Fréttablaðið - 29.02.2020, Síða 38

Fréttablaðið - 29.02.2020, Síða 38
Við erum á kafi í að athuga hvar hægt er að fá prentaðar peysur með pixluðum myndum af okkur Sandra Guðrún Guðmundsdóttir sandragudrun@frettabladid.is Systurnar eru þær Hrönn Jóns­dóttir, alsystur hennar Rann­veig Margrét Jónsdóttir og Kolbrún Jónsdóttir, hálfsystir þeirra Linda Björk Sæmunds­ dóttir og hálfsystur Lindu, Sæunn Anna Sæmundsdóttir og Dallilja Sæmundsdóttir. Hrönn, Linda og Sæunn búa allar í Noregi. Dallilja og Kolbrún á Íslandi og Rannveig í Danmörku. Þar sem þær ná ekki að hittast oft vegna fjarlægðarinnar á milli þeirra fannst þeim Euro­ vision vera tilvalin ástæða til að hittast allar saman og hafa gaman. „Fyrstu árin áður en Linda flutti sjálf til Noregs kom hún alltaf að heimsækja mig og Sæunni í kringum Eurovision. Við hitt­ umst allar heima hjá Sæunni og horfðum saman á keppnirnar,“ segir Hrönn. „Síðan hafa Rannveig, Kolbrún og Dalla komið og verið með þegar tækifæri gefst.“ Eurovision vikan er stórhátíð Hópur systra úr Dalasýslu sem búa í þremur löndum nota Eurovision keppnina sem ástæðu til að hittast og gera sér glaðan dag saman. Í partýunum er alltaf ákveðið þema og gleðin er mikil. Hrönn, Kolbrún, Linda, Rannveig og Sæunn voru með pappírs- blómvendi árið sem Svala söng Paper. Hrönn, Sæunn, Linda og Dallilja slepptu lausum sínum innri BDSM- aðdáanda þegar Hatari fór utan. Þær systur hafa mismikinn áhuga á Eurovision en Hrönn segir að þær Linda séu mestu áhuga­ manneskjurnar. „Linda hefur í mörg ár haldið góða glósubók og gert úttektir á lögunum sem taka þátt. Ég hef gert það líka þegar ég hef haft tíma. Hinar systurnar hlusta líka og horfa á lögin í meiri eða minni mæli og svo berum við saman bækur okkar og skröfum um þetta allt þegar nær dregur keppni.“ Yfirleitt eru systurnar mjög ósammála um hvaða lög eru best og á milli þeirra skapast oft ansi skemmtilegar umræður um þátttökuatriðin. „Það hefur samt ekki enn komið til alvarlegs ósættis eða handalögmála,“ segir Hrönn hlæjandi. Heljarinnar möguleiki á skemmtun Hún bætir við að óháð keppninni sjálfri sé óumdeilanlegt að hún bjóði upp á heljarinnar mögu­ leika á skemmtun. „Hvort heldur sem maður hefur gaman af tón­ list, góðri eða slæmri. Pínlegum augnablikum, húmor, hallærisleg­ heitum, pólítík, landafræði, lita­ gleði eða „showi“ og tilstandi með tilheyrandi gæsahúð af og til.“ Hrönn segir að þó að það sé mik­ ill tónlistaráhugi innan fjölskyld­ unnar snúist Eurovision áhuginn mest um samveruna og tilstandið sem þær systur hafa skapað sjálfar í kringum keppnina. „Börnunum okkar og betri helmingum hefur líka þótt þetta þrælskemmtilegt og allir hlakka til þessarar hátíðar ár hvert.“ Úrslitadagurinn er aðalhátíðis­ dagurinn hjá systrunum en þær reyna samt að horfa líka saman á undanriðlana ef þær geta. „Euro­ vision vikan er stórhátíð hjá okkur og það má kannski segja að við blóðmjólkum þetta tækifæri til að hittast, skemmta okkur saman, borða góðan mat og njóta lífsins.“ Árið 2014 byrjuðu þær að hafa þema í veisluhöldunum á úrslita­ kvöldinu. „Rannveig átti hug­ myndina að því að við klæddum okkur hver í sinn litinn til heiðurs Pollapönki. Síðan þá höfum við alltaf verið með eitthvað þema, oft tengt íslenska atriðinu en þó ekki alltaf. Það er jú skemmtilegast að þemað tengist atriði sem er með á úrslitakvöldinu og það er ekki hægt að ganga að því vísu að íslenska lagið komist þangað.“ Hrönn segir að þrátt fyrir að þær hafi margar búið lengi í Noregi og norska framlagið því mest áberandi í kringum þær þá fylgist þær alltaf með hvaða atriði er sent frá Íslandi. „Það þarf mikil ömur­ legheit til að við höldum ekki með því framlagi innst inni. Oft vitum við ekki fyrr en á fimmtudeginum hvort íslenska lagið verður með á lokakvöldinu og það setur okkur svolitlar hömlur í vali á þema. Árið 2015 komst Unbroken ekki áfram svo við tókum þá ákvörðum að brúka allar heyrnartól eins og sjá mátti í slóvenska atriðinu sem var í miklu uppáhaldi hjá mér það árið.“ Árið 2016 útbjó Rannveig höfuðskraut handa systrunum úr hárspöngum, hreingerningar­ svömpum, vatnsblöðrum og gömlum leikföngum til heiðurs þýska laginu Ghost. Árið 2017 komst Svala ekki áfram með lagið Paper en Hrönn segir að það hafi ekki komið systrunum á óvart. Það ár voru þær allar með pappírs­ blómvendi til að apa eftir atriðinu frá Moldóvu. „Því miður hafði engin okkar trú á íslenska framlaginu árið 2018. Það var blátt áfram eitthvað það lélegasta sem Ísland hefur boðið upp á síðan árið 1989. Til að ein­ falda málin tókum við snemma á vordögum ákvörðun um að hafa bara gullþema það árið. Það hefði mögulega verið bráðsmellið að klæða sig í rúllukragaboli, en við skemmtum okkur konunglega í gullinu okkar,“ segir Hrönn. Slepptu innri andkapítalísk- um BDSM-unnanda lausum Í fyrra efaðist enginn úr þessum hressa systrahópi um að Hatari kæmist áfram á úrslitakvöldið. Þær voru því pollrólegar í undir­ búningnum. „Við nutum okkar í botn við að sleppa okkar innri andkapítalíska BDSM­unnanda lausum.“ Hrönn segir að þær systur hafi f lestar fylgst með undan­ keppninni á Íslandi í ár og henni finnst margt frambærilegt vera í boði. „Ég veit ekki hvort ég á að vera að nefna nein sérstök atriði, en held að mér sé óhætt að segja að nokkrar okkar eru nú þegar búnar að læra ákveðinn dans fyrir úrslitakvöldið í Hollandi 16. maí og við erum á kafi í að athuga hvar hægt er að fá prentaðar peysur með pixluðum myndum af okkur sjálfum.“ 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 9 . F E B R ÚA R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U REUROVISION
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.