Fréttablaðið - 29.02.2020, Síða 36
Daði og Gagnamagnið freista þess að komast til Júrólands í annað sinn en tóku fyrst þátt í Söngvakeppninni 2017.
Hin ísraelska Dana International tók tvisvar þátt í Eurovision. Hún sigraði í
fyrra skiptið en í seinna skiptið náði hún ekki upp úr undankeppninni.
Ef fólk reynir sig einu sinni við Eurovision þá er engin leið að hætta, segir máltækið. Eða
ekki. Allavega eru þeir þó nokkrir
tónlistarmennirnir sem hafa reynt
aftur og aftur að komast í aðal-
keppnina og leggja ýmislegt á sig.
Nærtækasta dæmið þessa dagana
eru Daði og Gagnamagnið sem,
eftir að hafa naumlega misst af
tækifærinu til að komast í aðal-
keppnina fyrir þremur árum, eru
nú önnum kafin við að reyna aftur
og við hin bæði sjáum, vitum og
skiljum. Og eftirtaldir listamenn
líka sem eiga það sameiginlegt að
hafa reynt sig við Evrópusöngva-
keppnina oftar en einu sinni með
mjög misjöfnum árangri.
Gríska sjarmatröllið, sjónvarps-
stjarnan, leikarinn og söngvarinn
Sakis Rouvas náði þriðja sæti í
keppninni árið 2004 með hittar-
anum Shake it. Hann smitaðist
illa af Júróveirunni og sneri aftur
fimm árum síðar með lagið This is
our night sem náði sjöunda sæti.
Dana International vann aðal-
keppnina með eftirminnilegum
hætti árið 1998 með laginu Diva.
Hún hafði reynt sig áður í undan-
keppninni í heimalandi sínu árið
1995. Hún fylgdi sigrinum eftir tíu
árum seinna sem höfundur lagsins
Fire in your eyes sem náði níunda
Eitt lag enn, einu sinni enn
Þegar Eurovision á í hlut eru margir kallaðir og fáir útvaldir. Nokkrir eru síðan útvaldir aftur og
aftur og fá að fara til Júrólands sáldrandi tilheyrandi brjáli. Hér eru nokkrir sem farið hafa aftur.
Selma Björnsdóttir fór tvisvar út
fyrir Íslands hönd í Eurovision.
Brynhildur
Björnsdóttir
brynhildur@frettabladid.is
sætinu. Tveimur árum síðar steig
hún svo aftur á svið með lagið
Ding dong sem náði ekki upp úr
undankeppni.
Frægasta afkvæmi Eurovision
fyrr og síðar er auðvitað ABBA.
Hljómsveitin sigraði keppnina
árið 1974 með laginu Waterloo
sem aflaði henni heimsfrægðar
fram á þennan dag. Margir vita
að árið áður, 1973 tók ABBA þátt í
Melodifestivalen, hinni stórbrotnu
undankeppni Svía, með lagið Ring
ring og lenti þá í þriðja sæti. Færri
vita hins vegar að lag úr smiðju
Björns og Bennys keppti fyrir hönd
Noregs árið 1981, þegar ABBA var
enn starfandi. Lagið hét Never in
my life og var f lutt af Finn Kalvik.
Lagið náði þeim ágæta árangri að
verma neðsta sæti keppninnar
með engin stig og ABBA hefur ekki
tekið þátt í Eurovision síðan.
Hjartaknúsarinn Sir Cliff
Richard lagði tvisvar á Júrómiðin,
í fyrra skiptið árið 1968 með hið
hressilega Congratulations sem
tapaði naumlega fyrir spænska
framlaginu. Árið 1973 sneri hann
svo aftur með lagið Power to all
our friends sem náði þriðja sætinu.
Eduard Romanyuta frá Úkraínu
trúir ekki á tap! Hann reyndi
fjórum sinnum að komast gegnum
síuna í heimalandi sínu Úkraínu
en hafði aldrei erindi sem erfiði.
Árið 2015, þegar Úkraína tók ekki
þátt í keppninni, vippaði hann
sér til nágrannanna í Moldavíu og
hlaut náð til að keppa fyrir þeirra
hönd.
Sólmyrkvahjartagyðjan Bonnie
Tyler birtist öllum að óvörum með
framlag Englands árið 2013, full
sjálfstrausts með lagið Believe
in me sem lenti í 19. sæti. Það var
ekki í fyrsta sinn sem hún var
orðuð við þátttöku, hún var beðin
af breskum yfirvöldum að taka
þátt í keppninni árið 1985 þegar
hún var heimsfræg á toppnum en
hafnaði því þá, enda keppnin þá
ekki komin allan hringinn frá því
að vera töff og yfir í að verða það
aftur.
