PED-tímabil, eða Post Eurovision Depression, sem er mjög erfiður fyrir hinn sanna Eurovision aðdáanda. Maður verður pínu niðurlútur þegar sprengjan er búin á laugardeginum í maí og þá þarf maður að bíða þangað til í janúar þegar ballið byrjar á ný.“ Það verður þétt dagskrá hjá Flosa í dag. „Ég er hóptímakenn- ari í Rebook Fitness og ég verð með dúndurpartí ásamt fríðum stúlkum sem byrjar klukkan 10 með Eurovision-súmba í Holta- görðum. Það er opinn tími og öllum velkomið að taka þátt í gleðinni. Síðan verð ég með Euro- vision-spinning sem er að vísu lokað þar sem það er bara ákveð- inn fjöldi af hjólum. Svo fer maður í sparigallann og byrjar að hita sig upp en við hittumst á Ölveri, fáum okkur að borða, hlustum á tónlistarmann og síðan löbbum við saman í Laugardagshöllina og gerum allt vitlaust. Við erum yfir- leitt fremst þarna, veifum fánum og styðjum öll atriðin. Við viljum að fólk komi upp á svið og líði vel og geti farið stolt af sviði.“ Eftir keppnina verður svo fagnað fram á nótt. „Svo endar þetta með, allavega stærsta Euro- vision partíi sem við höfum komið að, sem verður í Iðnó þar sem hið fræga tríó Keiino mun koma fram, en þau koma einnig fram í úrslitunum í Höllinni. Svo verða dívurnar okkar tvær, Regína Ósk og Hera Björk þarna, og við erum búin að flytja inn einn helsta Eurovision-plötusnúðinn sem mun þeyta skífum og sjá til þess að við munum dansa af okkur skóna. Þá verður Eurovision- karókí á Curious á föstudaginn og allir velkomnir. Það er frítt inn og opið öllum og eins hittingurinn á Ölver.“ Hægt er að kaupa miða á Euro- klúbbinn í Iðnó á laugardaginn á fases.is á 3.000 krónur og á 3.500 krónur við innganginn. 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 9 . F E B R ÚA R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U REUROVISION
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.