Við Íslendingar erum náttúr-
lega með fámennari þjóðum sem
taka þátt í Eurovision, þannig að
það liggur í hlutarins eðli að fleiri
en einn og fleiri en tveir tónlistar-
menn hafa farið oftar en einu sinni
og oftar en tvisvar í aðalkeppnina.
Hér þýðir ekkert að telja upp
bakraddir eða lagahöfunda því
það yrði allt of langur listi heldur
verður eingöngu fjallað um þá
keppendur sem hafa farið sem
aðalfulltrúar Íslands oftar en einu
sinni.
Fyrstan skal frægan telja rauð-
hærða rokkarann Eirík Hauksson
sem var hluti af okkar fyrsta
framlagi, Gleðibankanum, ásamt
félögum sínum í Icy tríóinu sem
lenti í 16. sæti eins og alþjóð mun
gjörkunnugt. Meira en tuttugu
árum síðar lét hann tilleiðast
aftur og tók þátt fyrir okkar hönd
með laginu Valentine lost, eða Ég
les í lófa þínum eins og það hét á
íslensku og sýndi að hann hafði
engu gleymt þó lagið færi ekki upp
úr forkeppninni.
Sigga Beinteins ber óskoraðan
titilinn Júródrottning Íslands en
hún fór hvorki meira né minna en
þrisvar sem aðalkeppandi fyrir
Íslands hönd. Fyrst þegar þau
Grétar Örvarsson náðu hvorki
meira né minna en fjórða sæti með
hinni hressu sveiflu Eitt lag enn
og næst þegar hún, ásamt Sig-
rúnu Evu Ármannsdóttur, náði að
bræða bæði landann og útlend-
inginn með laginu Nei eða já sem
hampaði sjöunda sætinu árið 1992.
Árið 1994 stóð hún svo ein fremst
á sviðinu og söng lagið Nætur sem
hreppti 12. sætið.
Selma Björnsdóttir skaut Íslend-
ingum ljúfsáran skelk í bringu,
þegar hún söng okkur næstum því
til sigurs árið 1999 og flutti lagið
All out of luck svo vel, að aðeins
sautján stig skildu hana og sænska
sigurvegarann að. Sex árum síðar
hélt hún aftur til keppni með lagið
If I had your love en af einhverjum
ástæðum fór það lag ekki upp úr
forkeppninni.
Jónsi í allskonar fötum fór einn
til keppni árið 2004 með lagið
Heaven sem sem lenti í 19. sæti og
var svo meðreiðarsveinn Gretu
Salóme árið 2012 og fór þá í 20.
sætið. Greta fór svo ein árið 2016
með lagið Hear them calling en
náði ekki upp úr forkeppninni.
Hvernig Daða og Gagnamagninu
gengur í kvöld er alls óvitað þegar
þetta er skrifað en eitt er víst að
alltaf verður ákaflega gaman þá.
Sigga Beinteins er Júródrottning Ís-
lands og hefur keppt úti í þrígang.
Ég er búin að nota Active JOINTS í nokkra mánuði og er
mjög ánægð með árangurinn og hvernig mér líður í líkam-
anum af því að nota það. Áður en ég byrjaði á Active JOINTS
var ég búin að vera mörg ár á öðru fæðubótarefni sem er
eingöngu fyrir liðina.
Ég er ekki með bjúg
lengur.
Ég hef engin óþægindi
eða eymsli í liðunum en
það var vandamál hjá
mér áður. Ég get reynt
vel á mig meira því ég
finn ekki eins mikið fyrir
líkamlegu álagi eins og
ég gerði áður sem er
frábær munur.
Hrönn Ægisdóttir
■ Virkar vel á liðina, eykur liðleika
■ Vinnur vel á viðkvæmum og aumum liðum
■ Styrkir beinin, byggir upp bein og bandvef
■ Eykur orku og þrek og styttir tímann í endurheimt
■ Öflugt andoxunarefni, góð vörn fyrir frumur líkamans
■ Styrkir meltinguna og kemur jafnvægi á hana
■ Nærandi fyrir húðina, hárið og blóðrásina
Mjög ánægð með árangurinn
og virknina af Active JOINTS
Active JOINTS inniheldur
eingöngu íslensk hráefni
með staðfesta verkun.
Kalkþörungar,
smáþörungar,
GeoSilica,
Birki,
C&D3 vítamín.
Fæst í öllum apótekum, Heilsuhúsinu,
Hagkaup, Fjarðarkaup og á eylif.is
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 9 . F E B R ÚA R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U REUROVISION